Fálkinn


Fálkinn - 08.06.1965, Page 12

Fálkinn - 08.06.1965, Page 12
Á nokkrum stöðum hef ég rotað orðið „tígrisdýr" í sam- 1 andi við Chuck og kunningja ) ans. Þetta kann að virðast til- raun til dramatískra áhrifa og 1 efur ef til vill verið það, þegar rg var að skrifa það, en að t' ðrum þræði einnig, að ég held, táknrænn sannleikur. Þessir náungar voru „dreng- i.“ aðeins vegria skilgreiningar lagaákvæðis og „afbrotaungling- ar“ aðeins af slysni. Hvatir þeirra eiga ekkert skylt við 1 röngbýl fátækrahverfin, við ippleyst heimili eða vanmátt minnihlutans. Þetta er þjóð- félagsvandamál, en það, sem knúði þessa drengi áfram, er eldra en þjóðfélagið, jafn gamalt og djúpstætt og rætur mann- kynsins. Vandamál þeirra var hið sama og „tígrisdýrsins", sem ávallt er á meðal okkar og í upphafi hlaut nafnið Kain. Tígrisdýrið er alltaf ungt. glæpir þess eru glæpir æskunn- ar, og þeir virðast hafa marg- faldazt á seinni tímum. Ef til vill stafar það að einhverju leyti af umburðarlyndisafstöðu okkar gagnvart æskunni. Eða kannski aðeins af því mannfjöldinn hef- ur aukizt og þá um leið tala þessara ofbeldishneigðu barna, sem vaxa upp og verða afbrota- menn. Ungir menn, átján, tutt- ugu, tuttugu og fimm ára. Á þeim aldri hafa þeir nær alltaf komizt undir mannahendur. Það er fátt eldri manna í hópi þeirra, sem haldnir eru æsingagirnd kvalalosta eða morðæði. En áður en þeir eru gripnir, hefur margt saklaust fólk þjáðst. Lítið í hvaða biað sem er, hvar og hvenær sem er, og þér mun- uð að líkindum finna a. m. k. ■pina frásögn af þeirri tegund plæps, sem ég á við. Nema frá- sögnin sé þeim mun hræðilegri eru henni venjulega látnar nægja tiu til tólf línur. Þar er sagt frá rafni fórnardýrsins og heimilis- fangi og hvort hann lifði eða dó, það er allt og sumt. Og haf- !rðu ekki þekkt hann persónu- lega, muntu aðeins hrista höf- uðið snöggvast yfir fólsku mann- anna og fara að lesa knatt- spyrnufréttirnar. Fyrir fórnarlambið og fjöl- skyldu hans er þetta ekki svo einfalt. Tigrisdýrið hefur kram- ið þau og merkt um aldur og ævi. Ég get talað um þetta af þekk- ingu, vegna þess að ég var sjálf- ur sex línu frétt á forsíðu. Ég var fórnardýr. Nafn mitt er Walter Sherris. Ég bý í Mall’s Ford, Ohio, sem er stáliðnaðarborg I nánd við Pennsylvaniubrautina. Fyrir átján mánuðum var ég þrjátíu og eins árs gamall. Ég var heilbrigður. Ég hafði góða atvinnu með framtíðarmöguleik- um. Ég átti fallegt heimili í út- hverfinu og á því hvíldu ekki meiri skuldir en gerist og geng- ur, sömuleiðis nýjan bíl, nærri skuldlausan. Ég átti fallegustu og Skynsömustu konuna í hérað- inu, þriggja ára dóttur, sem var ímynd hennar, og lítinn dreng, sem nýlega var orðinn eins árs. Ég var í blóma lífsins. Þá var það eitt vorkvöld, að ég fór í gönguferð. Atvinna mín var við viðskipta- deildina i Valley Steel Fabrica- tors, Inc. Ég vann lengi fram- eftir þetta kvöld við að gera upp viðskiptareikninga fyrir hálfsársfundinn. Það var heitt og einmanalegt, og um hálf- ellefu leytið fannst mér ég þurfa smá hlé. Schmitz gamli hleypti mér út um aðaldyrnar. Ég sagði honum, að ég ætlaði að fá mér kaffibolla og bað hann að opna aftur fyrir mér eftir svona stundarfjórðung. Bíllinn minn var á bíiastæðinu við bygging- una, en ég skildi hann þar eftir. Kaffistofan á horninu við þjóð- veginn var aðeins spölkorn burtu, og ég þurfti á hreyfing- unni að halda, ekki síður en kaffibollanum. Valley Steel stendur við boga- dregna Williams breiðgötuna nokkuð frá miðbiki borgarinnar. Ég lagði af stað i norðurátt. Loftið var mettað rökum gróður- ilmi og ég heyrði umferðardyn- inn frá þjóðveginum fyrir ofan. Williamsgata var mannlaus. Hún er ætluð verksmiðjunum, sem við hana standa, og fáir eiga erindi um hana nema kvölds og morgna, í og úr vinnu. Langt að baki mér var Ijósaröð á járn- brautarbrú, og