Fálkinn - 11.05.1964, Blaðsíða 37
1 msk. appelsínubörkur
1 eggjahvíta
1 dl þeyttur rjómi.
Öllu nema rjóma blandað
saman í potti, hrært stöðugt
í, þar til sýður og kremið
er orðið þykkt. Kælt.
Stífþeyttum rjóma bland-
að saman við. Kljúfið sykur-
brauðsbotn, setjið kremið á
milli. Látið bíða til næsta
dags. Kakan skreytt með
þeyttum rjóma og appelsínu-
bitum.
Góð appelsínubrá'ð.
1 msk. smjör
5 dl púðursykur
1 tsk. rifinn
appelsínubörkur
2—3 msk. appelsínusafi
Öllu hrært saman í skál
þar til bráðin er eins og
mjúkt smyrsl. Ágæt bráð á
muffins, mjúka piparköku
eða sandköku.
Ekki er öll nótt úti...
Framhald af bls. 17.
eru góð má rekja til hjarta- og
æðasjúkdóma helming allra
dauðsfalla.
Þessu verður ekki móti mælt,
jafnvel þótt tölur sýni að of
hár blóðþrýstingur sem bana-
mein sé 44% minna en fyrir
15 árum í Bandaríkjunum.
Meiri lyfjanotkun hefur stuðlað
að því.
Rome A Betts framkvæmda-
stjóri Hjarta- og æðasjúkdóma-
stofnunarinnar sagði: „Á síð-
ustu 15 árum hafa orðið meiri
framfarir í þá átt að lækna
hjarta- og æðasjúkdóma en á
síðustu 15 öldum.“
IILAIIID
DAGIR
er víðlesnasta blað,
sem gefið er út utan
Reykiavíkur.
BLAÐIÐ DAGUR,
Akureyri.
Áskriftasími 116 7.
DAGIR
Þar standa bátarnir
Framhald af bls. 31.
vegaverkstjóri, árið 1930, um
allt Snæfellsnes frá Vegamót-
um og Búlandshöfða. Og auk
þess hef ég verið hafnsögumað-
ur frá 1911 og á bréfið enn. Ég
þyrfti að senda það suður því
ég hef aldrei fengið eyri fyrir
þetta starf.
Einar Markússon? Já það var
allt saman ágætis fólk. Hann
lét gera bryggju út í sjóinn og
lét renna eftir henni vagni á
teinum og þannig var vörum
skipað upp. Hann er annar
maðurinn sem mér hefur fund-
izt bregða birtu yfir Snæfells-
nes, hinn vil ég ekki nefna.
Bændaverzlunin var sniðin
eftir norðlenzku félögunum og
blessaðist vel í fyrstu. Ég
ómyndugur drengurinn utan af
Rifi, tók 1000 króna axíu. Þegar
Einar verzlaði hér var Ólafsvík
sjöunda stærsta kauptúnið á fs-
landi, hér voru 600 manns. En
svo kom Bankinn og við misst-
um allt sem við höfðum lagt
í verzlunina.
Hér var heilmikið félagslíf,
Reinhold Richter var lífið og
sálin í öllu saman. Leikfélagið
færði upp Moliére og Holberg.
Við lékum ímyndunarveikina
árið 1907, Sigurður Guðmunds-
son guðfræðingur var hér á
vegum Proppé-verzlunarinnar
og hann þýddi þetta og leið-
beindi leikurunum. Þá lékum
við í Góðtemplarahúsinu, það
var reist 1904 með miklum
myndarbrag. Og enn er notast
við það. Við lékum Jeppa á
Fjalli, Ævintýri á gönguför,
Skugga-Svein alltaf annað veif-
ið.
Þá má skjóta hér inn í að
Stefán lék sjálfur Argan í
ímyndunarveikinni og stærri
hlutverk í flestum leikritum
sem sett voru á svið og stjórn-
aði leikritum allt fram til 1940.
Og Stefán trúir okkur fyrir
því að lokum að hann telji sig
lánsaman mann og heppinn.
— Ég er kominn að niðurlot-
um en fólkið hefur verið mér
ósköp gott.
Og við höfum orð kunnugra
fyrir því að ekki hafi sést á
götum Ólafsvíkur upplitsdjarf-
ari menn en Stefán Kristjáns-
son, jafnvel á þeim tímum
þegar kjörin voru kröppust og
ekkert nema sortinn fram-
undan.
JálkiHh fjhjyur út
Hulin fortíð
Framhald af bls. 11.
