Fálkinn


Fálkinn - 15.08.1962, Blaðsíða 9

Fálkinn - 15.08.1962, Blaðsíða 9
með þeim til þess að taka hestana, eins og áður segir. Illa gazt mér að þessari uppástungu sýslumanns og bölvaði samferðarmönn- um hans í hljóði, því að nær hefði verið, að einhverjir skipverja hefðu fengið að sitja klárana niðureftir, enda kom það á daginn. En við þetta varð að sitja. Þeir fara svo, en við leggjum af stað gangandi með skipverja í roki og myrkri. Áður en lengi er gengið kemst ég að því, að matsveinninn er danskur. Er mér það mikil harmabót, því að dönsku skildi ég, en ensku ekki. Ég gekk á undan, en Sölvi og Stefán reka lestina, og eiga að gæta þess, að enginn heltist úr lestinni, en sú varð raunin, að skipsmenn vildu sumir heillast til að leggjast niður, þar sem leiti bar á milli, og varð því að reka þá aftur á fætur. Skipverjar voru allir meira og minna blautir, svefnlausir og alldasaðir. Gengur nú allt eins og í sögu um sinn, en þegar við erum komnir nokkuð langt inn fyrir Fagranes, inn á svo- nefndar Skriður, fleygir skipstjóri sér niður, segist ekki geta gengið lengra og kennir stígvélum sínum um. Fer ég nú til Sölva, og býðst hann til að hafa skóskipti við skipstjóra, og er það með þökkum þegið. Síðan er aftur lagt af stað út í myrkr- ið, en þegar við förum fyrir ofan Meyj- arland, leggast þeir fyrir tveir eða þrír og segast þurfa að hvíla sig, — þeir geti ekki gengið lengra. Okkur félög- um þótti seint sækjast ferðin, enda var sýnt, að við yrðum alla nóttina að berj- ast móti veðrinu, ef þessu færi fram til lengdar. Verður því að ráðum, að þeir Stefán og Björn fara heim í Meyjaland til að vita, hvort Sigurfinnur bóndi geti ekki lánað hesta. En hann er þá ekki heima og ekki annað hesta heima við en meri ein grá. Þeim Stefáni þykir betra að fá merina en ekki og koma með hana. Á nú sá, sem verst er á sig kominn að sitja hana, og skipstjóri verður fyrir valinu. Fannst brátt á að hann var ekki laginn reiðmaður, og varð ég því að teyma undir honum, og fórum við fyrir, en piltarnir sem varð- menn um hópinn til þess að gæta þess, að enginn leggist. Þegar við förum frá Innstalandi, reka skipverjar augun í ljóstýru og sjá móta fyrir bæjarhúsunum. Kemur þá „túlk- urinn“ á vettvang og spyr mig, hvort þetta sé hundahús, en ég sagði sem var, og skildist mér á honum, að þeim fé- lögunum þættu þetta firna lágkúrulegir mannabústaðir. En ekki hafði þessi frétt fyrr borizt um hópinn, en einhvers konar æði grípur alla, og taka þeir beina stefnu heim að Innstalandi og verður ekki við ráðið. Ég verð því nauðugur viljugur að teyma Gránu með skipstjóra á eftir. Matsveinninn lét á sér skilja, að þá langaði í nýmjólk, og var ekkert til fyr- irstöðu að uppfylla þá ósk þeirra. Var mjólkin borin þeim í tveimur fötum og fylgdi bolli með, og allir drukku lyst sína. Mannskapurinn virðist nú hinn hress- asti, og var enn af stað haldið. Þegar við nálgumst svonefdan Stórhól, tek ég eftir því, að Grána gamla er orðin litlu ferðmeiri en skipverjar og vill, að því er mér virðist, láta fyrir berast þar sem hún er komin, rétt eins og þeir. Mér gremst þetta háttarlag hennar og tjái henni með nokkrum velvöldum orðum þá skoðun mína, að henni sé eins