Fálkinn


Fálkinn - 08.06.1965, Side 31

Fálkinn - 08.06.1965, Side 31
SIERA- sjónvarpstækí FRAMLEITT í STÆRSTU, ÞEKKTUSTU ELECTRONISKU-VERKSMIÐJUM EVRÖPU, í HOLLANDI FULLKOMIN TEKNISK GÆÐI. — STÍLFAGURT ÚTLIT. SELD MEÐ FULLRI ÁBYRGÐ Á GÓÐUM AFNOTUM. BEZTU GÆÐIN Á LÆGSTA VERÐI Viðtækjaverzlun ríkisins fylgir honum að bílnum, og þau aka til kaupmannsins. Hann spyr hana, hvers konar vín hún vilji og fer svo inn og kaupir flösku. Nú hleyp ég burtu, hugsar hún. Hann er ekki eins og hinir, hann er góður strákur. Nei, hann er eins og allir hinir. Nei, hann er það ekki, hann er betri, og honum er al- vara. Nei, hann er nákvæmlega eins og hinir. Hlauptu burtu, stúlka mín, hlauptu burtu og feldu þig. Hlauptu heim, og dragðu sængina upp yfir höfuð, og gráttu þig í svefn, því þú ert svo innilega einmana. Þú getur farið að sofa og látið þig dreyma um stjúpa þinn, þegar hann er að káfa á þér, um drengina, sem vilja koma höndum sínum innundir brjósta- haldarann þinn og rifa fötin utan af þér. Þú getur grátið af einmanakennd. Drengurinn þessi er nákvæmlega eins, og þú færð sömu martröð og venjulega. Hann vill bara koma vilja sínum fram, og síðan lætur hann alla hina vita, að þú sért léttúðardrós. Hvers vegna hatarðu hann ekki og hleypur burtu?. En hann er kominn aftur, og andlit hans er bliðlegt og alvarlegt, andlit ungs manns. Hún segir honum hvaða leið hann skuli aka heim til hennar og hann fylgir leiðbeiningum hennar, og hún fer með hann upp á fjórðu hæð. Hann fylgir hugfanginn mjöðmum hennar, er sveigjast háttbundið undir kápunni, og hann verður gripinn ólýsanlegri þrá til að fá að grípa utan um þær. Hendur hans eru votar af svita, hann á erfitt um andardrátt, og hann er hræddur um að hún muni hlæja að honum. Hann er svo upp- tekinn vegna eigin þjáninga, að hann tekur ekki eftir því, að andardráttur hennar er einnig ör. íbúðin er notaleg, að vísu bera veggirnir merki mismunandi leigjenda, en á þeim eru líka skemmtilegar myndir, eftir- prentanir af Picasso og Van Gogh og einriig eitt olíumálverk. En það eru ekki mörg húsgögn og ekki fyllilega nógu hlýtt. Stúlkan setur piötu á fóninn, drengurinn fer fram í eldhús til að ná í giös og eitt augnablik leggur hann sveitt ennið að köldum veggnum, eins og tii að finna siálfan sig. Síðan geng- ur hann inn í stofuna með upptekna vinflöskuna og tvö glös, meðan hann hugsar um það, hvar skuli nú setjast. Helzt vili hann sitja við hlið henni í sófanum, en hann er hræddur um, að hún setjist í hægindastólinn. Hann leggur flöskuna og glös- in á sófaborðið og sezt síðan þannig í sófann, að pláss sé fyrir hana. Hún gengur eirðarlaust um stofuna, stanzar síðan, virðir hann fyrir sér, nagar neglurnar augnablik sezt síðan í hæfilegri fjarlægð frá honum — í sófann. Hann hefur ekki hugmynd, um hvað hann eigi að segja við hana, og þögnin, er liggur sem veggur milli þeirra, kemur honum fyrir eyru sem stöðugur klukknahljómur. Hann lætur sem hann hafi afskaplegan áhuga á jazzplötunni á fóninum. Hann vildi óska þess að það væri dansplata. Þá gæti hann spurt hana, hvort hún vildi dansa, og hann gæti þá þrýst henni fast upp að sér, og síðan myndi allt ganga af sjálfu sér. En hann er einn allsherjar ólánsgripur, það veit hann, hann veit ekki einu sinni hvernig hann á að byrja. Hún hlær bara að honum. Hún er ekki eldri en hann sjálfur en stúlkur hafa alltaf meiri reynslu en strákar, að minnsta kosti er hún reyndari en hann. Hún fer bráðum að hlæja að honum og sendir hann heim. Þau dreypa á víninu, og hún býzt til að verja sig gegn hugsanlegri ástleitni hans, léttúðarsnakki og frekum höndum. Hún iðrast þess innilega að hafa boðið honum heim. Það gekk allt miklu betur í Venezia. Hún finnur, að hún hefur orði fórnarlamb eigin ákafa, öll þróunin getur ekki liðið nógu hratt, hún vill vera elskuð, núna, hún vill ekki aðra einmana- kennda nótt í viðbót. Hún er einmana og örvæntingarfull. Bara að þau hefðu haft tíma til að gera allt í réttri röð, stefnumót ísbari, haldast í hendur og flétta fingrum saman í bíó og borða miðdegisverð heima hjá henni eftir þrjá til fjóra daga. Þá myndi hann umgangast hana sem vin, ekki að- eins sem konulíkama. Hún bíður atlota hans, en þau koma ekki, svo hún snýr sér að honum, og hann situr og nýr hendur sínar. eins og hún FÁLKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.