Fálkinn - 22.11.1961, Blaðsíða 37
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl).
Þér ættuð ekki að forsmá þá hjálp, sem yður býðst.
Á því leikur enginn vafi, að þetta er í góðu skyni
gert.. Enn fremur munuð þér ná mikilsverðum árangri
í starfi þessa viku og í vikulokin er að vænta all-
skemmtilegra atvika, sem ef til vill munu koma róti
á hug yðar.
Nautsmerkið (21. apríl—20. maí).
Þér ættuð að kosta kapps um að skoða nánar yðar
innri mann. Eins og málin standa nú, veitir yður ekki
. af, að vita eitthvað um sjálfan yður, ekki sízt sakir
þess, að hingað til hafið þér verið allt of sjálfumglað-
ur og yður hefur hingað til skort gagnrýni á yður
sjálfan.
Tvíburamerkið (21. maí—20. júní).
Örlög manna eru margvísleg og enginn getur séð
þau fyrir. Margt mun henda yður í þesesari viku, sem
síðar mun hafa mikil áhrif á allar gerðir yðar. Þér
lendið að öllum líkindum í smáævintýrum undir lok
vikunnar og ástamálin verða ffcunur hagstæð.
Krabbamerkið (21. júní—20. júlí).
Loksins verður gamall draumur að veruleika. Þér
munuö geta not.fært þetta tækifæri út í yztu æsar og
ráðagjörð sú, sem þér höfðuð í huga í þessu sambandi
mun komast í 'framkvæmd og verða yður til mikilla
heilla. Fjárhagslega er vikan góð.
Ljónsmerkið (21. júlí—21. ágúst).
Þessa dagana þurfið þér svo sannarlega ekki að
kvarta, allt leikur í lyndi og ástamálin munu blómstra
og í peningamálunum munuð þér verða mjög heppinn.
Annars ættuð þér að reyna svolítið umburðarlyndi
gagnvart öðrum, enda skuluð þér ekki krefjast. meira
af öðrum en yður sjálfum.
Jómfrúarmerkið (22. ágúst—22. sept.).
Persóna nokkur, sem hefur hingað til ekki þotzt sja
yður, fer allt í einu að gefa yður meiri gaum og
verða alúðleg í framkomu við yður. Enginn vafi leik-
ur á því, að persóna þessi ætlar að hafa eitthvað gagn
af yður og ættuð þér að vera á verði gagnvart. henni.
Vogarslcálamerkið (23. sept.—22. okt.).
Stjörnurnar segja, að þetta verði mjög róleg vika
að öllu leyti. Þér munuð og njóta þessarar hvíldar i
ríkum mæli. Ef til vill munu menn veita yður ein-
hverja upphefð áður en langt um líður, sakir þess að
þér hafið bæði sýnt. dugnað og atorku í starfi.
SpprSdrekamerkiö (23. okt.—22. nóv.).
Ef þér komið einhverri reglu á fjárhaginn, lítur
svo út að þér hafið efni á að veita yður það, sem
yður hefur lengi langað til. Óvænt atvik mun gerast
á föstudag, en gætið þess að láta ekki óvandaðar per-
sónur spila með tilfinningar yðar.
BogmannsmerkiS (23. nóv,-—20. des.).
Samúðin er með yður og hún mun hjálpa yður mikið
í þessari erfiðu aðstöðu, sem þér eruð nú í. En þér
þurfið að gæta þess að fylgjast vel með þróun mál-
anna og láta ekki mótgang á yður fá. Þér munuð
sennilega verða fyrir fjárhagslegu tapi í þessari viku.
Steingeitarmerkið (21. des.—19. jan.).
Þér gætuð látið af þessari smámunasemi, sem hefur
verið öllum til mikils ama. Mjög bráölega fáið þér
verk að vinna, sem mun krefjast allrar yðar kost.-
gæfni. XJndir lok vikunnar mun gamalt vandaniál milli
yðar og vinar leysast á mjög skemmtilegan hátt.
VatnsberamerkiS (20. jan.—18. febr.).
Það eru breytingar á lífi yðar í aðsigi. Það getur
verið, að þær snúist aðallega um starf yðar. Auk þessa
mun margt koma fyrir, sem ýmist mun valda yður
gleði eða depurð. Persónulegt, vandamál, sem kemur
upp í vikunni, leysið hér sjálfur bezt.
Fiskmerkið (19. febr.—20. marz).
Þessa vikuna eru það hinir hversdagslegu hlutir, sem
munu veita yður mesta gleði. Þér ættuð hið fyrsta
að útkljá tilfinningamál nokkurt, sem hefur komið
upp milli yðar og persónu nokkurrar, sem yður þykir
mjög vænt um. Happatala þessa viku er 99.
O
©
FALKINN
37