Fálkinn - 22.11.1961, Síða 34
Ambáttarhóll
Frh. af bls. 15
varðveittar um heimilisháttu
í Ambáttarhól. Guðný hýddi
ætíð kofa sinn utan og innan
með vendi á jóla- og nýárs-
nóttum og þuldi jafnframt
„forneskjuþulur“, sagði fólk.
Guðný átti nokkrar kindur og
tvo rauða hesta, og þarfnaðist
því nokkurra heyja. Var því
stundum kvenmaður hjá
henni að sumrinu, en sú dvöl
var aldrei langæ, því sagt var
að Guðný væri iðin við að
segja forynjusögur; urðu
kvensur við það myrkfælnar
og fóru.
Guðný var eitt sinn spurð í
hreinskilni hvort faðir henn-
ar, séra Snorrii hefði verið
göldróttur. Hún svaraði:
Ó nei, barnið mitt, hann var
ekki göldróttur; allt sem hann
gat, gerði hann með guðs
fíngri.
★
Konan í Ambáttarhól var
ekki með öllu laus við nær-
veru útburða og annarra
vætta, þótt lángt væri liðið
síðan útburðurinn úr Teitsgili
var að hrella hana heimundir
bæ á Húsafelli. Jón Borgfirð-
ingur skráði eftir sögu henn-
ar sjálfrar að útburður héldi
til nálægt Ambáttarhól, og
gólaði sá mikið undan útsynn-
íngi og éljagángi, svo sjálf
gæti hún ekki sofið fyrir hon-
um þegar slík veður voru í
nánd.
Það vill svo vel til að varð-
veittar eru pápiskar bænir af
vörum Guðnýjar Snorradótt-
ur. Þórður Árnason á Bjarna-
stöðum skráði þær eftir henni
og eru þær í safni Jóns Árna-
sonar. Að stofninum til eru
þær víst flestar miklu eldri en
Guðný, svo sem þessi:
Sofðu nú sælin
og sofðu nú vel.
Sofðu eins og Kordíá
undir vængjum Máríá.
Krossinn helgi lýsi þér
með öllum sínum Ijósum,
hvurs helgidóm vér hrósum.
Dilli þér nú Drússíus og
Pálma,
sýngi yfir þér serimon og
sálma.
En eftirfarandi bæn ber ör-
ugg merki þess að Guðný
hafi fært hana í samræmi við
nánasta umhverfi kofans síns
á Ambáttarhóli:
— Krossa ég mig og signi í
bak, krossa mig og signi mig
í fyrr með því heilaga sigur-
merki sem St. Barbára merkti
sig á sjálfa kyndilmessu drott-
ins síns og Máríu sinnar. Sittu
hjá mér Máría hin sæla,
signdu mig með hægri hendi
fyrir hönum illa Lússímund
og hönum Loðin Ásbjarnar-
syni og fyrir afturgöngunni
við Þrándarholtsstekk og út-
burðinum í Andrésarmýri.
Varðveittu minn andardrátt
sem Elítómasar og ins stóra
Abístors og Córí. St. Þorlák-
ur standi í mínum anddyrum
og sýngi mér sjö sinnum Pater
noster. Svo súngu Máría og
Pétrónell á sinn upprisudag.
Ámín. Ámín.
Hvur þessa bæn les þrisvar
á dag,
hönum mun ganga allt í hag.
Ámín. Ámín.
★
Guðný Snorradóttir andað-
ist á Sturlureykjum í Reyk-
holtsdal 6. janúar 1852.
Kirkjan að Húsafelli hafði
verið seld til niðurrifs 1811,
og þótti mörgum ógæfumerki,
ekki sízt eftir að sá sem fyrst-
ur lagði hönd að því, Snorri
Björnsson, Snorrasonar prests,
varð sturlaður og heingdi sig
á Bessastöðum 1814. Gleymsk-
an greri þó að mestu yfir rúst-
iy kirkjunnar; en tvö systk-
inin voru minnug á helgi
staðarins. Jakob Snorrason
andaðist 1839 og var jarðaður
að Húsafelli við hlið gamla
Snorra, föður síns, samkvæmt
eigin ósk. Guðný Snorradóttir
hafði óskað hins sama.
Þess vegna var forneskju-
konan úr Ambáttarhól einn-
ig borin til moldar í gamla
kirkjugarðinn á Húsafelli.
