Fálkinn - 08.06.1965, Síða 41
• Tígrísdýrin
Framh. af bls. 27.
mér. „Tracey líður vel og börn-
unum sömuleiðis."
„Auðvitað," sagði ég. „Hvers
vegna setti þeim ekki að líða vel.
En hvar er Tracey? Ég vil fá
hana til mín.“
„Walt,“ sagði Mae og leit niður
á mig, augum, sem voru inn-
byrgð bræði, „hver gerði þer
þetta?"
„Nokkrir krakkar.“
Nú varð hún stóreygð af undr-
un. „Krakkar?"
„Mae, hvar er Tracey?^ Hvers
vegna kemur hún ekki?
„Við hvað áttu, Walt, nokknr
kraikkar? Ungir menn úr stál-
iðjuverinu, einhver sem er í nöp
við þig?“
„Bara krakkar. Ég þekkti þa
ckkGrt.**
,Þú átt við," sagði hún hægt,
„að þeir hafi verið ókunnugir,
stöðvað þig og barið þig niður.
Fyrirvaralaust."
„Mae.. ‘
„En hvaða ástæðu höfðu
þeir?“
„Ég veit það ekki. Það var
ekki af einkaástæðum. Heyrðu,
segðu mér nú hreinskilnislega,
hvar er Tracey?"
Það var eins og blæja legðist
yfir andlit hennar. Svipurinn
varð innilokaður og efagjarn.
Hún var að hugleiða eitthvað.
Þetta stóð aðeins augnablik, og
ég hefði alls ekki tekið eftir
því, ef hugsanaferill Mae hefði
ekki verið mér sem opin bók
frá því hún fæddist.
„Það er líklega rétt hjá þér,“
sagði hún. „Þú brýtur bara heil-
ann of mikið um það, ef ég
segi þér það ekki. Tracey fékk
hótunarbréf. Þessir drengir
hljóta að hafa þekkt eitthvað
til þín.“
(Laurel Terrace Drive 202, og
slær blettinn á hverjum sunnu-
degi. Já. og langi horaði skugg-
inn, sem hljóp og faldi sig í
bílnum, þegar hann heyrði nafn-
ið ’mitt. Já. Ég var óskýr og
ruglaður í höfðinu. Það var erfitt
að hugsa.)
„Fékk hún bréf?“
„Það var áreiðanlega ekkert að
marka það, en Tracey fannst,
að það myndi vera skynsamleg-
ast að fara með börnin burt um
tíma. Það var vegna þeirra Walt.
Ef hún hefði verið ein, hefði
engin fengið hana til að fara,
en þú veizt, hvernig það er,
þegar umhyggjan fyrir börnun-
um verður að ráða.“
„Hvert fór hún?“
„Til Boston. Til frænda síns
©g frænku. Hún varð að gera
það, Walt. Vegna barnanna. Hún
beið, þangað til hún var viss...“
„Viss um hvað? Vertu ekki
að halda mér í óvissu, mér líður
hryllilega."
Framh. í næsta blaði.
MEÐ HIRZLU UNDIR SKRÚFUR OG .ANNAÐ SMÁDÖT ?
FRAMLEIÐUM HINA ÞEKKTU
SKÁPA I ÞREM STÆRÐUM,
16,24 OG 32 SKOFFU.
ioor
:
VINNUHEÍMILIÐ AÐ REYKJALUNDI
fálkinn