Fálkinn - 25.11.1963, Síða 6
Baksíðukeppnin
i amiiiBi.'.—MMi—
í dag birtist seinni hluti baksíðukeppni Fálkans, en fyrri
hlutinn birtist í 32. tölublaði þessa árgangs. Birtar eru
myndir af 8 baksiðuauglýsingum, sem birzt hafa á þessu ári
hér í blaðinu, og eiga lesendur að segja til um, hver aug-
lýsingin sé bezt að þeirra dómi. Álit sitt eiga þeir að láta
í ljós á seðli þeim, er hér fylgir með, og senda hann blað-
inu fyrir jól. Það fyrirtæki, sem á beztu auglýsinguna að
dómi lesenda, fær ókeypis baksíðuauglýsingu snemma árs-
ins 1964. Meðal þeirra lesenda, sem velja beztu auglýsing-
una, verður dregið um verðlaun, myndavél frá Hans Peter-
sen, fyrir 2000 krónur.
BEZTA BAKSÍÐAN AÐ ÞESSU SINNI EB AÐ MÍNUM
ÐÓMI FRÁ:
NAFN:
HEIMILI.
AYÆJn
§nyrtivörnr
alltaf fyrirliggjandi.
Athugið bláu línuna
Kremið er sérstaklega ætlað fyrir
viðkvæma húð.
Regnboginn
Bankastræti 6 — Sími 22135.
Sendum í póstkröfu um land allt.
G FALKINN
Leiðinleg saga.
Pósthólf Fálkans,
Reykjavík.
Um daginn var í blaðinu
þáttur eftir einhvern sem kall-
aði sig Snabba. Mér þótti þetta
heldur leiðinlegur þáttur Senni-
lega hefur maðurinn sem skrif-
aeði hann ætlað að vera snið-
ugur en það brást honum alveg.
Við þennan þátt var ekkert
sniðugt og hann var það sem
kallað er „tóm vitleysa.“ Þetta
vildi ég láta Snabba vita.
E. B.
Um bjórinn.
Kæri Póstur.
Fyrir nokkuð löngu síðan las
ég bréf í Pósthólfinu frá ein-
hverjum sem gerði bjórinn
sterka að umræðuefni. Ekki
man ég nú efni bréfsins sem
mér þótti heldur ómerkilegt en
minnir að hann hafi heldur
verið honum hlyntur.
Ég vil gjarna skjóta hér
nokkrum orðum að í þessu
móli og get þá byrjað á byrj-
uninni, að ég er andvígur
sterkum bjór. Það hefur verið
nefnt sem rök í þes^u máli að
aðrir þyrftu ekki að drekka
bjór en vildu og eins hitt að
allar þjóðir hafi sterkan bjór
nema við. Þessu seinna vil ég
svara á þá lund að ekki þurf-
um við að taka allt upp eftir
öðrum þjóðum og af tvennu er
ég stoltur af að við höfum ekki
sem aðrar þjóðir: Bjórinn og
hnefaleikana. Um það fyrra vil
ég segja það að margir munu
byrja hála braut á bjórnum þó
þeir hafi ekki ætlað.
Læt ég svo útrætt um þetta
mál.
Með beztu kveðju.
Einn á móti bjór.
Svar:
Um þetta mál eru mjög skiptar
sJcoOanir og viO viljum gjarna
birta bréf um þetta mál.
Loka Austurstræti fyrir bíla
umferð vissan hluta dagsins.
Kæri Fálki.
Víða erlendis er mér sagt að
um mesta annatíma dagsins sé
mestu umferðagötunum lokað
fyrir bílaumferð. Þetta finnst
mér að ætti að taka upp varð-
andi Austurstræti. Það eru orð-
in hreinustu vandræði að fara
þar ferða sinna um mesta
annatímann bæði fótgangandi
og eins í bílum. Það ætti sam-
kvæmt mínu viti að loka fyrir
bílaumferð í Austurstræti á
tímanum 16.00 til 18.30.
Reykvíkingur.
Blaðaverkfall.
Kæri Póstur.
Eitt það versta við að dag-
blöðin koma ekki út er að mað-
ur veit ekki hvaða myndir eru
í bíó. Annað hvort verður mað-
ur að hringja í öll bíóin sem
er bæði tafsamt og talsverður
kostnaður, ellegar maður verð-
ur að hlusta á tilkynningar í
útvarpinu, en það er nú með
það að kvikmyndahúsin aug-
lýsa °kki alltaf myndirnar.
Þetta er leiðinda ástand og
mér finnst að kvikmyndahúsin
ættu að bæta úr þessu með
einhverjum hætti. En með
hvaða hætti er mér ekki ljóst.
Bíómaður.
Börn með þunga byrði.
Kæri Fálki.
Það er algengt að fólk sendi
börn á unga aldri fyrir sig í
verzlanir og auðvitað er ekkert
við það að athuga, þegar það
er innan vissra takmarka. En
það er heldur leiðinleg sjón að
sjá þessa litlu anga rogast með
þungar byrðar heim úr verzl-
unum. Þetta er mál sem barna-
verndanefnd ætti að láta til
sín taka. Þetta hlýtur að vera
óhollt börnunum.
Maður í nágrenni verzlunar.
AHtof langur háls.
Kæri Fálki.
Hvað á ég að gera? Ég er
með svo langan háls. Getur þú
ekki gefið mér einhver ráð við
þessu. Þetta hefur oft valdið
mér talsverðum vandræðum að
ég tala nú ekki um áhyggjurn-
ar. Ég vona að þú svarir mér
sem allra fyrst.
Stína.
Svar:
ViO kunnum engin ráö til aO
stytta á þér hálsinn Stína mín
enda sjáum viö ekki ástœöu til
þess. ViO flettum upp l ný útkom-
inni Tízkubók og lásum þetta um
langan liáls: „Þá eruö þér ham-
ingjusöm. Aö undanteknu háu,
grönnu vaxtarlagi, er ekkert eins
áhrifaríkt til sköpunar eftirsóttu
svipmóti fyrirscetunnar, — aO þvi
tilskildu aö þér látiö liálsinn sjást,
en hyljiö hann ekki meö klastri."
Og ef þú trúir okkur ekki þd
skaltu bara kaupa þér Tízkubók-
ina og lesa sjálf. Og þarna séröu
aö þaö er ástceöulaust aö vera
meö áliyggjur út af svona löguöu
þvl raunverulega átt þú aö vera
liamingjusþm.