Fálkinn


Fálkinn - 31.05.1965, Síða 10

Fálkinn - 31.05.1965, Síða 10
IPMHWmijiirrrirTrTi-----------------------------------r~T~n~~iirrmTiniii|npiffliiiv»iiimi|lWl|iHlW|llliii * '*| Kl HÆOA HÚS ggjajMMgL/ L ^ÁTTA HÆÍ.A HÚs NÝ hverfi rísa í höfuðborg’ íslands, hvert af öðru, mörg augnayndi. Við eigum ekki auðvelt með að fylgjast með hinni öru stækkun borgarinnar. Byggðin hefur breiðzt út með undraverðum hraða austur á bðginn út undir Sundin og Flóann. Hin nýju hverfi eru byggð I samræmi við kröfur nútimans og fengna reynslu á undanförnum árum. Eitt þeirra hverfa, sem mönnum mun finnast til fyrirmynd- ar í skipulagi, er að rísa á túnunum ofan við Eliiðavog, austast í Austurhverfi Reykjavíkur. 1 hverfinu, sem markast af Sæviðar- sundi, Holtavegi og Kleppsvegi verða átta og þriggja hæða fjölbýlishús, raðhús, tvíbýlis- og einbýlishús fyrir meira en eitt þúsund manns. Það sem einkum ein- kennir liverfið er að bíiaumferð er öll utan við hverfið. Bílabrautirnar liggja í útjöðrum hverfisins og menn geta ekki ekið inn í hverfið, og um það allt, heldur aðeins upp að sínu eigin húsi. Inni í sjálfu hverfinu verður friðsælt og fallegt. Þar verða garðar og göngubrautir. Þær liggja um hverfið hið innra út að verzlunarmið- stöð hverfisins, barnaleikvelli, og barna- heimili. Engir bílar, ekkert ryk. f hverfinu verður gert mikið fyrir æsk- una. Auk barnaieikvaliar, með fullkomn- ustu tækjum verður barnaheimili og síð- ast en ekki sízt íþróttavellir og íþrótta- hús, sem Knattspyrnufélagið Þróttur mun reisa. Gatan verður ekki leikvangur barn- anna, né burfa sjoppur og rúnturinn að verða athvarf unglinganna. Framkvæmdir eru nýlega hafnar í liinu nýja hverfi. Þar er nú búið að reisa sex hæðir af átta hæða blokk. Þróttur hefur komið upp gömlu húsi á landi sínu og hyggst byrja að undirbúa gerð maiar- og grasvallar. Byrjað verður á verzlunar- miðstöðinni þegar íbúðarbyggingar eru lengra á veg komnar. Það eru Byggingar- félögin Súð h.f. og Byggingartækni h.f. sem byggja stóru f jölbýlishúsin, en bygg- ingafélög símamanna, vélstjóra og lög- reglu, auk nokkurra annarra aðila, sjá um hin fjölbýlisliúsin. Þetta nýja hverfi rís þar sem áður voru mikil og stór tún. Þaðan er útsýni hið fegursta upp til fjalla og út á Sundin. IVÝTT HVERFI í RFYKJAVÍK

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.