Fálkinn


Fálkinn - 08.06.1965, Page 13

Fálkinn - 08.06.1965, Page 13
að hjálpa þér á rhóti einum?“ Ég sneri mér til hinna. „Hvers vegna eruð þið að láta hann koma ykkur í klandur? Notið þið höfuðið. Þetta er ekki... „Haltu þér saman," sagði Chuck, með sérkennilega ill- kvittnislegri rósemi. „Eins og ég sagði þér.“ Hann lamdi mig. Hann var sterkur sem björn. Ég hrasaði í fangið á hinum, og þeir byrj- uðu að hrinda mér á milli sín. Hefur þú nokkra hugmynd um, hvernig er að vera í þessari að- stöðu? Þú ert fullvaxinn maður, og þetta eru drengir. Þér finnst niðurlæging í því að vera hrædd- ur við þá, en þú ert hræddur. Þér finnst svívirðing að því, að þeir skuli hafa lagt hendur á þig að ástæðulausu, aðeins vegna þess að þá langaði til þess. Þér finnst, að þeir séu undir vernd alls kyns laga og hefðbundinna venja og einhvernveginn sé ekki réttlætanlegt að berja þá, jafn- vel ekki i sjálfsvörn, á sama hátt og þú myndir berjast við fulltiða menn. En þarna eru þeir allt að einu, fullþroska að öllu nema vitsmunum, þess umkomn- ir að eyðileggja, limlesta, myrða. Þig langar til að drepa þá. Þetta er ekki tilfinning, sem þú hefur æskt eftir eða gert ráð fyrir. Hún vaknar af sjálfu sér. Margir hafa haldið því fram, að það, sem næst skeði, hafi ver- ið mín eigin sök. Ég fór að berja frá mér. Ég hrópaði eins hátt og ég gat, i þeirri von að Schmitz eða ein- hver annar myndi heyra til min. Enginn heyrði til mín. „Þaggið þið niður í honum,“ sagði Chuck, og þeir þögguðu niður í mér. Eftir fáein augnablik lá ég á jörðinni með þá alla fimm ofan á mér og munninn fullan af blóði. Haldið honum þarna, heyrðist rödd Chueks segja. Hver heldur hann að hann sé? Þetta er enginn róni. „Hvað gerir það til?“ „Hey. Heyrðu Chuck, gæti hann verið lögga? Lögga? Hvers vegna ætti hann að vera það? Ég sagði ykkur, að hann er ekki neitt. Lítum samt í veskið hans. Allt í lagi, allt í lagi, rageit, réttu mér það. Ég velti mér á magann og kom hnjánum undir mig. Liggðu kyrr, þú þarna. Heyr- irðu ekki hvað við sögðum? Heimurinn tók aðra veltu. Hlátur. Heyrðu, ég hefði átt að vera á fótboltaskóm, þessir gúmmísólar láta of mikið undan. Aftur hlátur. Rödd Chucks á ný. Haltu á eldspýtunni svo ég geti séð. Walter Sherris, 202 Laurel Terr- ace — ég sagði þér að halda á eldspýtunni, Bill, hvað er að? Önnur rödd. Ég verð að fara, Chuck. Ég verð að fara. Hvað gengur að þér, hérinn þinn? Þekkirðu hann eða hvað? Lofaðu mér að fara, Chuck. Ég verð að fara! Það varð allt í einu mikilvægt að sjá, hver Bill væri. Óskap- lega mikilvægt. Ég vissi ekki alveg hvers vegna. Ég brauzt um. Nóttin var mjög dimm. Skuggar bærðust í henni. Ótti og sársauki bærðust í henni. Ég sá langan renglulegan skugga hiaupa í áttina til blæjubilsins og stökkva inn. Nú voru þeir aðeins fjórir. Ég dró djúpt andann. Hefur hann nokkra peninga? Fjandinn hafi peningana