Fálkinn - 14.03.1962, Síða 35
Slfi
I
tymmk <p
Hrútsmerkið (21. marz—20. apy'íl).
Veljið þessa viku til þess að opinbera það, sem yður
hefur lengi legið á hjarta. Möguleikarnir á þessu sviði
eru sem- stendur einstæðir, sérstaklega fyrir þá, sem
fæddir eru 15.—20. apríl. Þetta verður til mikils gagns.
Nautsmerlcið (21. apríl—22. maí).
Þér hafið ríka ástæðu til að gleðjast. Þér hafið bar-
izt. hetjulega við mikla erfiðleika og farið með sigur af j
hólmi. Þér eigið því fyllilega skilið, að aðstaða yðar f
breytist til batnaðar, enda mun svo verða.
Tvíburamerkið (23. maí—21. júní).
Sannkölluð óskavika fyrir alla þá, sem fæddir eru
milli 10. og 21. júní. Meðan aðrir tapa munuð þér
vinna glæsilegan sigur. Þessi vika er vel falinn til nýj-
unga og breytinga.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
í einkalífinu, sérstaklega á sviði ástarinnar, verður
gæfan yður mjög hliðholl. Einnig getið þér glatt. yður
við þá tilhugsun, að þér eigið nú orðið álitlegan hóp
góðra vina. Það sjáið þér gleggst á hinum tíðu heim-
sóknum þeirra í þessari viku.
Ljónsmerkið (23. júlí—22. ágúst).
Þér hafið unnið vel og samvizkusamlega að undan-
förnu og eigið þess vegna fyllilega skilið að hvíla yður
ofurlítið. Þér gerið það bezt með því að skipta um starf
þ. e. a. s. grípa til tómstundastarfa yðar um stund unz
alvara lífsins tekur aftur við.
Jómfrúarmerkið (23. ágúst—22. sept.).
Þér verðið að reyna að laga yður eftir ástæðum og
taka hverjum hlut eins og hann kemur fyrir. Á fimmtu-
daginn er sérstaklega hætt. við, að þér lendið í leiðind-
um vegna misskilnings. Þér mættuð gjarna treysta bet-
ur samstarfsmönnum yðar.
Vogarskálarmerkið (23. sept.—22. okt.).
Vikan verður geysilega góð og nær hámarki sínu í
vikulokin. Manneskja, sem eitt sinn var yður meira
virði en allt. annað í þessum heimi, verður allt í einu
aftur á vegi yðar og þið munuð eiga saman skemmtileg-
ar stundir, en dálítið hættulegar og varasamar.
Sporðdrekamerkið (23. okt.—21. nóv.).
Þér virðist fá jafnan skammt af meðlæti og mótlæti
þessa viku. í einkalífinu leikur allt. í lyndi, en á vinnu-
staðnum megið þér vara yður. Þér hafið verið gagn-
rýndur harðlega að undanförnu og eiga keppinautar
yðar þar hlut að máli.
Bogmannsmerkið (22. nóv.—22. des.).
Stórkostlegt tækifæri býðst öllum þeim, sem fæddir
eru 17.—22. desember. Yður skal ráðlagt að nota þetta
tækifæri út í yztu æsar, því að ekki er víst að það bjóð-
ist aftur. Óvænt tíðindi berast á fimmtudag.
Steingeitarmerkið (23. des.—20. jan.).
Þér munuð vissulega ekki hafa neina ástæðu til að
kvarta yfir þessari viku. Á sviði einkalífsins leikur allt
í lyndi aldrei þessu vant. og það, sem er enn ólíklegra:
Yður mun græðast talsvert fé í þessari viku.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.).
Þessi vika verður erfið og það mun liggja við, að
erfiðleikarnir dragi úr yður allan kjark. En allt tekur
enda og þér verðið að taka á öllum kröftum yðar og
þrauka af þennan tíma eins og yður er frekast unnt.
Fiskamerkið (20. febr.—20. marz).
Allt gengur að óskum og þér verðið í mjög-góðu skapi
og vel upplagður t.il vinnu. Sérstaklega er þessi vika
hagstæð fyrir þá, sem eru í ástarhugleiðingum. Það
sem gerist á því sviði verður ekkert stundarfyrirbæri.
FALKINN
35