Fálkinn - 11.05.1964, Blaðsíða 10
móti sér. Hann spurði aftur,
hvernig ég hefði það og af
ónauðsynlegri umhyggju.
„Þú lítur vel út.“
Ég þakkaði fyrir.
Hann handfjallaði einhverja
pappíra.
„Oh, James! Losaðu mig við
þessi formlegheit, ég veit að
þetta er út af erfðaskrá aum-
ingja mömmu. Getum við ekki
lokið þessu af? Hversu mikið
erfi ég?“
„Það er einmitt mergurinn
málsins." Svo kom dálítil þögn.
Hann leit yfir til mín með
ugluandlitinu sínu, skreytt stál-
gleraugum (hvers vegna gat
hann ekki notað hornspangar
gleraugu?) og grár hárlokkur,
allt of langur og mjósleginn féll
út í annan vangann, eins og
fortjald.
„Martine, ég get ekki verið
að leyna þig þessu lengur. Mál-
ið er mjög alvarlegt, og það er
ekki hægt að skýra þér frá
þessu á þægilegan hátt. Þú færð
ekki neitt."
Óþægileg þögn.
Ég sat aðeins og starði.
„Þetta er dag satt, góða mín.
Mér fannst ég yrði að segja þér
þetta strax. Ég talaði við Don
í New York í dag. Fyrirtækið
gengur ekki vei hjá honum
vegna verkfallsins í vélaiðnað-
inum, og hann segir mér, að
peningar Dot hafi verið upp
urnir fyrir löngu. Don hefur
séð fyrir þér siðustu árin, og
nú getur hann ekki gert það
lengur. Hann þarf að sjá um
sín eigin börn. Dotty bað hann
um að segja þér ekki, að pen-
ingarnir hefðu verið hans. Hún
viidi, að þú héldir að þeir
kæmu frá henni. En þeir eru
allir búnir. Þetta er allt og
10 FALKINN
sumt, er ég hræddur um. Það
er ekki eyrir eftir.“
„Ekki einn eyrir ...“ endur-
tók ég.
Það var eins og ég væri löm-
uð. Þeir sögðu þér, að allt væri
að hverfa, og þú trúðir þeim
ekki, og svo gerðist það samt.
Eitt augnablik hafði ég setið
í stólnum hjá James og dingl-
að fætinum. Ég var örugg, al-
gjörlega viss, falleg og fær í
flestan sjó. Nú, á einu auga-
bragði hafði ég aðeins orðið ein
af fjöldanum.
„Ég geri ráð fyrir, að þú eigir
enn eftir töluverða upphæð í
bankanum af síðustu ávisun-
inni, sem Don sendi þér,“
heyrði ég James segja, vin-
gjarnlega. „Það mun kippa mál-
um þínum í lag, að minnsta
kosti, Martine. Og svo verður
þú að fara að hugsa þér fyrir
vinnu . .. • Meðal annara orða,
mér dettur í hug, þegar ég lít
yfir pappírana þína, að þú átt
enn eftir hlutabréfin, sem Dot
gaf þér á tuttugasta og fyrsta
afmælisdeginum þínum. Þau
munu koma í góðar þarfir
núna.“
„Ég lét Joe hafa þau.“
„Hvað segirðu."
„Joe vildi kaupa bíl.“
„Virkilega?"
Athugasemdin fór í taugarn-
ar á mér. „Oh, hættu að horfa
svona! Ég hef alltaf verið
eyðslusöm — mamma vildi að
ég væri ' það. Hvers vegna
skyldi ég ekki gefa unnusta
mínum eitthvað af þessum blóð-
ugu peningum rnínum?"
„Jæja, jæja, vina mín, ef þú
ert trúlofuð, þurfum við ekki
að hafa neinar áhyggjur af þér,
eða þurfum við þess?“
Hann bauð mér til hádegis-
verðar, en ég afþakkaði boðið.
Ég tók bíl heim. Þegar ég var
að borga bílstjóranum og gefa
honum ríflegt þjórfé, flaug mér
allt í einu í hug, að ég gæti
sjálf þurft á þessum peningum
að halda. Þetta var í fyrsta
sinn, sem ég hafði hugsað um
peninga nema sem þjóna mína.
Ég starði á Þá með fyrirlitn-
ingu.
