Fálkinn - 08.06.1965, Page 36
HVAD GERIST ÞESSA VIKU
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl:
Þú ættir að forðast að vera nálægt öðrum
en þeim sem þú getur fullkomlega treyst að
vilji þér vel. Það er mjög líklegt að þú þurf-
ir nú að einhverju leyti að greiða fyrir mis-
gjörðir þínar.
Nautið, 21. apríl—21. maí:
Fyrstu þrír dagar vikunnar geta orðið þér
nokkuð erfiðir sérstaklega hvað fjármálin snerfc-
ir. Reyndu að komast hjá gáleysislegri með-
höndlun peninga, annars er hætt við að þú
verðir fyrir tapi sem ekki yrði svo auðvelt að
vinna upp aftur.
Tvíburarnir, 22. maí—21. júní:
Þú ættir ekki að treysta um of á loforð
yfirmanna þinna eða þeirra sem þú þarft að
leita til í sambandi við atvinnu. Þú skalt
glínia við vandamálin sjálfur og forðast að
blanda öðrum í þau í von um að það geri þau
auðleystari.
Krabbinn, 22. júní—23. júlí:
Taktu ekki mikilvægar ákvarðanir í málefn-
um sem á einhvern hátt virðast vafasöm. Uppá-
þrengjandi fólk mun reyna að hafa áhrif á
þig með hugmyndum sínum sem mundu ein-
ungis valda þér óþægindum ef þú léðir þeim
eyra.
Ljónið, 2U. júlí—23. ápúst:
Fjármál þín þurfa sérstakrar meðhöndlunar
við þessa viku. Einhverjir kunningjar þírir
eða vinir valda þér vonbrigðum og koma af
stað leiðindum sem gætu komið sér illa fyrir
þig. Þú ættir ekki að opna heimili þitfc fyrir
fólki sem einungis vill hafa gagn af þér.
Meyjan, 21*. ápúst—23. sept.:
Þú þolir illa gagnrýni, en þú hefðir gott af
að vita að framkoma þín við aðra er ekki til
fyrirmyndar. Þú ætlast til meira af öðrum en
sjálfum þér. Einhver þér eldri gæti sýnt þér
fram á beztu leið til úrbóta.
Vopin, 21*. sept.—23. olct.:
Hafir þú á einhvern hátt komið illa fram við
aðra er næsfcum víst að þú hefur leitt erfiðleika
yfir þig. Þessi vika mun á einhvern hátt verka
sem uppgjör sem leiða mun af sér skyndilegar
breytingar.
Drekinn, 21*. olct.—22. nóv.:
Hvað svo sem skeður í þessari viku mun
það verða óvænt og valda skyndilegum breyt-
ingum. Þú munt að öllum líkindum þurfa að
taka þátt í lausn vandamála vina þinna og
skalt þú reynast þeim ráðhollur.
Bopmaðurinn, 23. nóv.—21. des.:
Vinir þínir munu verða fcilbúnir að gefa
þér góð ráð en þó munu þeir ekki geta orðið
þér til raunverulegrar hjálpar ef á þarf að
halda. Varastu að gera nokkuð það er stríðir
gegn vilja maka þíns eða yfimanna.
Steinpeitin, 22. des.—20. janúar:
Reyndu að komast hjá öllu því sem stefnt
getur^ heilsu þinni í hættu. Láttu allar fram-
tíðaráætlanir bíða betri fcíma því fljótfærnis-
legar ákvarðanir gætu tafið fyrir framgangi
mála.
Vatnsberinn, 21. janúar—19. fcbrúar:
Þú hefur nokkra tilhneigingu til að líta á
hlutina frá verri hlið og fyrri hluti vikunnar
gefur vissulega tilefni til þess. Það er því rétt
fyrir þig að láta allar ákvarðanir varðandi
fiármálin bíða um sinn.
Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz:
Það má búasfc við að til tíðinda muni draga
í málefnum sem varða fjölskylduna, og að
heimilislífið verði nokkuð stormasamt framan
af vikunni. Ef þú gefur þér ekki tíma til að
hugleiða vandamálin gæti farið illa.
V
tód4 °8,
ELDHÚSRULLAN GEGNIR 1001 HLUTVERKI
FALKINN