Fálkinn


Fálkinn - 22.11.1961, Síða 37

Fálkinn - 22.11.1961, Síða 37
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl). Þér ættuð ekki að forsmá þá hjálp, sem yður býðst. Á því leikur enginn vafi, að þetta er í góðu skyni gert.. Enn fremur munuð þér ná mikilsverðum árangri í starfi þessa viku og í vikulokin er að vænta all- skemmtilegra atvika, sem ef til vill munu koma róti á hug yðar. Nautsmerkið (21. apríl—20. maí). Þér ættuð að kosta kapps um að skoða nánar yðar innri mann. Eins og málin standa nú, veitir yður ekki . af, að vita eitthvað um sjálfan yður, ekki sízt sakir þess, að hingað til hafið þér verið allt of sjálfumglað- ur og yður hefur hingað til skort gagnrýni á yður sjálfan. Tvíburamerkið (21. maí—20. júní). Örlög manna eru margvísleg og enginn getur séð þau fyrir. Margt mun henda yður í þesesari viku, sem síðar mun hafa mikil áhrif á allar gerðir yðar. Þér lendið að öllum líkindum í smáævintýrum undir lok vikunnar og ástamálin verða ffcunur hagstæð. Krabbamerkið (21. júní—20. júlí). Loksins verður gamall draumur að veruleika. Þér munuö geta not.fært þetta tækifæri út í yztu æsar og ráðagjörð sú, sem þér höfðuð í huga í þessu sambandi mun komast í 'framkvæmd og verða yður til mikilla heilla. Fjárhagslega er vikan góð. Ljónsmerkið (21. júlí—21. ágúst). Þessa dagana þurfið þér svo sannarlega ekki að kvarta, allt leikur í lyndi og ástamálin munu blómstra og í peningamálunum munuð þér verða mjög heppinn. Annars ættuð þér að reyna svolítið umburðarlyndi gagnvart öðrum, enda skuluð þér ekki krefjast. meira af öðrum en yður sjálfum. Jómfrúarmerkið (22. ágúst—22. sept.). Persóna nokkur, sem hefur hingað til ekki þotzt sja yður, fer allt í einu að gefa yður meiri gaum og verða alúðleg í framkomu við yður. Enginn vafi leik- ur á því, að persóna þessi ætlar að hafa eitthvað gagn af yður og ættuð þér að vera á verði gagnvart. henni. Vogarslcálamerkið (23. sept.—22. okt.). Stjörnurnar segja, að þetta verði mjög róleg vika að öllu leyti. Þér munuð og njóta þessarar hvíldar i ríkum mæli. Ef til vill munu menn veita yður ein- hverja upphefð áður en langt um líður, sakir þess að þér hafið bæði sýnt. dugnað og atorku í starfi. SpprSdrekamerkiö (23. okt.—22. nóv.). Ef þér komið einhverri reglu á fjárhaginn, lítur svo út að þér hafið efni á að veita yður það, sem yður hefur lengi langað til. Óvænt atvik mun gerast á föstudag, en gætið þess að láta ekki óvandaðar per- sónur spila með tilfinningar yðar. BogmannsmerkiS (23. nóv,-—20. des.). Samúðin er með yður og hún mun hjálpa yður mikið í þessari erfiðu aðstöðu, sem þér eruð nú í. En þér þurfið að gæta þess að fylgjast vel með þróun mál- anna og láta ekki mótgang á yður fá. Þér munuð sennilega verða fyrir fjárhagslegu tapi í þessari viku. Steingeitarmerkið (21. des.—19. jan.). Þér gætuð látið af þessari smámunasemi, sem hefur verið öllum til mikils ama. Mjög bráölega fáið þér verk að vinna, sem mun krefjast allrar yðar kost.- gæfni. XJndir lok vikunnar mun gamalt vandaniál milli yðar og vinar leysast á mjög skemmtilegan hátt. VatnsberamerkiS (20. jan.—18. febr.). Það eru breytingar á lífi yðar í aðsigi. Það getur verið, að þær snúist aðallega um starf yðar. Auk þessa mun margt koma fyrir, sem ýmist mun valda yður gleði eða depurð. Persónulegt, vandamál, sem kemur upp í vikunni, leysið hér sjálfur bezt. Fiskmerkið (19. febr.—20. marz). Þessa vikuna eru það hinir hversdagslegu hlutir, sem munu veita yður mesta gleði. Þér ættuð hið fyrsta að útkljá tilfinningamál nokkurt, sem hefur komið upp milli yðar og persónu nokkurrar, sem yður þykir mjög vænt um. Happatala þessa viku er 99. O © FALKINN 37

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.