gott að taka okkur fyrirliðana til fyrir- myndar, ella muni Sigfinnur bóndi fá að heyra hið sanna um kosti hennar. Tek ég síðan þétt í tauminn. Grána lötrar af stað, en fer hæga fetið og hef- ur versnað en ekki batnað við ræðu mína. Ég sný mér þá enn við, rýni út í myrkrið og huga grannt að öllu, og sé þá mér til reiði og undrunar, að tveir skipverjar hanga í reiðanum og láta merartruntuna draga sig. Hópurinn er stöðvaður, og ég kalla á matsveininn og bið hann segja skip- stjóra frá þessu og það með, að þetta geti ekki svo til gengið. Skipstjóri fer þá af baki, en tveir fyrrverandi tagl- hnýtingar eru látnir sitja á Gránu til skiptis, og þykir henni sem sitt ráð hafi vænkast — eða svo virtist mér á gangi hennar. Þannig var síðan haldið áfram að Gönguskarðsárbrú, en þá voru skip- verjarnir tveir mjög farnir að hressast, og því fór skipstjóri þar á bak aftur, og var nú skammt eftir niður eftir og bar ekkert til tíðinda þann spöl sem eftir var. Við komum til Sauðárkróks klukk- an tvö um nóttina eftir að ég hygg sex tíma ferð frá Fagranesi, þótt ekki sé talin nema tíu kílómetra leið milli Fagraness og Sauðárkróks. Þegar við héldum inn í bæinn, var templarahúsið allt uppljómað og matur á borð borinn, og var skipverjum þarna veitt af rausn. Daginn eftir var haldið sjóréttarpróf, og var ekkert sögulegt við það. Veður hafði beytzt mjög til hins betra um nótt- ina. Var komið logn og gott veður. Skipstjóri vildi þegar fara að skipi sínu og freista þess að bjarga því af skerinu, enda voru skipverjar allir hressir vel og hafði engum orðið alvarlega meint af volkinu. Ég legg því af stað aftur, fæ mér aðra háseta og fer með skipshöfnina alla á róðrarbát. Þegar út eftir kemur, er ekki annað sýnna en skipið sé kyrrt og allt með sömu ummerkjum og við skildum við það og enginn var í því sjórinn. Við förum að athuga allar aðstæður og komumst að raun um að skipið sitji á sandhól inn af skerinu. Spurði ég skip- stjóra, hvort hann vildi ekki fá báta innan af Sauðárkróki til þess að létta skipið, en ekki var við það komandi. Hann réð af að fara með annað akkerið vestur af skerinu og reyna síðan að draga skipið vestur af því með spilinu. Ekki tókst það því að allt slitnaði við átakið, og liggur víst akkerið þar út frá enn í dag. Ég segi við skipstjóra, að ekki sé til nokkurs hlutar að reyna að losa skipið fyrr en með flóði um mið- nættið og leggja þá akkerið austur af skerinu og ná skipinu þá leiðina. Skip- stjóri fellst á þessa uppástungu og bíð- um við kvölds. Um miðnættið höfum við komið akkerinu út og nú er önnur til- raun gerð. Skipið tekur tvo kippi — og er laust. Aldrei hef ég fengið betri þakkir á ævi minni en hjá þessum skipstjóra þá. Var hann svo glaður, að mér þótti ekki við hóf. Fór hann með okkur niður í skip og veitti okkur vel. Þar dró hann upp myndir af konu sinni og börnum og sýndi mér og kvaðst mundu segja þeim frá, hversu vel við hefðum reynzt þeim. Bað hann mig að lokum að þiggja kol í bátinn, eins og hann gæti borið, Framhald á bls. 39. Hvað hafði Euripides í lest- inni, sem engiitn mátti sjá? - Frásögn af strandi ensks tog- ara við Skagafjörð 1907. PÁLKINN 9

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.