Fálkinn


Fálkinn - 31.05.1965, Qupperneq 9

Fálkinn - 31.05.1965, Qupperneq 9
VIÐ ERUM TILBÚIMIR EF ÞIÐ ERUÐ TILBÚIN ast með vita að framleiðandinn og leik- stjórinn eiga í erfiðleikum með að fá nægilega margar myndir af hjónunum. Þau vilja ekki láta snúa sér til og frá, þau vilja hafa hlutina eftir eigin höfði. Þess vegna þýðir ekki að segja við þau: Einu sinni enn, einu sinni enn. Meðan á myndatöku stendur kemur sendiboði með samkvæmiskjól frá Guy Laroche. Vinnan stöðvast því hún þarf að máta kjólinn. Tízkuherrarnir gefa henni kjólana, sem hún klæðist fyrir stærri samkvæmi eða hátíðir. Það er auglýsing fyrir þá, ef hún vill bera framleiðslu þeirra. Þelr keppast um að hafa kjólana sem glæsilegasta og ný- stárlegasta. Þeir eru listamenn þegar þeir starfa með Elizabeth Taylor í huga. Ef Richard er þreyttur eða leiður ákveð- ur hún að senda afboð í samkvæmi. Setjum svo að þeim hafi verið boðið til kvöldveizlu, borðhalds, hjá Guy de Rothchild, þessum auðuga og áhrifa- mikla baróni. Hún sendir áritað kort: „Vesalings Richard er svo laslegur og þreyttur,“ undirritað E&R. Og hún lætur kaupa blóm fyrir eitt hundrað dollara, sem fylgja kortinu til barónsins. Svo heldur hún heim með Richard í íbúð þeirra í hótelinu. Þar klæðist hún létt- um kvöldklæðnaði frá Dior-húsinu, og þau setjast niður, rabba saman, lesa. Og þegar líður á kvöldið ganga þau til hvílu. Hún sér um að Richard hvíl- ist vel. „Ég hef aldrei séð hana jafn ást- , fangna,“ segir einkaritari hennar, sem hefur þekkt Elizabeth Taylor, í tæp- lega tuttugu ár. Aðrir muldra: „Þau eiga eftir að eyðileggja hvort annað.“ Og samband þeirra er krufið til mergj- ar eins og talað sé um orrustuna við Verdun. Þau fara raunar sjaldan í samkvæmi. Hún vill eiga hann ein. Hún veit líka að það tekur hana margar klukkustund- ir að búa sig í samkvæmi. Hún á kjóla í tugatali, og það verður vandi að velja. Hún þarf að láta snyrta andlit- ið, greiða hárið, hvor tveggja gert af mönnum sem beita kunnáttu sinni af ótrúlegri lipurð og mikilli þolinmæði. Framh. á bls. 11. „Þig vantar ekki förðun heldur plastaðgerð.“ ÍSWÍilSlillpiSi &}>,■ . ; • ; •<•.•/•./ • •.. . ; ■■■■■ .. MM'

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.