Fálkinn


Fálkinn - 08.06.1965, Síða 11

Fálkinn - 08.06.1965, Síða 11
STRÚTAR Strútarnir eru ekki fallegir fuglar, þó að fjaðrirnar á þeim séu eftirsóttar. Ljótari haus er varla til á nokkrum fugli en strútnum. Það er karlfuglinn, sem býr til hreiðrið, en það er létt verk, því að hreiðrið er ekkí annað en hola í sandinn. Kvenfuglinn verpir eggi annan hvern dag þar til komin eru fjórtán til fimmtán egg. Kven- fuglinn liggur á eggjunum á daginn, en karlfuglinn á nótt- unni. Það er ekki út í bláinn, því að fjaðrir karlfuglsins eru svartar og sjást ekki í myrkr- inu, en fjaðrir kvenfuglsins eru módröfnóttar og samlitar sand- inum á daginn. —v— FLJÓTVIRKIR RITMÖFLIMDAR Enginn mælikvarði er til um það, hve fljótir rithöfundar eru yfirleitt að semja bækur sínar. Sumir eru afar lengi og margvelta hverri setningu fyrir sér, en aðrir hafa ekki undan að skrifa niður hugsanir sínar. Líklega hefur Alexander Du- mas eldri verið hraðvirkastur allra rithöfunda, því að hann samdi 52 bækur á einu ári. Hann notaði að vísu þá aðferð að segja samstarfsmönnum sín- um fyrir verkum, en leiðrétti svo á eftir. En hvað um það — þetta var vel af sér vikið. Sir Arthur Conan Doyle, höf- undur Sherlock Holmes sagn- anna, skrifaði einu sinni 12000 orða sögu í einni lotu, án þess að standa upp frá skrifborði sínu á meðan. Um hann er einnig sagt, að eitt kvöld hafi kunningi hans setið hjá hon- um og verið að segja honum frá glæp, sem hafði verið drýgð- ur þá um daginn. Morguninn eftir sýndi hann kunningja sín- um nýja Sherlock Holmes sögu, sem byggðist á þessum glæp. Hann skrifaði þá sögu áður en hann fór að hátta! Þá er sagt að H. G. Wells hafi oft skrifað um 10.000 orð á dag. .—v— EKKERT IMÝTT Ekkert er nýtt undir sólinni, segja þeir vísu. — í etrúska safninu í Papa Júlía, skammt fyrir utan Róm, er t. d. haus- kúpa, tvö þúsund ára gömul, og í henni eru gulltennur og „brú“ eins og það er kallað á ; Jaril þér yranítvaralauA m í fatialayii eia ^eriatHfggiÍ jíét hjá ÁBYRGÐ H/F %■ í ferðaáætlun yðar reiknið þér ekki með að lcnda í slysi, liggja á sjúkrahúsi eða að far- angri yðar verði stolið. En reynslan hefur sýnt að þetta verður maður að taka með í reikning- inn. Kaupið því allt-í-eitt ferðatryggingu hjá ÁBYRGÐ áðvir en þér haldið af stað. Hún innifelur nauðsynlegustu tryggingar á ferðalag- inu — gefur nauðsynlega tryggingarvernd. Grandvar maður ferðast aldrei ótryggður. Hafið samband við Abyrgdp — tryggingarfélag fyrir bindindismenn — i Skúlagötu 63 — símar 17455-17947 máli tannlækna nú á dögum. Hraðritun hafa menn líka kunnað í gamla daga, þó að hún væri með öðru sniði en tíðkast nú. Það er talið að mælsku- snillingurinn Cíceró hafi orðið fyrstur manna til þess að kenna skrifurum sínum að nota tölur og tákn í stað heilla setninga. HVÍSLAIMDI VEGGIR Margir munu hafa heyrt get- ið um „hvíslandi“ svalirnar í Pálskirkjunni í London, en þar heyrist veikt hvísl á ákveðnum stað þvert yfir kirkjuna. Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum um einkennilegt bergmál og má nefna grafhýsi það, sem Súlla reisti yfir lík konu sinn- ar. í kjallaranum í Pantheon í Róm er bergmálið líkast því að skotið væri af byssu. Og ef mað- ur syngur nokkra tóna í skakka turninum í Pisa, þá er berg- málið eins og hljómur í sterku orgeli. FALKINN 11

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.