Fálkinn - 15.08.1962, Qupperneq 7
Aukin dýrtíð og svínarí.
Kæri Fálki! — Ég skrifa þér,
af því að ég get ekki orða
bundizt yfir þeim ósköpum,
sem dunið hafa á undanfarn-
ar vikur. Fyrst var nú það,
þegar brennivínið hækkaði, og
svo það, þegar tóbakið hækk-
aði, en hvorutveggja nota ég
mikið. Svo voru það þjónarn-
ir á veitingahúsunum, sem
ætluðu að fara í verkfall. Þeir
eru áreiðanlega með tekju-
hæstu mönnum hér nú, enda
held ég að álagning á vínveit-
ingahúsum sé hvergi í nokkru
landi eins há og hér. En það
var ekki þetta, sem ég ætlaði
að ræða hér um, heldur hitt,
að ég fór niður í eina sj oppuna
og ætlaði að kaupa mér nokkr-
ar sigarettur í lausu. Þá er mér
sagt, að hver sígaretta kosti
eina krónu tuttugu og fimm
aura, takk. Það finnst mér satt
að segja full mikil álagning,
og ætti fólk ekki að láta bjóða
sér þetta. Hvað segir verðlags-
stjóri um þetta mál
Nautnaseggur.
Svar:
Það er mikið verk að taka
utan af sígarettupakka, og
hvert handtak er dýrt nú á
dögum. Ef til vill fer verðlags-
9tjóri á stúfana og athugar
þetta, ef það er ekki búið að
leggja embœttið ni'ður.
Krossgátukeppnin.
-----— Mikið hef ég gaman
af þessari keppni. Krossgátur
eru mitt uppáhald. En eitt er
áreiðanlegt: Það hafa ekki all-
ir gaman af því að ráða kross-
gátur. Það ættuð þið að at-
huga í framtíðinni.
K.
Svar:
Blaðið vill minna lesendur
á, að skila lausnunum tíman-
lega. Eins og venjulega er
fresturinn þrjár vikur. Sendið
lausnirnar, merktar Kross-
gátukeppnin, í pósthólf 1411,
Reykjavík.
Sorphreinsun.
--------Nú, þegar tauga-
veikibróðir er að leika sér í
borginni og fólk er áminnt um
að gæta hreinlætis til að verða
ekki leiksoppur hans, þykir
mér rétt að benda á það ó-
fremdarástand, sem ríkir í
sorphreinsunarmálum borgar-
innar. Nú hafa tunnurnar hjá
mér, þ.e.a.s. tunnurnar við
húsið mitt, staðið óhreyfðar og
fullar í næstum mánuð. Ég
veit ekki, hvort yfirvöld heil-
brigðismálanna hafa gætt að
þessu atriði, og ég er viss um,
að af þessu stafar mikil hætta.
Hreinlátur.
Svar:
Við vonum, að tunnurnar
verði tæmdar hið bráðasta. Ef
til vill stafar þessi dráttur af
því, að starfsmenn sorphreins-
unarinnar eru í sumarleyfi og
því ekki nógir menn til að
inna þetta mik\a starf afhendi.
Kennsla og menntun.
Kæri Fálki! — Ég ætla að
biðja þig um að segja mér,
hver helztu skilyrðin eru fyrir
því að maður hafi réttindi til
að kenna á píanó. Ef maður
nær landsprófi (framhalds-
einkunn), getur maður þá
ekki farið beint í samvinnu-
skólann án þess að hafa gagn-
fræðapróf, og hvað heldur þú
að kosti yfir veturinn þar? Og
má maður vera með plattfót,
ef maður ætlar að verða flug-
freyja? Ég vona, Fálki minn,
að þú svarir þessu.
Kær kveðja.
Einn lesandinn.
Svar:
Til þess að kenna píanóleik,
er fyrsta skilyrðið að kunna
vel hljóðfœraleik og auðvitað
vera vel að sér í tónfræði.
Enn fremur hafa flestir, sem
kenna hljóðfœraleik, lokið
námi í tónlistarskólanum eða
stundað nám hjá einhverjum
frægum og snjöllum píanóleik-
ara. Hvað hinna spurningunni
viðvíkur, þarf sérstakt, próf
upp í samvinnuskólann. Er
sótt um inntöku að vori, en
síðan þreyta umsœkjendur
inntökupróf að hausti. Nánari
upplýsingar, bœði um kostn-
að og annað, gefur Frœðslu-
deild SÍS. — Ilsig hlýtur að
sjálfsögðu að vera mikill bagi
þeim, sem mikið þurfa að
ganga, og í flugvélum þarf að
ganga um beina. Hins vegar
getum við ekki ímyndað okk-
ur. annað, en flugfélögin ráði
flugfreyjur með ilsig, ef þœr
hafa fallega fœtur að öðru
leyti, og alla þá hœfileika, sem
starfið krefst.
Sá bezti, sem ég hef heyrt.
Kæri fálki. — Ég verð endi-
lega að hrósa ykkur fyrir
brandarana, sem undanfarið
hafa birzt undir „Þeim bezta“.
Þessi um golfleikarann var
alveg úrvalsbrandari og hló
ég alveg heilt kvöld að
honum.
Þ.
/iiíi/ Ðial Ðial Ðiat
Byrjið daginn með BIAL
Endið daginn með DIAL
Heildsölnb. KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRD
REYKJAVÍK
atíí CÍf@l
FALKIMN
ÞVOTTA
DAGUR
VERÐUR
HVÍLDAR
DAGUR
draumar þínir verða að veruleika með DAN RIVER REKKJULINI — að-
eins stinga þvi í þvottavélina — það mun verða hvítt eins og snjór allan
sinn endingartima — og að auki — þú getur notað þurkara — það er eina
línið sem hægt er að vélþurka án þess að hrukkist — búðu um rúmið að
morgni og taktu eftir hvernig hægt er að hrista hrukkur næturinnar úr Ifn-
inu í einu vetfangi.. vegna þess að það er hrukkuvarið — WASH’N WEAR
DAN RIVER SÍ-SLÉTT
REKKJU LÍN
íslenzkar húsmæður geta nú eignast þetta heimsþekkta rekkjulín því að
DAN RIVER REKKJULÍN, barna og fullorðinsstærðir, fæst nú í íslenzkum
sérverzlunum.