hans. Hver kærir sig um þá? Ég var sleginn fast utanundir með veskinu. Gerðu svo vel, herra Sherris. Frá Laurel Terrace Drive. Jæja. Ekki lögga. Ekki róni, ekki glæpon. Bara heiðarleg skrif- stofublók. Já herra, nei herra, og slær grasflötina á hverjum sunnudegi. Horfiði á ’ann piltar, svona vilja mömmurnar ykkar, að þið verðið fullorðnir. Hæ, fáðu mér þennan kveikjara, glóp- ur. Smá ljósstjarna blikaði yfir höfði mér. Chuck hafði tekið mynd úr veski mínu. Ég vissi hvaða mynd það var, vegna þess að ég bar aðeins eina mynd á mér. Það var mynd af Tracey og börnun- um tekin síðastliðið sumar á grasflötinni okkar. Þeim féll vel myndin af Tracey. Þeir blístruðu. Svaka kroppur. Þú getur átt hana. Hún er gikksleg. Ég skal veðja, að þú gerir allt, sem hún skipar þér, ekki satt, lierra Sherris? Hvaða Framh. á bls. 26. „ Ég heyrði hlátur innan úr bílnum, þennan hálftryllta fávitahlátur, sem krakkar eiga til að reka upp, þegar þeir eru yfirspenntir og œstir. Það heyrðist hratt hvískur, síðan hrindingar og pústrar, og fimm drengir þyrptust út úr bílnum og röðuðu sér í kringum mig ..." I HALLUR SÍMONARSON skrifar um | GÓÐ VÖRN. Suður gefur. Norður-Suður á hættu. A K-10-7-2 V Á-10-8-7-3 A 8 V K-G-9-6-5-2 ♦ G-10-9-4 * 7-5 A Á-D-9-6-3 V 4 ♦ 7 * K-G-9-8-4-2 ♦ 6-5-3 * 10 A G-5-4 V D ♦ Á-D-G-8-2 * Á-D-6-3 Sagnir: Suður Vestur Norður Austur 1 * 1 ♦ 1 V 2 ♦ 2 A 3 ♦ 3 A pass 4 A 5 ♦ pass pass 5 A dobl pass pass Vestur spilaði út hjartadrottningu. Það er oft þýðingarmikið í bridge að láta mótherjana álíta að eitthvert ákveðið spil sé á þeirri hendi, sem það er ekki, og í spilinu hér á undan, sem kom fyrir í sveita- keppni, gaf það mörg stig. Sagnir gengu eins á báðum borðum, en vörnin var ekki eins. Við annað borðið vann sagnhafi hjartaútspilið með ásnum, tók þrisvar tromp og var inni í blindum. Hann spilaði nú laufatíu, sem Vestur vann á drottningu. Vestur spilaði nú tígulás og öðrum tígli, sem Suður trompaði. Hann spilaði nú laufakóngi, Vestur lét lítið, en Suður áleit að hann ætti ásinn og kastaði tígli úr blindum. Eftir það var létt að vinna spilið. 850 fyrir Suður. Við hitt borðið spilaði Vestur einnig út hjartadrottningu, sem sagnhafi vann á ás og hann spilaði einnig þrisvar trompi. Þegar hann spilaði laufatíunni frá blindum vann Vestur á ásinn — ekki með drottningu — því hann áleit að hann yrði að koma því inn hjá Suðri, að Austur ætti drottninguna. Þegar Vestur spilaði nú tígulás og aftur tígli trompaði Suður. Hann vann slag á laufakóng og spilaði laufagosa — Vestur lét auðvitað lítið lauf — og Suður, sem var sann- færður um, að Austur ætti drottninguna trompaði í blind- um og áleit, að þetta þýðingarmikla spil kæmi í frá Austri. En þegar Austur sýndi eyðu féll spilið saman og Suður tapaði þremur slögum til viðbótar — eða 800 fyrir A-V. FÁLKINN 13

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.