tveim húslengj- um fyrir framan mig var einnig Ijós á horninu, en annars var myrkt, því ekki sást til tungls. Eftir fáeinar mínútur heyrði ég til bifreiðar, sem kom upp eftir Williamsgötu í átt frá borg- inni. Ég heyrði í henni álengd- ar, hvernig söng og hvein í henni vegna ofsahraðans. Krakkar, hugsaði ég með mér, og vonaði, að þeim myndi takast að nema staðar á horninu. Ljósgeislinn frá framhjólum bifreiðarinnar féll á mig, og ég sá skuggann af mér þjóta yfir götuna í hring. Þá var allt í einu hemlað. Spyrna hjólbarðanna við malbikið varð að háu langdregnu ískri. Billinn hentist og rann framhjá mér, og mér varð Ijóst, að þeir höfðu slökkt Ijósin. Siðan beygði hann snöggt fyrir framan mig og nam staðar með annað framhjólið uppi á gangstéttarbrúninni. Þetta var blæjubíll, Ijós á lit- inn, grár, blár eða grænn, með dökku þaki. Vélin var enn í gangi. Ég heyrði hlátur innan úr bilnum, þennan hálftryllta fávita- hlátur, sem krakkar eiga til að reka upp, þegar þeir eru yfir- spenntir og æstir. Það heyrðist hratt hvískur, síðan hrindingar og pústrar, og fimm drengir þyrptust út úr bilnum og röðuðu sér í kringum mig. Aðeins drengir. Krakkar. Ungl- ingar. Það hljómar svo hjálpar- vana og samúðarvekjandi sagt á þann hátt. En aðeins einn þeirra var lægri en ég; breið- vaxinn og þykkur undir hönd. Tveir voru vel á hæð við mig. Einn var aftur langur og horað- ur, en sá fimmti var höfði hærri en ég og hlýtur að hafa verið a. m. k. tuttugu pundum þyngri. Ég gat ekki greint andiit neins þeirra. Þeir voru aðeins fimm óljósir skuggar, sem þrengdu að mér. Og nú var ég farinn að finna vott af hræðslu. Jæja, sagði ég, hvað viljið þið? Sá stóri stóð beint fyrir framan mig, svo ég varð að nema staðar eða rekast á hann að öðrum kosti. Ég vil fá að vita, hvert þú ert að fara,“ sagði hann, og hinir hlógu allir, eins og hann hefði sagt eitthvað bráðfyndið. „Hvert ertu að fara, ræfill?" „Heyrið þið, drengir," sagði ég, „þið eigið ekkert óuppgert við mig.“ „Það dæmum við um, ræfiil- inn,“ sagði sá stóri. Hann lagði höndina snöggt á brjóstið á mér. Ég hörfaði um skref og einhver hinna hrinti mér aftan frá. Siðan hrintu þeir mér til skiptis og hoppuðu um gangstéttina, fliss- andi. Ég hélt höndunum niður með hliðunum. „Ég spurði þig spurningar," sagði stóri pilturinn. „Hvert ætl- arðu, róni?“ „Ég veit ekki til, að það komi þér neitt við,“ sagði ég, „en ég er á leiðinni að fá mér kaffi. Ertu nú ánægður?" „Fá mér kaffi,“ hermdi einn hinna eftir mér. Þeir hlógu allir. Þá sagði sá langi og horaði, dálítið efagjarn, „þú sagðir, að það yrði að vera róni, Chuck. Mér sýnist þessi ekki vera það." „Hvað annað gæti hann ver- ið?“ sagði sá stóri. „Nema hann sé glæpon. Ertu glæpon, glæpon?” Breiðvaxni drengurinn flissaði hátt og fíflalega. „Hlustið þið á mig,“ sagði ég. Ég hélt enn höndunum niður með hliðunum og reyndi að gæða rödd mína ró og sanngirni. „Ég er hvorki róni né glæpa- maður, aðeins venjulegur maður, sem stundar sína vinnu. Ég hef ekkert gert ykkur. Hvers vegna reynið þið ekki að finna ykkur annað verðugra viðfangsefni?" „Haltu kjafti,“ sagði Chuck. Hann virtist skyndilega gripinn ofsareiði. Ég er hundleiður á að láta fólk segja mér fyrir verk- um. I allt kvöld hefur það verið að skipa mér, farðu hingað, farðu þangað, farðu út! Til hel- vítis með þig. Haltu kjafti!" Hinir tvistigu en nú hlógu þeir ekki lengur, nema þéttvaxni drengurinn og jafnvel hlátur hans var með öðrum blæ. Chuck sagði lágt um leið og hann kom nær: „Ég er stærri en þú.“ „Að hkamsvexti, já. Hvað með það?“ „Svo ég þarf ekki að taka við skipunum frá þér.“ Nú hló ég. Það var ef til vill ekki skynsamlega gert, en það virtist samt vera min eina von. „Fyrst þú ert svona risavaxinn, hvers vegna þarftu þá fjóra til 12 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.