Fálkinn - 18.09.1963, Blaðsíða 20
/ispursmey
á hálum brautum
eltii*
EAHL STANLEY
GARDNER
Della Streetj einkaritari og trúnaðar-
maður Perry Masons, gekk að borði
hans og sagði: „Málflutningsskrifstofa
er nú ljóti staðurinn."
„Það má nú segja,“ sagði Mason. „En
af hvaða tilefni ertu að hafa orð á því
endilega núna?“
„Út af Dorrie nokkurri," Ambler.
Hún segist verða að finna þig tafar-
laust.“
„Hvað gömul?"
„Tuttugu og þriggja eða fjögurra, en
hefur leikið sitt af hverju.“
„Hvernig lítur hún út?“
„Jarphærð, brúneygð, 160 sentímetr-
ar, vöxtur 86 — 60 — 86.“
„Hvaða erindi á hún?“
„Hana langar til að sýna þér upp-
skurðinn,“ sagði Della Street.
„Á sér hvað?“
„Uppskurðinn. Hún heldur að það
geti lent í klandri að sanna hver hún
er, og hún vill færa sönnur á að hún
sé hún sjálf með því að sýna þér ör eftir
botlangaskurð."
Mason glotti........Þetta væri nú
aldeilis verkefni fyrir Pál Drake. Mér
skilst hún sé 1 laginu alveg eins og
Páll vill hafa þær.“
„Það máttu bóka,“ sagði hún. „Hann
hefur augun hjá sér. Á ég að kalla í
hann?“
„Við skulum fyrst tala við skjólstæð-
ing okkar,“ sagði Mason. „Ég er á nál-
um að sjá þessa dularfullu ungfrú
Ambler.“
Della hvarf fram í fremri skrifstof-
una og kom aftur með Dorrie Ambler.
„En hvað það var fallegt af yður að
lofa mér að tala við yður, herra Mason,“
sagði Dorrie Ambler hraðmælsk.
„Þér eigið í einhverjum erfiðleikum
með að sanna hver þér eruð?“ spurði
Mason.
„Já.“
„Hvers vegna er yður svo mjög í
mun að fá færðar sönnur á hver þér
eruð?“ spurði Mason.
„Af því að það er verið að reyna að
rugla mér saman við aðra manneskju.“
„Fyrst svo er,“ sagði Mason og leit
á Dellu, „væri auðveldasta leiðin að
taka fingraför yðar.“
„Það er alls ekki nægilegt.“
„Hvers vegna ekki?“
„Ég vil að þér getið þekkt mig óvé-
fengjanlega aftur. Ég vil að þér skoðið
mig — —“ hún leit niður „— — að
þér sjáið meira að segja ör eftir nýlegan
uppskurð. Þegar um það er að ræða
að þekkja fólk örugglega, er venjulega
leitað að örum. Nú jæja, ég hef ör.“
„Þá ættum við að ná í einhvern, sem
getur verið vottur. Til dæmis Pál
Drake,“ sagði Mason. Hann stendur fyr-
ir Drakeleyniþjónustunni. Við skulum
biðja hann að líta inn snöggvast."
Lögfræðingurinn tók fram skrifblokk
og skrifaði:
Páll: Della segir þér hvað er á seyði,
en ég þarf að biðja þig að láta einn
Framhald á næstu síðu.
OT FRAMHALDSSAGA
/
f '•y'
/ - s
-j!