Fálkinn


Fálkinn - 10.08.1964, Blaðsíða 4

Fálkinn - 10.08.1964, Blaðsíða 4
Knattspyrna utan Reykjavíkur. Háttvirta blað! Þegar maður ferðast út um landið verður maður víða var andúðar á Reykvíkingum. Þeir sem búa utan borgarinnar virð- ast bera í brjósti sér einhverja minnimáttarkennd gagnvart borgarbúum enda ekki nema eðlilegt. Reykvíkingar standa hinum talsvert framar um flest. Annars var það ekki þetta sem ég ætlaði að gera að umtalsefni í þessu bréfi. Það var knattspyrnan utan Reykjavíkur sem mig langaði til að ræða. Þeir sem hafa horft á knatt- spyrnuleiki utan Reykjavíkur hljóta að hafa tekið eftir því hversu utanborgarmenn eru æstir áhorfendur. Það er eins og velferð byggðarlagsins sé undir því komin að þessi leik- ur vinnist. Og þeir liggja ekki á liði sínu að hvetja sína menn með þeirri orðgnótt sem ekki heyrist á áhorfendasvæðum leikvalla í Reykjavík. Og það getur verið stór hættulegt fyrir lið úr Reykjavík að sigra. Fyrir nokkrum árum kom það íyrir að möl og sandi rigndi yfir áhorfendhr eins Reykjavíkur- félags norður á Akureyri. Þó voru þessir áhangendur miklu prúðari en hinir herskáu heima- menn. Og nú skeði svipað þessu á Akranesi um daginn eins og öllum mun í fersku minni. Þess vegna finnst mér það stór spurning hvort ekki beri að stefna að því að íslandsmót 1. deildar fari aðeins fram í Reykjavík. Ég held að þetta sé eitt af þeim málum sem næsta ársþing Knattspyrnusambands íslands verði að taka afstöðu til. Svo vona ég að þetta bréf birtist en verði ekki stungið undir stól. Einn úr Vesturbænum. Svar: Þetta bréf þitt gengur kannski heldur langt en viö birturn þaö engu aö síöur enda Pósthólfiö opiö öllurn þeim sem vilja láta frá sér heyra á þessum vettvangi. Svar til Þ.: Þú skalt eklci berja hann. Þaö borgar sig ekki því liann gceti bariö þig illa á móti. Þú skalt ekki heldur sparka í liann þótt þú mun- ir sjálfsagt liitta heldur vegna þess aö htinn' gæti sparkað illtí i þig á móti eöa liöföaö á þig mál fyrir líkamsárás. Þú skalt ekki heldur kasta honum í síldarþróna því þaö er óvíst aö þú ráöir viö liann og og þá gcetir þú lent l lienni i staöinn. Ofbeldi borgar sig heldur ekki á þessum grund- velli. En þú getur reynt aö hlœja aö honum í hvert skipti sem þú sérö hann en þú veröur aö æfa þann hlátur vel áöur en þú ferö af staö. Og mundu þaö aö lilæja í hvert einasta skipti sem þú sérö hann. Ef hann lemur þig þá ferö þú bara meö máliö í bæjarfógetann — ef þú stendur upp aftur. Svar• til V.: Þetta svar berst þér þaö seint i hendur aö állt veröur afstaöiö. Þess vegna förum viö ekki aö gefa þér neiii ráö. En hins vegar væri gaman aö fá Jrá þér llnu þar sem þú segöir okkur frá livernig málin hafa fariö. Stjörnuspáin. Fálkinn, Reykjavík. Mig langar til að skrifa ykkur nokkrar línur og hvarta við ykkur undan stjörnuspánni. Mér finnst hún oft á tíðum ekki heldur ekki alltaf að marka hana. Um daginn stóð t. d. að ef ég færi í ferðalag yrði helgin skemmtileg. Og hvað skeður. Það rigndi svo mikið að ég nennti ekki að standa í því að fara úr bænum. Svona er þetta oft. Svo stóð einu sinni að um helgina mundi ég verða fyrir óvæntum gróða svo ég vgr heima aldrei þessu vant í stað- inn fýrir að fara út og skemmta mér eins og venjulega. Svona nokkuð finnst mér ekki hægt. Ég vona bara að þið athugið þetta að sjá að ykkur. Palli. Svar: Þaö er ekki hœgt aö tala um liagstœöa stjörnuspá, eins og þú gerir Palli minn. Stjörnuspáin þín veröur þvi aðeins hagstœö aö af- stööur stjarnanna séu hagstceðar. Þetta hlýtur þú aö sjá sjálfur. Og þú ferö alls ekki eftir þvl sem stjörnuspáin segir þér. Þú áttir auðvitað aö fara úr bœnum um daginn þótt þaö vceri rigning. Spáin tók ekkert fram um veöur. Og þetta hefur sennilega verið þegar hestamannamótiö var á Þingvöllum. Þaö er alveg greini- legt aö þangaö hefur þú átt aö fára. Sko þarna séröu. Þú lest stjörnuspána en gerir svo þvert ofan í þaö sem hún segir. Þessu veröur þú aö breyta. Svo þetta meö peningana. Þú segist hafa veriö vanur aö fara út og skemmta 4 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.