Fálkinn - 15.08.1962, Qupperneq 35
IMÝTT!
MÝTT!
Hárþurrkuhjálmur til heimanotkunar:
EVA hárþurrkan er vönduð og hentug.
. Meðan þér þurrkið hárið hafið þér hend-
urnar frjálsar og getið því lesið, saumað
eða prjónað.
Klemmist á hurð eða hengist á vegg eftir
hentugleikum.
Eins árs ábyrgð.
Fæst í helztu raftækjaverzlunum.
EINKAUMBOÐ:
AKURFELL, Hallveigarstíg 9
HrútsmerkiÖ (21 viars—20. avríl).
Leið, sem lengi hefur verið yður lokuð, er nú
allt í einu greiðfær, og ættuð þér ekki að biða boð-
anna, heldur nota tækifærið. Það er ekki víst að
það b.ióðist aftur. Næsta helgi verður sérstaklega
skemmtileír.
Nautsmerkið (21. avríl—21. maí).
Það er ekki til neins gagns að spara, þegar
menn hafa þann háttinn á að spara eyrinn, en
kasta krónunni. Þetta skuluð þér íhuga gaum-
gæfilega. Sérstaklega verða föstudagur og laugar-
dagur hætlulegir í f.iármálunum.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júni).
Þér hafið í þessari viku mikla möguleika á,
að bregða út af hinu vanabundna og hversdags-
lega lífi. Á sviði ástamálanna verður laugardagur
hagstæður og ætti yður að vera óhætt að gerast
þá d.iarfur í þeim efnum.
Krabbamerkiö (22. júní—22. júlí).
Fyrri hluta vikunnar gerist ekkert sérstakt, en
þegar líða tekur á vikuna takið þér að íhuga
rækilega stöðu yðar í miög hiartfólgnu máli. Þér
s.iáið, að í óefni er komið og ættuð að taka skiót-
ar og róttækar ákvarðanir.
LjónsmerkiÖ (23. júlí—23. ágúst).
Þér eruð allt of viðkvæmur fyrir því sem aðrir
álíta um yðui; og hvað um yður er sagt yfirleitt.
Ef þér ætlið yður að komast vel áfram, verðið
þér að vera d.iarfari og láta ekki hégómlega smá-
muni trufla yður.
JómfrúarmerkiÖ (24. ágúst—23. sept.J.
Þér munið hl.ióta gagnrýni, sem stafar fyrst og
fremst af öfund. Þér skuluð ekki taka þetta allt
of nærri yður. Þegar á allt er litið er það alls
ekki svo slæmt að vera öfundaður. Það sýnir, að
yður hefur vegnað vel.
Vogarskálarmerkið (24. sept.—23. okt.).
Þér hafið mikla löngun til að br.ióta allar brýr
að baki yður og hef.ia nýtt líf. Þér skuluð íhuga
þetta mál vel áður en þér aðhafizt nokkuð. Það
er að minnsta kosti ekki hagstætt að gera neitt
í þessari viku.
HABÆR
Fjriríækí og
VEIZLFnÚSIÐ
íclög ATHUGIÐ
salarkynnin í HÁB/E henta yÖur hvað
bezt þegar þér þurfið að bjóða gestum
yðar mnlendum eða erlendum hádegis-
verð eða kvöldverð. Pantið með fyrirvara
í síma 1 7779.
HÁBÆJAR ELDHÚS
Heitur og kaldur veizlumatur, smurt
brauð og snittur. Síminn er 17779,
Svorödrekamerkiö (24- okt.—22. nóv.).
Þér álítið að þér farið á mis við margt í lífinu
og tel.iið kunning.ia yðar búa við miklu betra
hlutskipti. I þessari viku komizt þér að hinu
gagnstæða og það ætti að gera yður sáttari við
lífið og tilveruna.
I
J
BogamannsmerkiÖ (23. nóv.—21. des.).
Þér hafið dálitið hættulega framkomu gagnvart
þeim, sem þér umgangist daglega. Það er að vísu
gott að vera st.iórnsamur, en kúnstin er að st.iórna
án þess að beita valdi. Það verða nokkrir árekstr-
ar h.iá yður í sambandi við þetta.
Steingeitarmerkiö (23. nóv.—21. des.).
Nú sem stendur finnst yður eins og allt snúist
öfugt og ekkert geti farið eins og til var ætlast.
Síðar í vikunni komizt þér að raun um, að gæfan
er yður hliðholl og flest hefur farið betur en á
horfði.
VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. febr.).
St.iörnurnar spá því, að í þessari viku munuð
þér komast yfir m.iög örðugan h.ialla í lifi yðar.
Þetta gerist með h.iálp góðra manna og því rnegið
þér ekki gleyma. Þetta verður í alla staði mikil-
væg vika fyrir yður.
FiskamerkiÖ (20. febr.—20. marz).
1 fyrstunni munuð þér í þessari viku bera mikið
úr býtum, en sá ávinningur mun verða yður litils
virði, þegar frá líður. Þér skuluð þó halda áfram
baráttunni og láta ekki bugast þótt eitthvað blási
á móti.
FÁLKINN 35