Fálkinn - 11.05.1964, Blaðsíða 34
Saumið
sumarhattinn
sjálfar t.d. úr sama
efni og sumarkápan
eöa sumarkjóllinn
Efni: y2 mtr. bómullarefni og
vhiseline allra þynnsta gerð.
x. Ath. að hver
ferhyrningur er 5X5 cm. Klippið
1 kollstykki, 1 toppstykki og 2
skyggnistykki. Vilji maður hafa
skyggnið stíft, er það einnig klippt
úr vhiseline.
Saumið kollinn saman að aftan-
verðu. Pressið. Saumið því næst topp-
inn við kollinn. Pressið sauminn.
Saumið skyggnistykkin saman að
aftanverðu, saumarnir pressaðir.
Leggið nú skyggnistykkin saman rétt
á réttu, látið saumana að aftanverðu
mætast. Vhiselinið lagt ofan á og
öll þrjú stykkin saumuð saman,
þegar ytri brún skyggnisins er saum-
uð. Snyrtið sauminn og skyggninu
snúið við og pressað.
Nú er kollurinn þræddur við
skyggnið, þannig að rétta á kolli og
skyggni mætist. Ath. að þræða og
sauma í vélinni aðeins gegnum efra
lag og fóður skyggnisins, þar sem
neðra borð skyggnisins er saumað við
í höndunum á röngunni. Ef vill getur
skyggnið verið frábrugðið að lit.
Einnig er hægt að sauma band yfir
samskeyti kolls og skyggnis. Allt
eftir smekk hvers og eins.
Appelsí n umarmelaði
með hleypi.
3 appelsínur
1 sítróna
3y2 dl vatn
1 kg sykur
V2 pk. pektin
2 tsk. sítrónusafi.
Ávextirnir þvegnir vel,
hakkaðir í söxunarvél, eða
skornir í þunnar sneiðar.
Soðið í 10 mínútur ásamt
vatninu. Sykri og sítrónu-
safa, hrært saman við. Soð-
ið við bráðan hita í 1 mín-
útu. Tekið af eldinum, hleyp-
inum hrært saman við.
Froða tekin ofan af ef þarf.
Hrært í 5 mínútur. Hellt í
hrein glös, þegar það er farið
að kólna dáltið.
34 FÁLKINN