Fálkinn


Fálkinn - 14.03.1962, Side 35

Fálkinn - 14.03.1962, Side 35
Slfi I tymmk <p Hrútsmerkið (21. marz—20. apy'íl). Veljið þessa viku til þess að opinbera það, sem yður hefur lengi legið á hjarta. Möguleikarnir á þessu sviði eru sem- stendur einstæðir, sérstaklega fyrir þá, sem fæddir eru 15.—20. apríl. Þetta verður til mikils gagns. Nautsmerlcið (21. apríl—22. maí). Þér hafið ríka ástæðu til að gleðjast. Þér hafið bar- izt. hetjulega við mikla erfiðleika og farið með sigur af j hólmi. Þér eigið því fyllilega skilið, að aðstaða yðar f breytist til batnaðar, enda mun svo verða. Tvíburamerkið (23. maí—21. júní). Sannkölluð óskavika fyrir alla þá, sem fæddir eru milli 10. og 21. júní. Meðan aðrir tapa munuð þér vinna glæsilegan sigur. Þessi vika er vel falinn til nýj- unga og breytinga. Krabbamerkið (22. júní—22. júlí). í einkalífinu, sérstaklega á sviði ástarinnar, verður gæfan yður mjög hliðholl. Einnig getið þér glatt. yður við þá tilhugsun, að þér eigið nú orðið álitlegan hóp góðra vina. Það sjáið þér gleggst á hinum tíðu heim- sóknum þeirra í þessari viku. Ljónsmerkið (23. júlí—22. ágúst). Þér hafið unnið vel og samvizkusamlega að undan- förnu og eigið þess vegna fyllilega skilið að hvíla yður ofurlítið. Þér gerið það bezt með því að skipta um starf þ. e. a. s. grípa til tómstundastarfa yðar um stund unz alvara lífsins tekur aftur við. Jómfrúarmerkið (23. ágúst—22. sept.). Þér verðið að reyna að laga yður eftir ástæðum og taka hverjum hlut eins og hann kemur fyrir. Á fimmtu- daginn er sérstaklega hætt. við, að þér lendið í leiðind- um vegna misskilnings. Þér mættuð gjarna treysta bet- ur samstarfsmönnum yðar. Vogarskálarmerkið (23. sept.—22. okt.). Vikan verður geysilega góð og nær hámarki sínu í vikulokin. Manneskja, sem eitt sinn var yður meira virði en allt. annað í þessum heimi, verður allt í einu aftur á vegi yðar og þið munuð eiga saman skemmtileg- ar stundir, en dálítið hættulegar og varasamar. Sporðdrekamerkið (23. okt.—21. nóv.). Þér virðist fá jafnan skammt af meðlæti og mótlæti þessa viku. í einkalífinu leikur allt. í lyndi, en á vinnu- staðnum megið þér vara yður. Þér hafið verið gagn- rýndur harðlega að undanförnu og eiga keppinautar yðar þar hlut að máli. Bogmannsmerkið (22. nóv.—22. des.). Stórkostlegt tækifæri býðst öllum þeim, sem fæddir eru 17.—22. desember. Yður skal ráðlagt að nota þetta tækifæri út í yztu æsar, því að ekki er víst að það bjóð- ist aftur. Óvænt tíðindi berast á fimmtudag. Steingeitarmerkið (23. des.—20. jan.). Þér munuð vissulega ekki hafa neina ástæðu til að kvarta yfir þessari viku. Á sviði einkalífsins leikur allt í lyndi aldrei þessu vant. og það, sem er enn ólíklegra: Yður mun græðast talsvert fé í þessari viku. Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.). Þessi vika verður erfið og það mun liggja við, að erfiðleikarnir dragi úr yður allan kjark. En allt tekur enda og þér verðið að taka á öllum kröftum yðar og þrauka af þennan tíma eins og yður er frekast unnt. Fiskamerkið (20. febr.—20. marz). Allt gengur að óskum og þér verðið í mjög-góðu skapi og vel upplagður t.il vinnu. Sérstaklega er þessi vika hagstæð fyrir þá, sem eru í ástarhugleiðingum. Það sem gerist á því sviði verður ekkert stundarfyrirbæri. FALKINN 35

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.