Fálkinn


Fálkinn - 31.05.1965, Síða 8

Fálkinn - 31.05.1965, Síða 8
eru teknar til varðveizlu í minnishirzl- um starfsfólksins. Þegar einhver spyr: Hvernig er hún í raun og veru, þá eru tilsvör sem þessi jafnan höfð á hrað- bergi. (Þegar sminkarinn sagði.. svar- aði hún . ..) Hún virðist þreytuleg. Hann er einnig hjá förðunarmeistar- anum. Meistarinn getur sagt þér að Burton lítur aldrei á andlit sitt í spegli. Ef hann þarf að lagfæra hálsbindið tyllir hann speglinum þannig að hann sér aðeins biridið, ekki andlitið. Hann hefur stundum gaman af að segja frá ummælum vinar síns O’Toole, sem sagði: „Þig vantar ekki förðun heldur plastik- aðgerð.“ Og hann brosir að þessari fyndni. Aðstoðarleikstjórinn gengur til henn- ar. „Þú ætlar að segja þetta vanalega: Við erum tilbúnir ef þið eruð tilbúin. Ég veit það.“ Enn verður nokkur bið á því að kvikmyndataka hefjist. Um ellefuleytið er búið að hnika þeim fram fyrir kvikmyndavélarnar og ljósin. Al- gjör þögn ríkir á sviðinu. Allir bíða þess að þau hefji starfið. Aðstoðarleikstjórinn skellir óvænt upp úr — en hlátur hans deyr jafn- snögglega og hann byrjaði — kafnar í fæðingunni. Konungur og drottning eru byrjuð. Þau vinna hægt, en án af- láts, einbeittar fagmanneskjur, þaul- reyndar á sviðinu. Myndatökumönnun- um tekst að ná af þeim nokkrum gulln- um augnabliksmyndum. Þá hefst matar- hlé. Þau hverfa á brott. Enginn veit hvert þau halda. Starfsfólkið horfir á eftir þeim inn í græna Rollsinn með Gaston, einkabílstjóranum, undir stýri. Bifreið- inni er ekið á þeysingi. Þau koma aftur eftir óratíma. Engin þorir að gera at- hugasemdir við þessi löngu matarhlé. Bæði virðast harðánægð, þau eru ham- ingjusöm og glaðleg. Hún syngur. Hann talar mikið segir frá námamönnunum í Wales. Hann talar fallegt mál, er lit- ríkur og töfrandi í frásögn sinni. Vinn- an hefst á nýan leik, eftir að frásögn hans lýkur. Þá hafa allir hlýtt á hann hugfangnir og bíða þess að hann segi frá seinna um daginn. Ný hvíld, kampa- vín er borið fram, hann gerir að gamni sínu. Framleiðandinn lýsir því yfir að kvikmyndatakan gangi eftir áætlun. Hver getur trúað því? Þeir sem fylgj- ^ „Ást okkar hefur aldrei ver- ið traustari1.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.