Fálkinn - 11.05.1964, Page 15
Kannski er þarna
tilvonandi
aflakóngur
Ólafsvíkinga að
„stíga fyrstu
sporin.“ Svona
báta smíða strák-
arnir í Ólafsvík
í tugatali og
raða scr á
höfnina.
hvorttveggja í senn: nýtízkuleg og einkennandi fyrir Ólafsvík.
Árangurinn varð sá að Hákon Hertevig arkitekt teiknaði kirkju
sem nú er verið að smíða og verður fögur, stílhrein og sérstæð. En
sérstök ástæða er til að vekja athygli á þessari kirkjusmiði nú þegar
mikið er deilt um kirkjubyggingar.
Alexander Stefánsson er enn ungur að árum en hefur komið
mikið við sögu Ólafsvikur undanfarin áratug. Hann er fæddur og
uppalinn í Ólafsvík og þekkir því vandamál fólksins frá blautu
barnsbeini, var í vegavinnu og brúarsmíði er hann komst á legg
og síðan lá leiðin í Samvinnuskólann. Þar lauk hann námi áTÍð 1943
og sama ár er stofnað kaupfélagið Dagsbrún í Ólafsvík af litlum efn-
um. Alexander setti á stofn fyrstu trésmiðju Ólafsvíkur árið 1946
en í árslok 1947 er hann ráðinn kaupfélagsstjóri. Þá var félagið
heldur lítið og óburðugt, velta þess aðeins 1,6 milljón fyrsta árið
sem Alexander veitir því forstöðu. Þá var högum svo háttað að
atvinnutæki voru öll eða flest í höndum Reykvíkinga og má nærri
geta að slíkt fyrirkomulag hefur ekki verið mikil lyftistöng fyrir
héraðið.
Skömmu eftir að Alexander varð kaupfélagsstjóri hófst hann
handa um að byggja nýtt frystihús á staðnum. Þar var við marga
örðugleika að etja en þó kom þar að frystihúsið gat tekið til starfa
árið 1956 og var þar með hrundið áhrifalavaldi hinna sunnlensku
kaupsýslumanna. Frystihúsið varð stærsta atvinnutæki á staðnum
og var nú skammt stórra högga á milli því kaupfélagið lét einnig
smíða tvö stór fiskiskip. Jafnframt var gerð mikil endurbót á verzl-
unarháttum og er það til marks um framkvæmdadug og nýjunga-
girni hins unga kaupfélagsstjóra að hann kom á fót fyrstu kjörbúð
Vesturlands. Og kjörbúðin var einmitt staðsett í elzta verzlunar-
húsi landsfjórðungsins, húsi sem erlendir kaupmenn höfðu reist á
sínum tima, árið 1844. En Ólafsvík er með elztu verzlunarstöðum
á landinu og þar voru mikil umsvif á skútuöld og útgerð jafnan
með miklum blóma eftir því sem við var komið hverju sinni.
Arið 1961 reis síldar- og fiskimjölsverksmiðja á staðnum, kaup-
félagið rekur einnig sláturhús með útflutningsleyfi. Og nú er velta
kaupfélagsins orðin 42 milljónir.
Það er engin furða þótt málefni hreppsins hafi orðið útundan
í þessum miklu umsvifum en árið 1962 sagði Alexander lausri
stöðu kaupfélagsstjóra og var ráðinn sem nokkurs konar fram*
kvæmdastjóri hreppsins. Og þar bíða mörg og örðug verkefni.
Barnaskólinn er löngu orðinn of lítill og nú er unnið að því að
reisa nýjan skóla, skólaskyld börn í Ólafsvík eru rúmlega 200 að
tölu. Þar sáum við nýtizkulegt iþróttahús sem verður notað fyrir
sundlaug að sumarlagi, gólfinu lyft upp eða látið síga eftir því sem
við á. Við höfum áður minnst á kirkjubygginguna en auk þess er
Ennisvegur reyndist niikil samgöngubót þó sífellt sé
hætta á grjóthruni.
nýlega lokið við hús þar sem sveitastjórnin hefur að-
setur sitt og skrifstofur, þar er jafnframt dómsalur. Þá
Vantar tilfinnanlega félagsheimili, enn er notast við hús
frá aldamótum. Gatnagerð öll hefur dregist úr hömlu
en nú er ætlunin að bæta úr því eftir þvi sem hægt er.
Nýlega er lokið við 4 kílómetra langa vatnslögn inn í
þorpið.
Það er því langt frá að Ólafsvíkingar séu bölsýnir
þótt þeir hafi átt takmörkuðum skilningi að mæta hjá
stjórnarvöldum þegar hafnarmálin eru annars vegar. En
nú er farið að rofa til i þeim efnum, ríkið hefur heitið
8 milljónum króna til hafnarframkvæmda og á fjárhags-
áætlun hreppsfélagsins ei' gert ráð fyrir 750 þúsund
Framhald á bls. 31
FÁLKINN 15