Fálkinn - 08.06.1965, Page 39
i
FALKINN
rétt
hegdun
Eftir að konur hafa litið
á þessar þrjár myndir vita
þær upp á hár hvernig þær
eiga að sitja við matborð-
ið. Efstu tvær myndirnar
sýna hvernig ekki á að
haga sér. Neðsta myndin
sýnir hinar réttu stelling-
ar. Konur, og raunar ekki
karlmenn heldur, eiga ekki
að sitja hálfbognar með
deyfðarsvið við matborðið.
Það er ekki snyrtilegt að
blása á skeiðina. En gest-
gjafinn á heldur ekki að
hafa súpuna svo heita að
fólk verði að sötra, „kalla
á hjálp“, í hvert sinn sem
það ber skeiðina upp að
vörunum. Og neðsta mynd-
in þarfnast ekki skýringa.
Það er alltaf bezt að hafa
hlutina í réttu lagi, líka
stellingarnar.
1. Auðvelt er að móta stafina með
því að styðjast við rúðustrikaðan
pappír eða efni. Festið pappírn-
um á mjúkt undirlag og mótið
síðan stafinn, tyllið honum með
títuprjónum.
2. Pressið stafinn með röku stykki,
svo auðveldara sé að flytja stafinn
á sinn stað. Þræðið stafinn fastan.
3. Festið svo bandið ýmist með
ósýnilegum sporum í hendi eða
sting í vél meðfram köntum bands-
ins. Ef þessi aðferð er notuð t. d.
til að merkja i jafnþráða efni er
fallegt að festa stafina með ein-
földum húllsaum.
SKEMMTILEGUR, FLJÓTLEGUR OG NÝ-
TÍZKULEGUR HÁTTUR AÐ MERKJA MEÐ
BENDLUM EÐA LEGGINGABÖNDUM