Fálkinn


Fálkinn - 08.06.1965, Blaðsíða 36

Fálkinn - 08.06.1965, Blaðsíða 36
HVAD GERIST ÞESSA VIKU Hrúturinn, 21. marz—20. apríl: Þú ættir að forðast að vera nálægt öðrum en þeim sem þú getur fullkomlega treyst að vilji þér vel. Það er mjög líklegt að þú þurf- ir nú að einhverju leyti að greiða fyrir mis- gjörðir þínar. Nautið, 21. apríl—21. maí: Fyrstu þrír dagar vikunnar geta orðið þér nokkuð erfiðir sérstaklega hvað fjármálin snerfc- ir. Reyndu að komast hjá gáleysislegri með- höndlun peninga, annars er hætt við að þú verðir fyrir tapi sem ekki yrði svo auðvelt að vinna upp aftur. Tvíburarnir, 22. maí—21. júní: Þú ættir ekki að treysta um of á loforð yfirmanna þinna eða þeirra sem þú þarft að leita til í sambandi við atvinnu. Þú skalt glínia við vandamálin sjálfur og forðast að blanda öðrum í þau í von um að það geri þau auðleystari. Krabbinn, 22. júní—23. júlí: Taktu ekki mikilvægar ákvarðanir í málefn- um sem á einhvern hátt virðast vafasöm. Uppá- þrengjandi fólk mun reyna að hafa áhrif á þig með hugmyndum sínum sem mundu ein- ungis valda þér óþægindum ef þú léðir þeim eyra. Ljónið, 2U. júlí—23. ápúst: Fjármál þín þurfa sérstakrar meðhöndlunar við þessa viku. Einhverjir kunningjar þírir eða vinir valda þér vonbrigðum og koma af stað leiðindum sem gætu komið sér illa fyrir þig. Þú ættir ekki að opna heimili þitfc fyrir fólki sem einungis vill hafa gagn af þér. Meyjan, 21*. ápúst—23. sept.: Þú þolir illa gagnrýni, en þú hefðir gott af að vita að framkoma þín við aðra er ekki til fyrirmyndar. Þú ætlast til meira af öðrum en sjálfum þér. Einhver þér eldri gæti sýnt þér fram á beztu leið til úrbóta. Vopin, 21*. sept.—23. olct.: Hafir þú á einhvern hátt komið illa fram við aðra er næsfcum víst að þú hefur leitt erfiðleika yfir þig. Þessi vika mun á einhvern hátt verka sem uppgjör sem leiða mun af sér skyndilegar breytingar. Drekinn, 21*. olct.—22. nóv.: Hvað svo sem skeður í þessari viku mun það verða óvænt og valda skyndilegum breyt- ingum. Þú munt að öllum líkindum þurfa að taka þátt í lausn vandamála vina þinna og skalt þú reynast þeim ráðhollur. Bopmaðurinn, 23. nóv.—21. des.: Vinir þínir munu verða fcilbúnir að gefa þér góð ráð en þó munu þeir ekki geta orðið þér til raunverulegrar hjálpar ef á þarf að halda. Varastu að gera nokkuð það er stríðir gegn vilja maka þíns eða yfimanna. Steinpeitin, 22. des.—20. janúar: Reyndu að komast hjá öllu því sem stefnt getur^ heilsu þinni í hættu. Láttu allar fram- tíðaráætlanir bíða betri fcíma því fljótfærnis- legar ákvarðanir gætu tafið fyrir framgangi mála. Vatnsberinn, 21. janúar—19. fcbrúar: Þú hefur nokkra tilhneigingu til að líta á hlutina frá verri hlið og fyrri hluti vikunnar gefur vissulega tilefni til þess. Það er því rétt fyrir þig að láta allar ákvarðanir varðandi fiármálin bíða um sinn. Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz: Það má búasfc við að til tíðinda muni draga í málefnum sem varða fjölskylduna, og að heimilislífið verði nokkuð stormasamt framan af vikunni. Ef þú gefur þér ekki tíma til að hugleiða vandamálin gæti farið illa. V tód4 °8, ELDHÚSRULLAN GEGNIR 1001 HLUTVERKI FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.