Fálkinn - 31.05.1965, Síða 34
Danska nostulínsverksmiðjan
Danska postulínsverksmiðjan
Bing & Gröndahl, sem hefur
verið starfrækt í 112 ár, hefur
fyrir löngu unnið sér heims-
frægð.
Súpuskál úr „SADOLIN" mat-
arstelli.
í tilefni þess, að innan tíð-
ar vei'ður innflutningsleyfi á
vörum verksmiðjunnar gefið
frjálst hér á landi, kom hingað
til lands útflutningsstjóri fyrir-
tækisins A. Ritz, og sýndi hann
fréttamönnum og öðrum gest-
um kvikmynd um starfsemi
fyrirtækisins og lýsti jafnframt
hvernig postulín verður til.
Um miðja 19. öld stofnuðu
bræðurnir M. H. og J. H. Bing
verksmiðjuna ásamt postulíns-
gerðarmanninum F. V. Grön-
dahl, sem einkum gerði postu-
lín sitt eftir verkum Bertel
Thorvaldssen.
Gröndahl dó, er verkið var
að komast í gang, og máttu
bræðurnir þá byrja að nýju.
Þeir réðu í sína þjónustu mál-
ara og myndhöggvara erlendis
frá, sem aftur kenndu Dönum.
Bræðrunum tókst að koma
framleiðslunni á arðvænlegt
stig, og það voru framleiddir
vasar, skálar, standmyndir,
ásamt kaffi- te- og matarstell-
um, sem hafa hlotið heims-
frægð, og er þessi framleiðsla
nú seld til fleiri en 60 landa.
Bing & Gröndahl hafa haft
marga kunna listamenn í sinni
þjónustu. Þar sem íslendingar
þekkja vel hið svonefnda máva-
stell, sem er eitt af frægustu
verkum verksmiðjunnar, er
gaman að geta þess, að það
var kona að nafni Fanny Garde,
sem teiknaði mávana. Þeir sem
eiga mávastell geta glaðst yfir
því að það er til hjá drottn-
ingunni í Buckinghamhöllinni
í London.
Það má segja, að blái litur-
inn sé einkennandi fyrir danska
postulínið. Einnig er notaður
mjög fallegur svartur litur,
sem vai'ð til eftir margra ára
erfiðar tilraunir. Aðrir litir
þola ekki hitann við brennsl-
una, ca. 1450° á celsíus, og því
verður að blanda þá með 24
karata gulli.
í dag vinna hjá verksmiðj-
unni 1200 manns. Postulínsgrip-
ir, sem hafa verið framleiddir
hjá vei’ksmiðjunni, eru víða til
hjá fyrirfólki og söfnum.
Það er vert að geta þess, að
Bing & Gröndahl hefur fram-
leitt litla veggplatta með ís-
lenzkum fyrirmyndum (með
þrykktum myndum en ekki
handmáluðum) og sagði A.
Fritz, að slíka þjónustu hefði
fyrirtækið ekki veitt öðrum
en íslendingum. Umboðsmaður
fyrirtækisins hér á landi er
Karl K. Karlsson.
JÓLADISKAR
Allt frá árinu 1895 hefur
Bing & Gröndahl látið gera
sérstaka jóladiska, og frá árinii
1915 hafa komið hátíðadiskar
á fimm ára fresti og er fyrir-
myndin alltaf valin úr eldri
diskum.
Þar sem enginn fær vitneskju
um hve margir diskar eru
gerðir hverju sinni, hafa safn-
arar og antikhöndlarar mikinn
áhuga á þessum diskum. Allir
jóladiskarnir eru uppseldir hjá
verksmiðjunni. Ef að einhver
íslendingur ætti í fórum sínum
fyrsta diskinn, sem var gerður
1895, getur hann selt hann á
800 dollara og diskurinn frá
1959 er nú 100 dollara virði.
1. Postulíni hellt í mót.
2. Afsteypan yfirfarin.
3. Afsteypan máluð.
4. Afsteypunni difið í glans-
lög.
POSTULÍNSGERÐ
34
FALKINN
Hvernig er postulínsgripur
búinn til? Við skulum taka
sem sýnishorn styttuna „Ugg-
æðingsleg dirfska“.
Er myndhöggvarinn hefur
lokið við að gera styttuna þarf
að skipta henni í nokkra parta
til að gera aðalmót eftir, en
þau samanstanda af 38 hlut-
um! Næst er postulínsvökva
hellt í aðalmótin. Postulíns-
vökvinn harðnar fljótt og nú
eru mótin tekin utan af hinum
ýmsu hlutum. Listamaðurinn
tekur þessa parta og límir þá
saman með öruggum og fimum
handtökum. Hann fjarlægir öll
merki um samskeyti og fyllir
í allar holur. Nú líður vika þar
til gripurinn fer í brennslu við
1700° hita. Þá er komið að
undirlagsmálningu og nú þarf
að handmála hvern grip. Stytt-
an, sem nefnd er hér að framan,
er einkum máluð í gráum og
bláum lit, en andlit og hendur
er litað með blöndu er inniheld-
ur 24 karata gull. Því næst
er styttunni difið ofan í glans-
lög, sem hylur litina þangað
til eftir brennsluna, en þá
koma þeir út fallegri og skírari
en áður.
Við síðustu brennslu þarf
mikla aðgát. Hún stendur yfir
í um það bil 35 Jdukkustundir
og fer hitinn upp í 2700° F.
Eftir brennsluna hefur styttan
minnkað um Ys vegna hins
gífurlega hita. Það ríkir yfir-
leitt mikil eftirvænting þegar
brennsluofninn er opnaður, því
að þrátt fyrir mjög vandaðan
undii'búning er aldrei hægt að
segja með fullri vissu, hvernig
postulíninu reiðir af inni í ofn-
inum. Þess vegna er hver grip-
ur skoðaður vandlega eftir að
hann kemur úr ofninum og
honum hent, ef hann stenzt
ekki hið stranga gæðamat.