Fálkinn - 31.05.1965, Blaðsíða 27
VERÐLAUNAGETRAUNIN
TILHÖGUN VERÐLAUNA-
GETRAUNAREMNAR
★ Verðlaunagetraun Fálkans, sem
hófst í 18. tölublaði og lýkur
mánudaginn 28. júní er í senn
stórglæsileg og spennandi.
★ í hverju blaði verður birt mynd
af íslenzkum leikara í hlutverki
og eiga lesendur að ráða af mynd-
inni hvaða leikrit er um að ræða.
Til að gera getraunina auðveld-
ari, eru talin upp þrjú leikrit og
er eitt af þeim hið rétta svar.
★ Dregnir verða út þrír glæsilegir
vinningar.
1. vinningur: 15 daga ferð til Costa
Brava á Spáni fyrir tvo á vegum
Ferðaskrifstofunnar Sögu. Flogið
til Kaupmannahafnar og heim
aftur með Flugfélagi íslands. Ferð-
in stendur frá 6.—20. september.
Fæði og hótelherbergi er að sjálf-
sögðu innifalið.
2. vinningur: Ferð fyrir einn með
GuIIfossi til Kaupmannahafnar og
heim aftur með viðkomu í Leith.
Farið héðan 18. september og
komið til Reykjavíkur 30 septern-
ber. Fæði og þjónusta innifalið.
3. vinningur: Flugferð fyrir einn til
London og heim aftur með Flug-
félagi íslands á tímabilir.u októ-
ber—nóvember í haust.
FOKKER „FRIEIMDSHIP”
Eftir margþættar athuganir
valdi Flugfélag íslands skrúfu-
þotuna Fokker Friendship til
flugs á flugleiðum innanlands.
„Friendship" skrúfuþotan er
upphaflega hugsuð sem arftaki
DC-3 flugvéla, en að auki hef-
ur hún reynzt færi um að leysa
verkefni, sem til skamms tíma
voru einungis ætluð fjögurra
hreyfla flugvélum. Síðan „Fri-
endship" skrúfuþotan, sem
smíðuð er af Fokker verksmiðj-
unum í Hollandi, hóf áætlunar-
flug árið 1958, hefur vegur
hennar vaxið ört og hún á mikl-
um vinsældum að fagna, jafnt
meðal flugfarþega og flugfé-
laga. Löng reynsla verksmiðj-
anna í smíði farþegaflugvéla,
allt frá árinu 1919, hefur reynzt
haldgóð og sé litið til baka, sést
að Fokker flugvélar hafa unn-
ið sér veglegan sess í flugsög-
unni. Nöfn eins og „Southern
Cross“, sem fyrst flaug frá
Bandaríkjunum til Ástralíu og
„Friendship“ Amalia Erhart, en
hún flaug fyrst kvenna yfir
Atlantshaf, hljóma kunnuglega
og enn var það Fokker flugvél,
sem fyrst flaug yfir Suður-
heimskautið. Þegar þetta er
skrifað hafa verið smíðaðar
og pantaðar ,312 „Friendship"
skrúfuþotur. Þær þykja kosta-
gripir hvort heldur er á sól-
bökuðum flugvöllum 1 hitabelt-
inu eða í svala norðursins. Eig-
endur „Friendship“ eru 89 að-
ilar í 31 landi og flugstunda-
íjöldi þeirra samanlagður er
yfir eina og hálfa milljón
stunda.
„Friendship“ veitir farþegum
sínum frábært tækifæri til út-
sýnis um tuttugu stóra spor-
öskjulagaða glugga. Sama hvar
setið er í farþegarýminu, ekk-
ert skyggir á því að „Friend-
ship“ er háþekja. Flugvélin er
því tilvalinn farkostur fyrir þá
sem vilja skoða hina stórbrotnu
náttúrufegurð íslands úr lofti.
Farþegarými „Friendship“ er
rúmgott, bjart og vistlegt. Sæti
eru fyrir 48 farþega í þægileg-
um stólum með stillanlegu baki.
Við hvert sæti er ljós, loftræst-
ing og bjölluhnappur til þess
að kalla á flugfreyjuna. Far-
þegarýmið er búið jafnþrýsti-
útbúnaði, sem gerir flug ofar
veðrum í mikilli hæð mögulegt
og eykur vellíðan farþeganna.
6. júní er áætlað að Fokker
Friendship hefji sérstakar
hringflugsferðir á sunnudögum
um ísland. Áfangastaðir verða
ísaf jörður — Akureyri — Egils-
staðir — Höfn í Hornafirði —
Fagurhólsmýri og Reykjavík.
Ferðin stendur yfir í tvær
klukkustundir og kostar krónur
2.500,00.
Þá eru áætlaðar einar 10
eins dags ferðir héðan til Kulu-
suk á Grænlandi og 6 fjögurra
daga ferðir til Narssarssuaq á
Grænlandi, Eír>s dags ferðirnar
verða á tímabilinu 27. júní til
22. ágúst, en fjögurra daga ferð-
irnar á tímabilinu 17. júlí til
7. ágúst.
MYIMD 4
Einn af okkar vinsælustu leikurum er Brynjólfur
Jóhannesson. Hann er hér í eftirminnilegu hlut-
verki í leikritmu:
1. Islandsklukkan?
2. Hart í bak)
3. Maður og kona?
Rétt svar:
Þegar verðlaunagetrauninni lýkur 28. júní eiga þátttak-
endur að klippa út allar myndirnar og senda þær ásamt
svörum til ritstjórnar Fálkans, pósthólf 1411. Annað
form á úrlausnum verður ekki tekið til grcina þegar
vinningarnir verða dregnir út.