(Helztu heimildir: Huld;
Gráskinna II.; Þjóðsögur
Jóns Árnasonar II.; Þjóðsög-
ur Ólafs Davíðssonar II.;
Gisli Iíonráðsson: Þáttur af
Halli á Horni o. s. frv. (Vestf.
sagnir); Héraðssaga Borgar-
fjarðar I. o. fl.).
! Kæri Astró!
' Mig langar til að biðja þig
áð lesa ur stjörnunum um
framtíð mína. Ég er fædd
16. september 1942 rétt fyrir
5 að degi til. Ólofuð ep svo-
jítið ástfangin.
Hann er fæddur 23. nóvem-
ber 1942.
Með fyrirfram þökk,
’ Tégram D. J.
Svar til Tégram D J.
Þú fæddist þegar sólin var
23.10' í merki Meyjar. í því
inerki eru einnig Venus,
Neptún og Mars. Höfuð ein-
kenni þín falla því undir þessi
áhrif, sem gera þig hægláta,
íhugula, vinnusama. Þannig
er þitt innsta eðli. Þú ert
einnig glögg og ert fljót að
gera samanburð og átta þig
á hlutunum.
Það sem aðrir álíta um þig
er í aðalatriðum að þú sért
nokkuð langsótt, trúrækin og
heimspekilega sinnuð.
Maðurinn, sem þú gafst
upp fæðingardag og ár á
fæddist þegar sólin var í
núll gráðu Bogamerkisins.
Þessi afstaða er í mjög góðu
samræmi við stöðu Mána
þíns. Máninn { korti hans er
í merki Tvíburans ásamt
Uranus og Saturn. Af þessu
má sjá að hann á í mjög
alvarlegum sálrænum erfið-
leikum. Hætt er við að þessi
maður yrði deilugjarn og oft
ofsafenginn í sambúðinni.
Þessi persónuleiki er einn af
þeim, sem hafa allt á horn-
um sér, og ég geri ekki ráð
fyrir að þú mundir standast
árásir hans og aðfinnslur til
langframa. Þrátt fyrir það eru
ýmsir punktar, sem falla vel
saman hjá ykkur, en ég mundi
samt ráðleggja þér að leita
þér maka einhvers staðar ann-
ars staðar.
Ef við víkjum aftur að
korti þínu hvað ástamálin á-
hrærir, þá er Saturn í sjö-
unda húsi í merki Tvíburans,
sem bendir til tveggja gift-
inga og að öllum líkindum
talsvert eldri mönnum held-
ur en þú ert sjálf.
Það athyglisverðasta í korti
þínu er staða sex pláneta í
áttunda húsi, sem stendur fyr-
ir dulfræði, ýmis sálræn fyr-
irbrigði, drauma, arf, skatta
o. fl. Þessi áhrif koma samt
ekki fram að ráði fyrr en upp
úr 35 ára aldri, en næstu tíu
árin til 45 ára verða ein sterk-
ustu og áhrifamestu ár ævi
þinnar. Þú munt þá ganga í
einhvern félagsskap, sem hef-
ur þessi fræði í hávegum.
Ég mundi vilja ráðleggja
þér, þegar þú ert að ráðleggja
kaup á fatnaði og standa í
ýmiss konar framkvæmdum
að gera það sem minnst í sam-
ráði við aðra, því að það sem
þú gerir fyrir áeggjan ann-
arra verður þér ekki til heilla
og verður þér skammgóður
vermir.
Framtíðin: Þegar þú ert 26
ára gengur Sólin yfir Merkúr,
sem er í níunda húsi. Þessi
afstaða bendir til langs ferða-
lags sennilega til útlanda með
flugvél. Þetta bendir einnig
til mjög hagstæðra afstaðna
í ástamálunum.
27 ára: Þá er þvers afstaða
milli Sólarinnar í níunda húsi
og Júpiters í áttunda húsi.
Þetta bendir til erfiðleika í
sambandi við erfðir eða arf
og einnig verða skattayfir-
völdin þér mjög þung í skauti
þá. Þá verður þú að nota
dómgreind þína til að ná hag-
kvæmri lausn á málinu.
Á efri árum ævinnar eru
líkur til að þú lifir í öruggu
og auðsælu umhverfi.
34 FÁLKINN