Fálkinn - 31.05.1965, Qupperneq 42
►
• Kvikmyndir
Framh. af bls. 33.
margar bækur um „hina miklu
listamenn þeirrar nýju stefnu,
sem segir: að skilja er að
njóta.“
„Ég veit ekki,“ sagði fólkið.
Eru þessir menn að reyna
að koma einhverjum boðskap
til fólksins, eru þeir sjálfir eitt-
hvað í líkingu við þá lýsingu,
sem maðurinn, sem ég nefndi
gaf af þeim — eða eru þeir
aðeins að endurspegla veröld-
ina?
Er tilbreytingarlaust talið í
Annee deriere á Marienbad, til-
raun til sefjunar eða hvað?
Er klippingin, sérstæð, og að
því er virðist ruglingsleg, þann-
ig til að vekja ákveðin hug-
hrif, eða hvað annað?
Er hvarf Önnu í Ævintýri
Antonionis eitthvað meira en
venjulegt hvarf, leitin að henni
meira en venjuleg leit?
Er veizla flækinganna í Viri-
diönu eitthvað meira en venju-
leg svallveizla utangarðsmanna.
Hundurinn, sem bundinn er
aftan í vagninn meira en venju-
legur hundur?
Hvaða atriði eru tákn, hver
ekki? Hvaða klipping er gerð
af nákvæmri fyrirhyggju, hver
ekki?
Ég býst við að mörg ykkar
kannist við þá tilfinningu, að
fiðringur fer um bak ykkar og
ykkur finnst sem þið verðið
léttari, unz þyngdarleysið verð-
ur nær algilt, ef þig gefið ykk-
ur því á vald, er þið hlýðið á
tónlist, sem hrífur ykkur djúpt.
Sömu tilfinningu veita ykkur
vafalaust margar myndir þeirra
manna, sem ég hef á minnzt.
Er nokkur þörf á því að
reyna að skilgreina þá tilfinn-
ingu — þið njótið hennar —
og að njóta er að skilja — eða
hvað?
H. E.
• Barnapeysur
Framh. af bls. 39.
Nú er rönd 1 prjónuð, jafn-
framt er sett merki við 2 1. á
undirerminni, aukið út 1 1.
beggja vegna við þessar 2 1. á
3 cm millibili, þar til 64 1. eru
á. Að rönd 1 lokinni er grunn-
mynstrið prjónað, þar til sídd-
in er 32 cm, þá er rönd 1 prjón-
uð á ný. Prjónið að lokum 1
| HALLUR SÍMONARSON skrifar um |
=HS| IIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIU1 llllllllllllllllllllllllll ||iiiiii,,i,"i|iiiil||| m
UNDARLEGT BRÉF.
Austur gefur. Norður-Suður á hættu.
♦ K-10-8-5
¥ Á-D-9-4
♦ Á-9-3
♦ G-5
A Á-4-3 A D-6
¥ G-3 ¥ K-8-7-6-2
♦ 8-5 ♦ K-D-G-10
♦ K-10-8-7-6-2 * 9-4
♦ G-9-7-2
¥ 10-5
♦ 7-6-4-2
* Á-D-3
Sagnir:
Austur Suður Vestur Norður
1 V pass 2 * dobl
2 ♦ 2 A pass 3 ♦
pass 4 A pass pass
Vestur spilaði út hjartagosa.
Hinn kunni bandaríski birdgespilari Becker fékk eitt
sinn þetta undarlega bréf.
„Kæri herra Becker. Ég hef lesið margar bridgebækur og
greinar um bridge í þúsundatali, og það er skoðun mín,
að höfundarnir hafi ekki hugmynd um hvað þeir eru að
skrifa.
Þeir hafa t. d. þá undarlegu hugmynd, að það sé rétt að
spila frá veiku hendinni til þeirrar sterku, en mín reynsla
er sú, að það sé mun betra að spila frá þeirri sterku til
hinnar veiku. Og skal ég sanna mitt mál með spilinu hér
á undan.
Ég átti að spila fjóra spaða — og flestir myndu segja,
að ómögulegt sé að vinna þá sögn — það eru tveir tap-
slagir í spaða, einn í hjarta, tveir í tígli og einn í laufi. En
ég skal sýna hvernig spila á slík spil
Vestur spilaði út hjartagosa. Ég vann á ásinn og spilaði
hjartafjarka. Og ég var ekki neitt undrandi, þegar ég vann
slaginn á tíuna. Auðvitað segja sumir, að Austur hafi ekki
unnið á kónginn, þar sem hann reiknaði með því að ég ætti
einspil. En kenning mín stóðst.
Því næst spilaði ég laufaþristi og það er nokkuð sem stend-
ur ekki í bridgebókum. Vestur var greinilega á báðum átt-
um, en að minnsta kosti gaf hann mér slaginn á gosann í
blindum. Og enn reyndist kenning mín rétt, þegar ég spil-
aði spaðafimmi frá blindum, Austur lét lítið, og spaðasjöið
þvingaði út ásinn. Það er engin ástæða til að rekja spilið
áfram, spaðakóngurinn fangaði drottningu þannig, að ég
missti aðeins einn slag á spaða og tvo á tígul. Ég vona
að þér skiljið hvað ég meina.“
umf. brugðna og 4 umf. sléttar.
Fellt af.
Húfa: Fitjið upp 80 1. með
ljósbláu garni á sokkaprj. nr
2V2 og prjónið 2 cm brugðn-
ingu (1 sl., 1 br.). Sett á prj.
nr. 4 og prjónað slétt. Rönd 1
prjónuð og því næst grunn-
mynstrið, þar til húfan er 18
cm djúp. Prjónið 2 og 2 1.
saman, þar til 8 1. eru eftir,
band dregið í gegnum. Dúskur
búinn til, tyllt á kollinn. Húfan
pressuð lauslega.
Frágangur: Ermar og bolur
pressað á röngunni. Mælt fyrir
handvegssídd. Saumið tvisvar
í vél, kringum handvegina,
klippið sundur milli saumfara.
Fyllið kantinn að ofanverðu
bolsins niður á rönguna. Saum-
ið axlirnar saman á réttunni,
saumið í allar brugðnu lykkj-
urnar. Skiljið eftir 19 cm breitt
op fyrir hálsmál. Saumið erm-
arnar í frá réttu, saumið í
brugðnu lykkjurnar á reminni
og fyrstu 1. fyrir innan vél-
sauminn á bolnum. Kanturinn
að ofanverðu á erminni lagður
yfir sauminn, tyllt niður. Allir
saumar pressaðir.
1— LAUSNIN ----------
Bls. 4.
Á neðri teikningunni hafa
orðið eftirfarandi breytingar:
1) Húsþakið er orðið svart.
2) tröppurnar í stiganum eru
nú fjórar. 3) Trýnið á hvutta
er orðið lengra. 4) Hvíta kýrin
hefur hreyft einn fótinn. 5) Aft-
asti unginn til vinstri er kom-
inn lengra aftur úr. 6) Þriðji
unginn frá gráu öndinni er nú
með hvítt nef. 7) Hvíta öndin
er nú komin með tíu unga.
'AMAK'IO F0RST3ÓRI.EN lOÚLÍ.ER
EITT bR síoow ÉC, avRJAOl, EN Éc,
v/ILtil f.MBNflMlrn HVIENflER C/T-
ISOBftllWARPflEuR ER’ • • ■
42 FÁLKINN