Fálkinn - 10.08.1964, Qupperneq 20
I þessu greinarkomi rœðum við lítiUega um flugnám c
heimsœkjum einn flugskólann, en þeir eru þrír hér á
landi um þessar mundir. Það er flugskólinn Þytur, sem
við heimsœkjum, en nýlega eignaðist skólinn nýja og
fullkomna kennsluflugvél.
Hér á landi munu nú starfandi þrír flugskólar.
Tveir hér í Reykjavík. Þytur og Flugsýn, og svo
einn norðui á Akureyri, Flugskóli Tryggva Helga-
sonar. Þeir, sem um þessar mundir leggja stund
á flugnám í skólum þessum, munu vera eitthvað
á annað hundrað.
Nú munu margir spyrja, hvort þessir rúmlega
hundrað sem eru að læra flug muni nokkru sinni
fá atvinnu á þessu sviði. Þegar við leitum eftir
svari við þessari spurningu, skulum við hafa hug-
fast að margir læra flug eingöngu sér til ánægju,
en ekki til að hafa af því atvinnu. Af um hundrað,
sem heíja flugnám, eru þeir- tæplega þrjátíu, sem
ljúka atvinnuflugmannsprófi. Flestir ljúka einka-
flugprófi, en nokkrir hætta eftir sólópróf.
Hvað um þessa þrjátíu sem ljúka atvinnuflug-
mannsprófi? Flestir þeirra munu fá atvinnu hjá
flugfélögunum, enda uppgangur hjá þeim báðum
um þessar mundir. og þá eru þess mörg dæmi
að menn leiti út fyrir landsteinana í atvinnuleit á
20
FALKINN