Fálkinn


Fálkinn - 14.03.1962, Side 12

Fálkinn - 14.03.1962, Side 12
ÞJÓÐVEGURINN var eins og plægður akur. Einu sinni hafði hann verið góður bílvegur milli Dijon og Besancon, en sprengjur og skriðdrekar höfðu í byrj- un stríðsins eyðilagt hann. Nóttin var niðdimm, en rauðum bjarma sló á him- ininn við sjóndeildarhringinn Dijon var að brenna. Það var steypiregn, en ekk- ert syndaflóð megnaði að slökkva eld- inn. Jarðvegurinn var eins og forað hvert sem litið var. Mannfjöldinn dró fæturna upp úr leirnum, steig eitt skref áfram, og sökk aftur í leðjuna. Hægt og hægt mjakað- ist hann þannig áfram eins og hraun- straumur. Alls kyns vagnar með rúm- fötum, húsgögnum og öðru dóti, sigu hægt áfram. Það heyrðust allt í senn: þungar stunur, blót og bænir. Fólkið fálmaði áfram í blindni, týndi hvort öðru, hrópaði út í nóttina, en fékk aldrei rétt svar og aldrei svar frá þeim, sem hrópað var til. Þetta var flótti án nokkurs takmarks í niðamyrkri og forarleðju — flótti frá brennandi stað. Öðru hverju steypti flugvél sér lágt yfir, tók síðan stefnuna beint upp í loft- 12 FÁLKINN ið og var horfin. Forarleðja þeyttist hátt í loft upp og fólkið kastaðist í allar átt- ir og fæst af því hittist aftur. Bifreið kom öslandi í leðjunni. Hún var hlaðin fólki, sem hún hafði tínt upp á leiðinni. Fjölskylda eiganda bifreiðar- innar sat í framsætinu, svo þétt, að ó- skiljanlegt var, hvernig bílstjórinn gat hreyft stýrið. — Ekki fleiri, sagði hann og bandaði með hendinni. Yið getum ekki tekið alla með....... Hann rýndi stöðugt í myrkrið en sá varla hvort hann ók á veginum eða ekki, enda mátti það víst einu gilda. Hann hafði verið umferðar- sali og þekkti vel leiðina. Hann hafði áður komizt í hann krappann og lent í ýmsu en þetta .... hann heyrði konu sína segja: — Það er einhver að gráta. Hann svaraði ekki og þótti þetta raunar kynleg spurning. Hvað heyrðu þau svo sem annað í kringum sig annað en grát, blót og bænir. Þá uppgötvaði hann hvaðan gráturinn barst. Ljós bif- reiðarinnar beindust að barni, sem sat beint fyrir framan bílinn. Átti hann að aka áfram? Hann hafði ekið yfir svo Með tvæ margt, sem var mjúkt eins og jörðin, en fyrst hann hafði séð barnið .... Hann beygði hjá og konan hans dró það inn í bílinn. — Það er súlka, sagði hún Hún skaut barninu aftur fyrir sig meðal rúmfata og fólks. Síðan sagði hún sjálfkrafa eins og hún hafði svo oft sagt áður þennan dag: — Gráttu ekki. Við reynum að komast til Besancon og þaðan til Sviss. Og hún bætti við í huganum: Þar er ekkert stríð. 'A' Minningarnar um hinn hræðilega flótta dofnuðu. Hún sá fyrir sér í óra- fjarlægð mannfjöldinn, sem þumlung- aði sig áfram í forarleðjunni skref fyrir skref og hvernig hún var dregin upp úr foraðinu og myrkrinu og fleygt inn í skítugan bíl. Hún minntist einnig þess dásamlega andartaks, þegar bílinn fór yfir landamærin. Þá ríkti undarleg þögn, þrungin gleði meðal fólksins í bif- reiðinni. Sprengjuárásirnar í Frakklandi heyrðust ekki framar. Lífi þeirra var borgið. Búðir Rauða krossins voru para- dís á jörðu í augum þessa fólks. Hún fékk að fara í bað og hún fékk hreint rúm að hvílast í. Hún fékk mat eins og hún gat í sig látið, og hvarvetna var fólk vingjarnlegt við hana. Og hér var ekk- ert stríð. Hún sagðist vera tólf ára gömul og heita Denise Gaillard. Það var þegar í stað farið að leita uppi fjöl- skyldu hennar. En hún fannst hvergi. Allir hennar nánustu voru horfnir í hið stóra EKKERT, sem stríðið kastar mönnum miskunnarlaust í, rétt eins og þeir séu einskis virði og engum til gagns. — Ég held, að bezt væri, að madame Villefrance fái Denise sagði forstöðu- konan. — Hún hefur misst mann sinn og tvo syni og hún hefur beðið um að fá að taka að sér litla stúlku. Denise mun líða vel hjá henni. Madame Ville- france býr í Montpellier. Hún á þar sitt eigið hús. ★ í byrjun gekk hún um steinþegjandi. En hún var samt ekki óhamingjusöm. Þrátt fyrir góðan aðbúnað í Rauðakross- búðunum, þá hafði hún þráð að eignast heimili og hana hafði einmitt alltaf dreymt um að búa í húsi eins og þessu. En ef til vill vonaði hún enn þá, að for-

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.