Fálkinn - 13.04.1964, Síða 21
— en. þeir hrifu okkur fremur
til sin en hitt. Auk þess lærði
ég ung að fara með byssu og
þegar ég var níu ára gat ég
skotið niður fugl á flugi.
Þrátt fyrir æsku mína fór ég
oft á antilópuveiðar. Fyrst grét
ég sárlega þegar einhver
veslings spepna var drepin, en
smám saman vandist ég því
og enn þann dag í dag tel ég
mig ekki standa meðal kalrma
karlmanni að baki á dýraveið-
um.
Árið 1944 ákváðu foreldrar
mínir að senda mig í enska
trúboðsskólann fyrir persnesk
börn. Skólann rak ungfrú
Eiden og var sá skóli ólíkt
hreinlegri en aðrir skólar í
Isfahan.
Ætlunin var að ég byrjaði í
sjöunda bekk, en fljótlega kom
í ljós, að vegna hinnar marg-
þættu og ágætu kennslu sem
ég hafði notið, að ég var langt
á undan bekkjarfélögum mín-
um. Ég fékk því að hlaupa yfir
þrjá bekki og tók lokaprófið
fjórtán ára gömul í stað
sautján.
Heimsstyrjöldinni var fyrir
nokkru lokið og móðir mín
þráði að hverfa á ný til Evrópu.
Tíu ár í Persíu hafði verið
henni óralangur tími. Þar að
auki hafði hana alltaf dreymt
um, að börn hennar hlytu
menntun á Vesturlöndum og
aþr sem faðir minn hafði verið
hagsýnn og snjall hafði hann
efnast talsvert og hún hvatti
hann óspart til að fara.
Snemma árs 1947 fóru for-
eldrar mínir til Sviss. Þau
leigðu íbúð í Ziegel stræti, sem
er í Wollishofenhverfi Zurich-
borgar. Ég var send í skóla £
Montreux til að læra frönsku
og þar var ég þar til haustið
1948, að ég var flutt í skólann
Les Roseaux skammt frá Laus-
anne.
Þetta var mjög ánægjulegt
tímabil. í skólaleyfum fóru
foreldrar mínir með mig til
Wengen og Lugano og á
veturna til Gstaad og st. Morizt
og þar komst ég í kynni við
skíðaíþróttina og hafði sérstaka
ánægju af skíðaferðum. En
öllu mikilsverðara varð mér þó
að á þessum skólaárum eignað-
ist ég allmarga trausta og
trygga vini.
Nánasti vinur minn í La
Printaniere var portugölsk
stúlka að nafni Maria-Antonia
Rebelo de Magalhaes, og ítölsk
stúlka Maria Grazia Figori, sem
lærði húsagerðarlist og býr nú
í Róm. Meðan ég var í Les
Rosesaux umgekkst ég sérstak-
lega Wanda Papanicola frá
Framhald í næsta blaði.
■ '
' •.
'
FÁLKINN 21