Fálkinn - 08.06.1965, Qupperneq 4
GLÆSILEG VERZLUIM
Akureyri er fyrirmyndarbær um margt. Þar er KEA með margháttaða
starfsemi, sem rekin er af miklum myndarskap, og við hlið þess starfar
einkaframtakið og veltur á ýmsu í samkeppni þessara aðila. Við hlið aðal-
stöðva KEA er t. d. rekin ein fullkomnasta og glæsilegasta verzlun landsins
— verzlunin Amaro.
Eigandi Verzlunarinnar, Skarphéðinn Ásgeirsson, kynnti sér ýmsar
verzlanir erlendis áður en hann hófst handa við byggingu verzlunarinnar
og eftir raekilega umhugsun valdi hann sem fyrirmynd nýtízkulega svissneska
verzlun. Á myndinni hér til hliðar sést verzlunin utan frá og vefnaðarvöru-
deildin, en verzluninni er skipt í deildir og allt fyrirkomulag innandyra, eins
og bezt gerist í verzlunum erlendis. Sumir segja að Skarphéðinn sé tíu
árum á undan sinni samtíð, en reynslan á eftir að skera úr um það. Eitt
er víst, að ef þessi verzlun væri staðsett í Reykjavík, þætti hún áreiðan-
lega bera af öðrum verzlunum.
Þegar Skarphéðinn auglýsir, þá segir hann eitthvað á þessa leið: Það
er óþarfi að fara til Glasgow, þið fáið allt sem ykkur vantar í Amaró
FÁLKIIMIM KEIVIIJK
EMMÞÁ ÚT
Kona, sem dvelur i Dan-
mörku um þessar mundir og
er áskrifandi að Fálkanum
skrifaði heim og spurði hvort
Fálkinn væri hættur að koraa
út, þar eð hún hafði ekki feng-
ið tvö tölublöð af einhverjum
ástæðum, sem okkur eru ekki
kunnar. f tilefni af þessu orti
maður hennar eftirfarandi vís-
ur:
Auðs er flaska ei full að stút,
en fögur vonin seiðir,
svo Fálkinn kemur ennþá út
og andagiftin freyðir.
En ef vonin verður tál,
um veig úr þeirri flösku,
Fálkans daprast flug og mál
og froðan verður að ösku.
L. H.
MÉR FER ÉG AF BAKI
R. V. sendi okkur sögu, sem
við könnumst við, en aldrei er
góð vísa of oft kveðin:
Mikill hestamaður var vel
við skál er hann ferðaðist í
fyrsta skipti með skipi. Það
var haugasjór og þegar hesta-
maðurinn ranglaði út á þilfarið,
kom mikil vindhviða og gekk
sjór yfir skipið. Þá var sem
rynni af hestamanninum andar-
tak og hann heyrðist tauta um
leið og hann brá annarri löpp-
inni út yfir borðstokkinn:
„Mér er sama hvað aðrir
gera, en hér fer ég af baki“.
Baldvin smiður var rangeygð-
ur á öðru auga og horfði jafnan
útunda sér á menn og málefni.
Hann var hin mesta hamhleypa
við vinnu og vildi að aðrir
höguðu sér eins. Eitt sinn
skammaði hann vinnufélaga
sinn í rúman hálftíma, án þess
að manngreyið svaraði honum
nokkru. Loks þegar Baldvin
þagnaði gekk maðurinn til
hans og sagði:
— Það er einkennilegt með
þig, Baldvin minn, að þú skul-
ir aldrei geta litið nokkurn
mann með réttu auga!
(Send. Sig. Draumland).
AUGMFEGRUM
Kæri Fálki,
Mig langar af fá upplýsing-
ar um hvar ULTRA LASH
MASCARA fæst. Svo þakka ég
allar sögurnar, þær eru frá-
bærar.
G. Þ.
Svar:
Þar sem þetta er hið þekkta
vörumerki Maybelline hlýtur
augnfegrunartækið að fást í
hverri tízkuvcrzlun hér í borg.
Sltrifaðu Regnbogamun, Tízku-
skemmunni, eða hvað þessar
verzlanir heita allar saman, og
pantaðu eitt stykki gegn póst-
kröfu. Ef þú nærð ekki í þetta
með þessu móti, skaltu skrifa
okkur aftur og þá skulum við
h.jáipa þér. Þakka þér fyrir
hlý orð, sem við af hæversku
vildum ekki setja á þrykk!
Pabbastrákur var orðinn 4
ára, en var samt ekki hættur
að pissa undir og skammaðist
hann sín mikið þegar hann
vætti rúmið. Hann reyndi samt
með alls kyns brögðum að snúa
sér út úr vandræðum sínum.
Einn morgun, þegar móðir
hans kom til hans, segir strák-
ur með. mikilli ásökun í rómn-
um:
—- Mamma, þú hefur sett
blautt lak i rúmið mitt i gær-
kvöldi!
(Send. R. V.)
VAMDRÆÐI
Kæra pósthólf!
Ég er i dálitlum vandræðum,
og vonast ég til að þú getir
leyst úr þeim fyrir mig. Þannig
er mál með vexti, að ég er aga-
lega hrifinn af stelpu, en hún
FYRiR 20 ÁRIIM
Nú til dags opnar maður
varla blað að ekki sé getið um
komu nýrrar flugvélar. Blik-
faxi kom í gær og Guðríður
Þorbjarnardóttir kemur á
morgun, Flugsýn fær nokkr-
ar flugvélar á næstunni og
Eyjaflug hyggst bæta flug-
vélakost sinn o. sv. frv.
Það er samt ekki lengra síðan
en árið 1946, að Flugfélag Is-
lands var ek'ki öflugra en
það, að það varð að taka á
leigu uppgerða sprengjuflug-
vél, LIBERATOR, hjá Scottish
Airlines til að annast milli-
landaflug fyrir félagið. Þessi
mynd er tekin þegar flugvélin
kom til Reykjavikur með fyrstu
farþegana, sem voru 7 talsins.