Fálkinn - 11.05.1964, Síða 32
Velklædd kona vandar val sitt. Hún kýs sér
beztu og þægilegustu föt, yzt sem innst.
Það er þýðingarmikið að velja sér hentug og
þægileg slankbelti og brjósthaldara.
SLANKBELTIÐ MODEL 700
gerir vöxtinn mjúkan og spengilegan.
Fáanleg með og án renniláss í 3 stærðum í
hvítu og svörtu.
BRJÓSTHALDARI MODEL 235,
Með eða án hlírabanda í A og B skálastærðum
bæði í hvítu og svörtu.
Fást í vefnaðarvöruverzlunum um Iand allt.
Ileildsala: DAVÍÐ S. JÓNSSON & CO., H.F,
Reykjavík.
LADY
H.F. Iífstykkjaverksmiðja,
Laugavegi 26 — Sími 10-11-5.
HVAD GERIST í NÆSTU VIKU ?
Hriitsmerkiö (21. marz—20. avríl).
Það segja sumir að grípa eigi gæsina þegar
hún gefst og ef það er satt ættuð þér að reyna
að grípa þá gæs, sem yður gefst í þessari vikú.
Þér skuluð samt fara varlega í sakirnar þvi kapp
er bezt með fors.iá.
NautsmerkiÖ (21. apríl—21. maí).
Þér ættuð enn sem fyrr að taka lífinu með ró
og dveljast sem mest innan veggja heimilisins Þvi
það er yðar vettvangur. Þér skuluð gæta þess
vel að gerast ekki of ráðríkir á vinnustað því það
mundi koma sér mjög illa.
Tvíburamerkiö (22. mai—21. júní).
Ef þér getið notfært yður þá möguleika, sem
yður gefast í þessari viku getið þér átt von á þvi
að ná kærkomnu takmarki, sem þér hafið lengi
keppt að bæði leynt og ljóst. Þér verðið þó að
fara varlega því minnsta yfirsjón gæti orðið yður
dýr.
Krabbamerkiö (22. júní—22. júlí).
Það er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig en
ofan segja menn og Þér ættuð að hugleiða sann-
leiksgildi þessara orða og breytá eftir þeim. Þér
ættuð að hugleiða vel ástandið á vinnustað.
Ljónsmerkiö (23. júlí—23. áqústi.
I þessari viku munuð þér komast yfir erfiðleika,
sem þér hafið átt við að stríða að undanförnu en
hætt er við að lífið muni samt reynast yður
nokkuð brogað. Þér getið þó huggað yður við að
góðir tímar eru framundan.
Jómfrúarmerkiö (2í. áaúst—23. sept.).
Þér ættuð enn sem fyrr að leggja allt traust á
yður sjálfan en ekki aðra yður nákomna því það
getur reynzt yður nokkuð hættulegt. Þér ættuð
að reyna að koma ýmsu í lag, sem aflaga hefur
farið að undanförnu.
Voaarskálarmerkiö (2h. sept—23. okt.).
Þessi vika verður ekki með neinum sérstökum
hætti og verður einhver sú rólegasta, sem þér
hafið upplifað lengi. Þriðjudagurinn kann þó að
reynast undantekning.
Sporödrelcamerkiö (2h. olct—22. nóv.).
Þessi vika veröur ekki eins skemmtileg og sú
síðasta en eingu að síður verður hún með
skemmtilegra móti. Þér komið til með að kynnast
persónu í þessari viku, sem á eftir að hafa mikil
áhrif á yður.
Boaamannsmerkiö (23. növ—21. des.).
Þér verðið að aðhafast eitthvað s.iálfur I mál-
unum en ekki leggja allt traust yðar á aðra. Tæki-
færin koma ekki upp í hendurnar á yður h''I'i,,,.
verðið þér að skapa yður þau siálfur.
Steinqeitarmerkiö (22. des.—20. janúar).
Það er ekki ástæða til þess fyrir yður að leggja
í neina tvísýnu í þessari viku heldur skuluð þér
geyma það eins og hálfan mánuð þvi þá verða
heppilegri afstöður fyrir yður.
Vatnsberamerkiö (21. janúar—18. febrúar).
Þér verðið að gæta þess vel að verða ekki fyrir
miklum áhrifum frá öðrum því það er ekki sem
heppilegast fyrir yður. Þér skuluð taka Iífinu
rólega þessa vikuna og sjá hvað setur.
Fiskamerkiö (19. febrúar—20. marz).
Þessi vika verður með ýmsu móti skemmtileg
fyrir yður og þér ættuð að notfæra yður Þau
tækifæri, sem gefast og reyna að keppa að því
marki, sem þér hafið verið að hugsa til undan-
farna mánuði.
32
FALKINN