Fálkinn


Fálkinn - 31.05.1965, Blaðsíða 15

Fálkinn - 31.05.1965, Blaðsíða 15
ÞAÐ ER SJALDGÆF SJÓN Það er sjaldgæf sjón að sjá kynbombu með pípu í munninum. Þýzka stjarnan Elke Sommer er harður keppinautur amerískra leikkvenna um sæti Marilyn Monroe. Hún starfar um þessar mundir í Hollywood. Hér er hún með manni sínum Joe Hyams. Elke tottar pípuna, sjálfri sér og öðrum til skemmtunar. Henni fer alls ekki illa að hafa pípu í munninum. Hvenær byrja konur almennt að reykja pípu? ★ GLÆSILEGASTA far- þegaskipið á höfunum, Mich- elangelo, eign Italian Line sigldi jómfrúarferð sína fyr- ir fáeinum dögum milli Genúa og New York. Michel- angelo hefur vakið mikla að- dáun allra sem hafa skoðað skipið eða myndir af því, að ekki sé talað um þá, sem hafa siglt með því. Skipið þykir óvenjulegt ásýndum og þaðan af glæsilegra neðan þilja en þar er allt sam- kvæmt allri nýjustu tízku — salir, gangar og herbergi skreytt listaverkum. ★ WESTINGHOUSE hefur framleitt grammófónplötur og grammófón fyrir myndir, tal og tón Tækið nefnist Phonivid. Á plötunni eru bæði ljósmyndir, tónlist og frásögn. Myndin kemur fram á sjónvarpstæki, en tal og tónn í venjulegum hátölur- um. Á báðum hliðum stórr- ar 33 snúninga plötu má koma fyrir 400 myndum, ásamt 40 mínútum af tali og tónlist. Þetta jafngildir 400 síðna „myndabók“- Westinghouse gerir ráð fyr- ir að geta síðar framleitt grammófónplötur með kvik- myndum ásamt tali og tón- um. ★ NÝLEGA hefur Hedy Lamarr hin fræga kvik- myndaleikkona krafizt skiln- aðar frá eiginmanni sínum. Hún gerir kröfur um mánað- arlegar greiðslur frá eigin- manninum, sem nema sam- tals um 20 þúsund krónum, á þeirri forsendu, að hún sé gjörsamlega eigna- og peningalaus. FÁLKINN 15 í PEIMIIMGAGJÁ Á ÞINGVÖLLUIVI Norðmaðurinn Jean-Thommes Thomassen er heimskunnur froskmaður, sem hefur um nokkurra ára skeið unnið afrek við björgun verðmæta af botni hafs og vatna. Hann kom til íslands fyrir tveimur árum og tók þátt í köfun á botn Peningagjár á Þingvöllum. Leiðangurinn var kvikmyndaður og síðan sýndur í sjónvarpi á Norðurlöndum. Thomassen kom með margt verðmætra muna upp úr gjánni. í frásögn norsks blaðs segir að fulltrúi Þjóðminjasafnsins hafi verið viðstaddur. — Myndirnar skýra sig sjálfar. Á annarri þeirra er Thomassen að kanna það sem er á botni Peningagjár. Hin myndin er tekin eftir að hann kom upp úr gjánni. Hann virðist vera ánægður með það sem hann fann þar. Svo er að sjá að hann haldi á hálsmeni og talnabandi.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.