Fálkinn - 15.08.1962, Side 18
FÁLKINN
ræðir við Indriða G. Þorsteinsson, rithöf.
SALLANDS-
INSIBREKKU
ANDLITINU
TEXTI: □LAFLIR JDNSSDN - MYNDIR: JDHANN VILBERG
BLÁSTÖR var ein fyrsta sagan sem ég
skrifaði. Þegar ég var um tvítugt var í
mér mesta löngun að skrifa sögur, og
ég var stundum að krota þetta fjórar
eða fimm síður, eitthvað í söguátt, og
safnaði þessu svo ofan í skúffu og
geymdi það. Blástör var sem sagt ein
af fyrstu sögunum, vitanlega með öllu
ómerkileg, en þegar ég ætlaði loksins
að fara að henda þessu rubbi þá datt
mér reyndar eitthvað nýtt í hug, og það
fór svo að ég skrifaði söguna alveg upp
á nýtt. Þetta var árið 1951. Nú er frá
því að segja að ég hef ævinlega átt held-
ur stóran og fjölbreyttan kunningjahóp,
en það fólk sem ég umgengst — og
umgekkst á þessum árum — er kannski
ekki sérlega bókmenntalega sinnað. Og
mikið var hlegið þegar það kvisaðist að
ég hefði sent þessa sögu í verðlauna-
keppni Samvinnunnar sem þá var á
döfinni í fyrsta skipti. Sá gerir nú ekki
stórar rósir, sögðu menn upp úr hlátr-
inum og hlakkaði í þeim. Samt tókst
svo til að sagan bar sigur úr býtum í
keppninni og vakti meira að segja tals-
verða athygli. Menn töluðu um sög-
una, og um Blástararskáldið, og sumir
fóru jafnvel að yrkja vísur um þetta
skáldmenni. Það sem ég skrifaði næst
á eftir var víst mest til að losna undan
þessari nafnbót.
„BLÁSTARARSKÁLDIГ — það er
auðvitað Indriði G. Þorsteinsson, rit-
höfundur og ritstjóri Tímans. Fálkinn
gerði Indriða heimsókn þar sem hann
býr við konu og börnum í nýju sam-
býlishúsi við Stóragerði í Reykjavík og
sér út á nýlagða Miklubraut með sí-
dynjandi umferð. Indriði tók því ljúf-
mannlega að spjalla við okkur um sinn
um skáldskap og pólitík, og það sem
hér fer á eftir er eftir honum haft, laus-
lega að vísu þó ræðan standi í fyrstu
persónu og viðtalsmynd. Og Indriði
heldur áfram að segja frá sinni fyrstu
sögu og fyrstu bók:
Indriði G. Þorsteinsson er fæddur að Gilhaga í Lýtingsstaðahreppi, Skaga-
firði, 18. apríl 1926. Hann stundaði nám í Laugarvatnsskóla 1941—42, en
hafði áður setið fyrsta hekk Menntaskólans á Akureyri. 1951 bar Indriði
sigur úr býtum í smásögukeppni Samvinnunnar með sögunni Blástör, sem
gerði höfund sinn landsfrægan á einni nótt. Sama ár réðist Indriði blaða-
maður hjá Tímanum og hefur stundað blaðamennsku síðan, en árin næstu
á undan hafði hann verið lausamaður á ýmsum stöðum, m. a. stundað leigu-
akstur um skeið, svo sem kunnugt er af verkum hans. Um áramót s.I. gerð-
ist Indriði einn af ritstjórum Tímans. — Indriði er kvæntur Þórunni Frið-
riksdóttur úr Reykjavík, og eiga þau hjón þrjá syni, hinn elzta fimmvetra,
hinn yngsta hálfs annars árs.
18
FÁLKINN