Fálkinn


Fálkinn - 15.08.1962, Síða 26

Fálkinn - 15.08.1962, Síða 26
Ekki fjörefnaskortur, heldur skökk hirðing eyðileggur neglurnar. 8 góð ráð til að fá fallegri neglur. Álitið er að um 65% af konum séu með klofnar eða flagn- aðar neglur. Flestir kenna því fjörefna- eða kalkskorti. En því eru þá ekki þessar sömu konur allt að því sköllóttar? Neglurnar eru eins og hárið úr horni. Hirðingin hefur því allt að segja, því ekki verður því neit- að að neglurnar verða fyrir miklu hnjaski daglega. 1. Látið stálnaglaþjölina hverfa, hún kiýfur hin þrjú lög sem nöglin er búin til úr. Notið sandpappírsþjöl og sverf- ið frá hliðunum að miðju naglarinnar. Sverfið aðeins i eina átt, svo naglalögin flagni ekki hvert frá öðru. 2. Sverfið ekki neglurnar niður með hliðunum, sem eiga að styðja við nöglina og varnar því að neglurnar brotni. Munið að hvassar neglur eru ekki í tízku lengur, þykir jafnvel miður háttvíst að hafa þær þannig. Þær eiga að vera fallega ávalar, hafa lögun naglarinnar við naglrótina. 3. Notið aldrei acetone, ekki heldur með olíu í. Acetone getur jafnvel eyðilagt hina sterkustu nögl. Notið aðeins naglalakkseyðir, sem örugglega inniheldur ekki Acetone. Lesið á miðana, áður en þér kaupið vöruna. 4. Ýtið naglbandinu varlega tilbaka, annars er hætta á að nöglin geti skemmzt. Notið handklæðið til þess, í hvert sinn, sem hendur eru þvegnar. Við handsnyrtingu er not- aður orangepinni, sem um er vafinn bómullarhnoðri. 5. Lakkið neglurnar og á réttan hátt, þá verða þær sterk- ar eins og málaður húsgagnaflötur. Lakkið vel neglurn- ar. Fjarlægið alla fitu af nöglunum, áður en lakkað er, annars flagnar lakkið af. Burstið neglurnar fyrst með sápu, þerrið þær síðan vel. 6. Grunnmála þarf neglurnar, eins og annað sem málað er. Þá tollir lakkið betur. Kaupið undirlakk, sem hæfir nagl- gerðinni, það á að fást bæði fyrir sterkar og veikar neglur. 7. Notið tvö lög af lituðu lakki. Látið fyrra lagið fullþorna, áður en það síðara er sett á. Lakkið þær helzt á kvöldin, svo lakkið harðni vel áður en tekið er í nokkuð verk. Lakkið er þá fyrst fullþurrt, þegar það er grjóthart. Það sama á við þó glært naglalakk sé notað. 8. Notið yfirlakk, sem hæfir undirlakkinu. Látið ekki til- viljunina ráða. Eitt lakk hæfir sterkum nöglum, annað veikum, eins og undirlakkið. tliiifc 65 g smákökumylsna 225 g skyr 65 g smjör 3 egg 2 msk mjólk 180 g sykur 65 g hveiti ögn af salti rifið hýði og safi úr 1 sítrónu. Skyrið hrært mjúkt, bræddu smjör- inu hrært saman við. Eggin þeytt með mjólkinni, hrært saman við smátt og smátt. Sykrinum hrært í ásamt sáldr- uðu hveiti, salti,. sítrónusafa og hýði. Hrært vel. Hellt í smurt mylsnustráð tertumót, afganginum smurt af mylsnunni stráð yfir deigið. Bakað við frekar vægan hita í iy2 klst. Kælt á grind. Borin fram óbreytt eða skreytt með þeyttum rjóma og aprikósum.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.