Fálkinn


Fálkinn - 14.03.1962, Blaðsíða 32

Fálkinn - 14.03.1962, Blaðsíða 32
A FULLRI FFIIÐ Frh. af bls. 15 irtækisins. Rétt eftir stofnun Bæjarút- gerðarinnar tók hún að sér alla kola- verzlun í Hafnarfirði, sem var mikið starf, þar sem öll hús notuðu þá kol til upphitunar. í stríðinu breyttist hagur fyrirtækis- ins mjög til hins betra. Á tíu ára afmæl- inu 1941 gaf það stórfé til ýmissa fram- kvæmda í bænum. Þá lagði Bæjarút- gerðin fram tæplega helming kostnaðar við byggingu sjö vélbáta, sem gerðir hafa verið út frá Hafnarfirði. Bygging- ar húsa yfir atvinnureksturinn var og mikið átak. Þessi upptalning gefur þó litla hug- mynd um umsvif Ásgeirs á þessum ár- um. Hann var á ferli seint og snemma, hvetjandi og lítandi eftir að allt færi vel úr hendi. Hann fylgdist með upp- skipun og útskipun og sinnti þörfum skipshafna og skipa er þau voru í höfn. Ásgeir var víkingur til vinnu, þrek- mikill og áræðinn og hélt upp á þá menn sem sýndu trúmennsku og dugn- að í störfum sínum, en var lítið um hina gefið, sem lítt lögðu sig fram. Einu sinni er hann var spurður um mann, sem hafði verið háseti á einum togaranum svaraði Ásgeir snöggt: „Á- gætur á Birninum, Ómögulegur til sjós.“ (Hótel Björninn í Hafnarfirði). Fyrir stríð veiddu togararnir aðallega í salt, þótt stöku sinnum væri siglt með aflann ísaðan. Mikil vinna var við fiskinn í landi og kvenfólk og ungling- ar unnu við fiskþurrkun. Saga er til af því, er fólkið hafði unnið lengi á fisk- reitnum sólheitan dag og var langt kom- ið að taka saman, sást bíll koma brun- andi og þekktu menn að þar fór forstjór- inn Ásgeir Stefánsson. Hann stanzaði og snaraðist út með fullan kassa af appelsínum, sem hann útdeildi á reitn- — Dauöinn viö stýrið, er sagt, þegar kvenfólkiö ekur. Hvaö mætti þd segja um yöur? 32 FÁLKINN um. Slík hugulsemi ásamt mörgu öðru gerði hann vinsælan meðal fólksins. Velmegun var meiri í Hafnarfirði fyr- ir stríð en víðast hvar annars staðar hér á landi og má óefa þakka hana þeim Bæjarútgerðarmönnum, Ásgeiri og fé- lögum hans og má þar helzt nefna Emil Jónsson, Kjartan Ólafsson, Guð- mund Gissurarson og Björn Jóhannes- son. Ásgeir varð bæjarfulltrúi Alþýðu- flokksins 1942—1950 og varamaður í mörg ár. Þegar skipað var í hina frægu nefnd, ,,Rauðku“ árið 1944 var Ásgeir skipað- ur í hana og í stjórn Eimskipafélags ís- lands hefur hann verið í mörg ár. Bæði Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, Víf- ill og Hrafnaflóki, sem Ásgeir stjórn- aði, voru mjög heppin á stríðsárunum. Skipin sigldu án þess að hlekkjast á og skiluðu miklum verðmætum á land. Er endurnýjun skipaflotans hófst eft- ir stríð, lét Bæjarútgerðin smíða togar- ann Júlí. sem kom til Hafnarfjarðar 1947 og nýtt fyrirtæki, sem Ásgeir og félagar hans stofnuðu lét byggja togar- ann Bjarna riddara, sama ár. Athafnasaga Ásgeirs G. Stefánssonar verður ekki rakin hér lengur að sinni. Hér er á ferðinni einstakur framtaks- maður, dugnaðarforkur sem ekkert stendur fyrir, en jafnframt höfðingi í lund, bóngóður og hjartahlýr og trú- mennskan sjálf í öllum sínum störfum. Sv. S. LITLA SAÍ.A X Frh. af bls. 23 nokkur hús? Hvernig voru þau? Með kúptu þaki? Gagnsæ? Segðu mér þó . . . — Ég gat farið til hennar, tekið