Fálkinn


Fálkinn - 10.08.1964, Side 7

Fálkinn - 10.08.1964, Side 7
SKRYTLIIR Gamli maðurinn lá fyrir dauðanum eftir langa og erfiða sambúð með Maríu sinni. Presturinn kom til að þjónusta hann. — Þér þekkið sjálfsagt alla þá helztu þarna í himna- ríki, segir sá gamli. Gætuð þér ekki séð um að ég hitti hann sankta Pétur, því að mig langar til að biðja hann um að hleypa henni Maríu ekki inn þegar hún kemur. Maður nokkur hafði lent í handalögmáli með þeim af- leiðingum að flestar tennurn- ar voru brotnar úr honum. Hann fékk sér gulltennur í staðinn og nú glampaði á tanngarðinn á honum í hvert skipti sem hann brosti. Kunningi hans mætti hon- um og sá nýju tennurnar. — Heyrðu, nú verður þú víst að nota fægilög i stað tann- krems, sagði hann. Gamall, gráhærður mað- ur steig inn í leigubíl á Lækjartorgi og bað bílstjór- ann að aka eins hratt og hann gæti. Bílstjórinn gaf inn inn að Elliðaám. Þá spyr sá gamli: „Vitið þér hvert ég ætla að fara?“ „Nei, þér sögðuð ekkert um það. Þér sögðuð mér bara að aka hratt og það þykist ég lika haf a gert.“ Elías var að verða 105 ára og í tilefni af því átti blaða- maður tal við hann. — Hvað segið þér um ungar stúlkur nú á dögum? spurði hann. — Ég get varla sagt að ég hafi fylgst með þeim síðustu tvö árin, svaraði gamli mað- urinn. Predikarinn og púkinn Sælir eru einfaldir. Þetta er nú urðið svo gamalt. Vixy IIOIMIXIi Og svo segjum við að Skotarnir séu nízk- ir, en þeir splæstu þó fleiri mörkum á okkur en við á þá! -— Þér getið farið inn núna. — Sáumst við ekki hér í gær líka? „Hvers vegna ætli hann Ólafur ,sé orðinn svona elli- legur?“ „Það er af því að hann vinnur svo mikið til þess að konan hans skuli hafa efni á að vera ungleg.“ — Og Georg, sem var méð svo fallega liðað, dökkt hár ... FALKINN sá bezti Læknir nokkur uar annálaður fyrir hvat- skeytleg .svör. Einu sinni spurði .sjúklingur nokkur hvort ekki mundi vera gott. f.yrir sig að qanga í ull nœ.st sér. — Nei ætli það, svaraði lœk.n.i\nn. Ef svo illa væri hefði Guð sjálfsagt sett þig í gæruskinn eins og aðra sauði.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.