Hann hélt áfram að kaupa
handa mér blóm, gera áætlanir,
elda og segja mér nýjustu
kjaftasögurnar. En hann snerti
mig varla, og hann var ekki
eðlilegur eitt einasta augnablik.
Þegar hann stakk höfðinu inn
um dyrnar á setustofunni
minni, var hrekkjótt bros á and-
litinu, en hvorugt okkar lét
blekkjast. Joe vildi mig ekki
lengur, og hugsunin fylgdi
honum eftir.
Það virtist enginn vera til,
sem ég gæti talað við nema
Ellie.
Ég hring'di til hennar, án
þes að segja henni ástæðuna.
„Komdu strax yfir til mín.
Þú hljómar eins og þú sért ekki
í góðu skapi.“
„Má ég koma í hádegismat?"
„Ég á ekkert nema epli og
ost. Ég gleymdi að fara í búðir,
og kemst ekki út núna, af því
að ég er að mála eldhúsið. Þol-
ir þú ekki lyktina?"
„Ég hata hana.“
Ég kom um hádegið. Ellie
var í gömlum skólaskokk, sem
hún hafði notað í klaustrinu,
og allt í einu var ég komin
aftur til Devonshire, rauðu
múrsteinsbyggingarinnar frá
Viktoríutímabilinu og sá klifur-
rósirnar og fann lyktina af fur-
unni og húsgagnaáburði. Hún
var föl en glaðleg.
„Mér líður hræðilega," sagði
hún ánægjulega, ,,af því að ég
svaf ekki dúr í nótt. Harold
gat ekkert sofið fyrir tannpínu
og ég var að hjálpa honum. Það
er dásamlegt að vera uppgefin.
Maður sér allt hálft. Ég get
aðeins séð helminginn af þér.“
Hún skáskaut augunum á mig.
„Sá helmingur, sem ég sé, lítur
hryllilega út. Hvað hefur komið
fyrir?"
Ég settist varlega á arminn
á sófanum hennar Ellie. Hann
var mjög slitinn. Og svo sagði
ég henni allt.
Ellie stóð þarna með galop-
inn munninn. Það var einhver
fullnæging í því að sjá furðuna
á föla freknótta andlitinu henn-
ar.
„Ekki einn einasta eyri?“
„Ekki einn.“
„Dot var asni, finnst þér
ekki? Ég hélt, að einhver hefði
sagt mér, að hún væri milljóna-
mæringur?“
„Það eru ýkjur, en hún átti
vissulega töluvert mikið —
hún fékk peninga frá móður
sinni, og síðan kom heilmikið
frá föður mínum og hinum
eiginmönnunum tveimur. Hún
eyddi því samt öllu.“
„Hafa tilfinningar þínar í
hennar gai'ð nokkuð breytzt við
þetta?“
„Auðvitað ekki.“
„Þú lítur stur.dum út eins og
þú sért ofsalega reið. Það væri
svo sem ekki nema eðlilegt, að
þér líkaði ekki að vera skilin
eftir á þennan hátt eftir upp-
eldið, sem mamma þín veitti
þér, eða hvernig hún ól þig ekki
upp, svo maður hafi það nú
rétt.“
„Hún gerði sitt bezta,“ sagði
ég kuldalega. „Og ég dáði
hana.“
„Já, þú gerðir það. Það verð
ég að viðurkenna,” sagði Ellie
og æddi fram og aftur um her-
bergið eins og hestur, sem
hvergi getur fundið ró, „þér
féll það aldrei illa að eiga ekki
heimili, að því er bezt varð séð.
Og þegar við hinar fórum heim
til foreldra okkar í fríunum,
þá virtist þú skemmta þér
konunglega í skólanum — allt-
af að fara út með ungfrú, hvað
hét hún nú aftur, sem þér líkaði
svo vel við. Manstu eftir fót-
leggjunum á henni?‘.‘ Ellie byrj-
Framhald á bls. 39.
JicMSim
helgaft fegurft fagurra
augna EIIXIGÖMGL
tU augnfegurðai - óvið.iaín-
anlegt að gæðum — við ótrú-
lega lágu verðj undravert
litava) í fegurstu demantsblæ-
brigðum sem gæða augun
skinandi töfraglóð. Fyrir það
er Maybelline nauðsyn sér-
hverri konu sem vili vera eins
heillandi og henni er ætlað.
Maybelline er SÉRFRÆÐI-
LEG augnfegrun!
Sjálfvirkt smyrsl og
óbrigðul Masearavökvi
og pensildregnar augnlinur.
Smyrsl og Augnskuggastifti.
Sjálfvirkir augnabrúna-
penslar og
augnaháraleiðarar.
FÁLKINN
37