Blaðið mitt var ekki komið
enn þá, og íbúðin var ósnyrtileg
og leiðinleg að sjá. Við höfðum
ekki hrist púðana, sem voru
bældir frá því við sátum á þeim
kvöldið áður. Öskubakkarnir
voru fullir. Það var dautt í
arninum, og hann var fullur
af ösku. Blaðlaus hvít lilja, sem
Joe hafði gefið mér var dauð.
Ég fór inn í eldhúsið og lag-
aði mér kaffi.
„Ég er fátæk," sagði ég upp-
hátt. „Fátæk.“ Það var nepja
í orðinu. Það var eins og sólin,
heit og björt, sem umvafði allt
líf mitt, þar sem ég lá á nota-
legri strönd, hefði horfið bak
við ský og kæmi ekki aftur.
Allt, sem maður hugsaði um
stóð í sambandi við peninga,
eða var ekki svo? Heimilið, út-
lit manns, það, sem maður
gerði, hafði áhuga á, hló að,
það sem maður borðaði og
hvernig maður svaf.
Ég settist niður í eldhúsinu
í viktoríönskum stól, sem Joe
hafði valið og hallaði mér að
tágabaki hans. Ég sat lengi og
reyndi að ímynda mér hverju
þetta yrði líkt. Ég gat ekki
fundið neitt nema leigubílana,
sem ég gæti komizt af án. Ég
myndi fara með strætisvagni
eða neðanjarðarlestinni. En
hvert ég ætlaði að fara eða
hvers vegna, það vissi ég ekki.
Joe hringdi til mín seinna
um daginn til þess að segja að
hann hefði tafizt og myndi ekki
koma fyrr en seint. Ég flýtti
mér í símann til þess að segja
honum fréttirnar og létta þess-
ari byrði af mér.
„Komdu fljótt — ég hef dá-
lítið, sem ég þarf að segja þér.“
„Nú, nú, elskan, ég kæmi ef
ég gæti,“ sagði hann hrana-
lega. Joe þoldi ekki, að hann
væri spurður um fyrirætlanir
sínar. Ég samþykkti og lofaði
að bíða heima þar til hann
kæmi aftur.
Ég ráfaði um íbúðina, á
meðan frú Brown, sem komið
hafði full af afsökunum, sópaði
og þurrkaði af. Ég fór inn í
svefnherbergið, og opnaði
klæðaskápana mína með renni-
hurðunum og leit á fötin mín.
„Ég geri ráð fyrir, að ég verði
að fara vel með þau nú, þegar
ekki eiga önnur eftir að bætast
við.“
Fötin héngu á marglitum
herðatrjám með satin utan um.
Þau voru eins og marglit föt
sem maður sér í cirkus, appel-
sínurauð, gulbrún, rústrauð og
fjólurauð. Ég hafði klætt mig
eins og dutlungar mínir buðu
mér — föt sem keypt voru í
verzlunum eða saumuð sérstak-
lega — stundum lét ég gera
föt eftir einhverju, sem ég hafði
séð í kvikmynd eða á leiksviði.
Fötin mín voru dálítið furðuleg.
Þau hæfðu útliti minu, sem ég
hafði fengið að erfðum frá Dot.
Þarna voru ballkjólar, galla-
buxur, sokkabuxur og kjólar, i
sem maður valdi sérstaklega
fyrir Henley-róðrana á Thames.
Þarna voru líka tveir verulega
fínir kjólar. Þegar maður hugs-
ar nánar út í þetta, þá hefði ,
mátt bera svarta grímu við öll ;
mín föt.
Ég heyrði í frú Brown þar
sem hún vann, og raulaði glað-
lega fyrir munni sér, og brátt
hafði hún kveikt ljósin og
kveikt upp í arninum. Hún *
hafði meira að segja munað
eftir að sprauta úr ilmflösk-
unni minni í setustofunni. Allt
var hreint og töfrandi.
„Ég er búin að setja ketilinn
á fyrir yður ungfrú Martine,
ef þér skylduð vilja fá yður
tebolla. Þér hafið verið mjög
fölar og teknar síðan frúin
lézt.“
„Þakka yður fyrir frú
Brown.“
„Það er ekkert að þakka,
ungfrú. Mér þykir gaman að
horfa á yður. Þér eruð falleg-
asta unga stúlkan, sem ég vinn
fyrir.“ Hún galopnaði augun.
Hún var um fimmtugt, feit-
lagin, róleg og örugg í fram-