Fálkinn - 10.08.1964, Page 32
m mmfM
jiy Birpj
frá embætti fyrir það, að hann
hafði gefið saman hjón ólög-
lega. Þá var hann orðinn prest-
ur í Stöð í Stöðvarfirði. Má því
með sanni segja, að albrösótt
hafi hún verið embættistíð sr.
Jóns. Hefur drykkjuskapar-
óreglan sjálfsagt verið megin-
orsök þess, því að talið er að
hann hafi þótt „sæmilegur karl-
maður“.
Síðustu æviá-in vat sr. Jón
á Sauðanesi hjá sr. Stefáni
bróður sínum, sein þá var blind-
ur orðinn og hélt aðstoðarprest,
sr. Vigfús Sigurðsson. í veik-
indaforföllum kapilánsins mun
sr. Jón hafa messað fyrir hann,
því á þeim tíma voru guðs-
þjónustur ógjarna látnar niður
falla, ef annars var kostur.
Þann 27. júlí 1845 messaði
sr. Jón á Sauðanesi. Eftir messu
fór hann ásamt fleira fólki út
í danskt kaupskip, sem lá á
Þórshöfn. Varð hann drukkinn
og ætlaði að klifra upp í reið-
ann á skipinu en varð fóta-
skortur og hrataði niður hátt
fall. Kom hann niður í sjóinn
en mun hafa ler.t á borðstokkn-
um í fallinu og lærbrotnað.
Sr. Jón var dreginn með lífs-
marki upp á skipið og raknaði
við. Eftir það lifði hann í viku
og andiðist 2. ágúst. Þetta var
árið 1845. Þannig urðu æviiok
síðasta prestsins á Háisi í
Hamarsfirði. Um þau var þetta
kveðið:
Einarsniður er og dáinn nyrðra,
séra Jón, sem víða var,
veltiköttur gæfunnar.
Hermilega hraut af dönskum
knerri
ofan úr reiða og út í sjó,
eftir lifði viku þó.
G. Br.
FÁLKINIV
FLÝGR LT
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl).
Ef þér verðið þunglyndur þessa dagana þá er
ekki nema um eitt að gera og það er að yfirvinna
þunglyndið. Látið það ekki ná tökum á yður
heldur verið í göðu skapi.
Nautsmerkið (21. avríl—21. maí).
Þessi vika sem nú fer í hönd verður róleg og
þægileg fyrir yður. Það mun ekki verða mikið
að gera og þér ættuð að nota þann tíma, sem
yður gefst aflögu til að sinna áhugamálum yðar.
Tviburamerkið (22. maí—21. júnl).
Ef þér eigið þess kost þá farið í ferðalag um
helgina þvi ekki er ósennilegt að þá mynduð þér
kynnast fólki sem ætti eftir að hafa varanleg
áhrif á líf yðar. Þetta á einkum við ef þér eruð
ólofaður.
Krabbamerki (22. júní—22. júlí).
Það er hætt við að þér verðið fyrir vonbrigðum
vegna samskipta yðar við vissa persónu í þessari
viku. Þér skuluð þó ekki láta það á yður fá og
reiðast því þér eigið mikið eftir við þessa persónu
að sælda.
Ljónsmerkið (23. júlí—23. áqúst).
Þér ættuð að gæta tungu yðar vel í þessari
viku og gæta þess vel að særa engan sem er
yður nákominn. Fimmtudagurinn kann að verða
yður nokkuð erfiður en helgin verður skemmtileg.
Jómfrúarmerkið (2h. ác/úst—23. sevt.).
Þér ættuð að notfæra yður vel þau tækifæri
sem gefast yður í þessari viku en þau verða
einkum viðvík.iandi vinnustað. Þér ættuð að fara
gætilega í fiármálunum.
Voc/arskálamerkið (2j. sept—23. okt.).
Ef þér eruð enn ólofaðir verður þessi vika
með einkar rómantískum hætti. Þér munuð í fyrri
hluta vikunnar kynnast persónu, sem þér hafið
lengi sóst eftir að kynnast og allt útlit er fyrir
að þessi kynni verði langvin.
Svorðdrekamerkiö (21/. okt.—22. nóv.).
Þessi vika verður frekar leiðinleg fyrir yður og
þér skuluð fara ákaflega varlega varðandi vinnu-
staðinn því þar eru ýmsar blikur á lofti. Föstu-
dagurinn verður þó skemmtilegur.
Boc/amannsmerkið (23. nóv.—21. des.).
Þér ættuð að umgangast vini yðar meira en þér
hafið gert að undanförnu því þeir vil.ia yður vel.
Farið gætilega varðandi f.iármálin og trevstið
einni persónu ekki um of..
Steinqeitarmerkið (22. des.—20. janúar).
Þér ættuð að lyfta yður upp um helgina og
gera yður dagamun ef þér getið því þér þarnist
þess reglulega vel. Fyrri hluti vikunnar kann að
verða nokkuð annasamur.
Vatnsberamerkið (21. janúar—18. febrúar).
Þessi vika verður með ýmsum hætti skemmtileg.
Þér munuð kynnast nýiu fólki og útlit er fyrir
ferðalag seinni hluta vikunnar. Þér ættuð að vera
sem mest heima við fyrri hlutann.
Fiskamerkiö (19. febrúar—20 marz).
Nú er um að gera fyrir yður að taka lífinu
með ró og hvíla yður eftir því sem þér mögulega
getið. Þér ættuð því að gæta þess vel að ofreyna
yður ekki í vikunni því það mundi hafa m.iög
alvariegar afleiðingar í för með sér.
32
FALKINN