hana í faðm mér og knúskysst hana. Hjarta hennar barðist svo . . . — Voru dýr þarna uppi? Óx gras þarna? Voru bílar þarna? Hvernig var þarna umhorfs? — Við fórum saman til Zwaqulux- qucuzx, þar bjó hún á einum bakka ár- innar Cxuqxczrtuwzawmn ásamt syst- ur sinni Waxtrpuczawq og litla bróður sínum Xqatpruqtrugt. En hvað hún skemmti sér, þegar hún heyrði að ég hét Pete. Hún gat alls ekki borið það fram, enda þótt hún marg vefði tung- unni og reyndi á allan mögulegan hátt að bera það fram. Þeir hafa svo undar- leg nöfn þarna á mánanum. Þeir heita alls ekki eins og við ... — Ég þykist skilja. sagði dr. Hay- wood, en áður en þér haldið áfram sögu yðar segið mér nú, hvernig það vildi til, að þér fenguð minnið aftur. Pete benti á spjaldið. — Þegar ég stóð allt í einu augliti til auglitis við nafnið hennar, mundi ég allt saman. En segið mér nú læknir, hvernig í fjandanum gátuð þér vitað að hún hét ATPRBXWYOMNLQKPZ ? Willy Breinholst. Tvœr liendur tómar Framh. af bls, 23 — Hérna, sagði hún. — Þið viljið kannski vera ein um stund. Denise kem- ur að vörmu spori. Hún ætlar á dans- leik í kvöld og . .. Hún hætti í miðri setningu. Hvað mundi gerast í kvöld? Unnusti Denise ætlaði að koma og sækja hana, en hvað mundi nú gerast? Veröld þeirra beggja var í þann veginn að gliðna í sundur. Hún hraðaði sér inn í sitt herbergi og læsti á eftir sér. Gömlu hjónin litu í kringum sig í herberginu. Þetta var stórt herbergi með svölum og fögru útsýni yfir blóm- skrýddan garðinn. Eikarskrifborð, bæk- ur, blóm, ljósmyndir . . . Ljósmyndir! Dökkhærð, glaðleg stúlka, ung kona í sportfötum, í sumar- kjól, í pels. Ungur maður var með henni á einni myndinni. Denise ætlaði á ball í kvöld ... — Sjáðu sagði konan allt í einu, og benti á rúmið. — Sjáðu! Þarna hékk glitrandi fallegur ball- kjóll, svo skrautlegur að gamla konan hafði aldrei séð neitt slíkt áður. Það hlaut að hafa verið erfitt að sauma svona kjól og dýrt efnið í hann. Einn ve'ggurinn var með innbyggðum skáp- um og þar var allt þakið í skínandi speglum. Spegillinn í herbergiskytrunni heima var flekkóttur. Þau sögðu ekkert. Þau sátu kyrr, unz maðurinn sneri sér við og tók eina mynd af borðinu. Falleg stúlka í pels og ungur maður víð hlið hennar. — Komdu, sagði hann og reis á fætur. Hún svaraði játandi og fylgdi honum. Þau fjarlægðust hægt, eins og tveir skuggar, sem hnigandi sól flytur lengra og lengra burt, — fjarlægðust hægt og hægt og hurfu eins og þau hefðu aldrei verið til.. Rylting í Borgarfirði Frh. af bls. 21 ákafur byltingarsinni, þegar hann fékk dágóðan bitling. Þorsteinn Þorsteinsson lék Friðþjóf frænda, sendi- og samninga- mann Reykvíkinga. Maríu Önnu lék Anna Magnúsdóttir, en hina tvo nektar- nýlendubúa, sem ullu hvað mestri kát- ínu meðal viðstaddra, léku þeir Þor- valdur Guðnason og Helgi Hannesson. Skrifstofustúlku lék Guðrún Þorsteins- dóttir af prýði. Ekki vitum við annað en allt sé með kyrrum kjörum í Borgarfirði og ekki getum við nefnt þess dæmi, að slíkir at- burðir hafi gerzt í þessari friðsælu sveit, enda hefur löngum verið talið, að Borgfirðingar væru spektarmenn, þótt af óeirðaseggjum séu kynjaðir langt fram í ættir.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.