Fálkinn - 29.11.1965, Qupperneq 27
• Hjartaskurður
Framh. af bls. 24.
að sjó. Ég hefði líkast til
orðið formaður á Stokkseyri,
trúlega ofdirfskufullur sjósókn-
ari, og væri kominn í sjóinn
fyrir mörgum árum.
— Þú lifir eiginlega nýju
lífi.
— Já, vel má segja það, og
ég þarf nokkurn tíma til að
átta mig til fulls á því. Mér
finnst þetta miklu meiri um-
skipti en að skipta um stjórn-
málaflokk eða flytja búferlum.
Allir hlutir bjóða upp á nýja
möguleika. Þessu má líkja við
það að maður kunni allt í einu
til hlítar eitthvert alheims-
tungumál sem hann ekki þekkti
nein deili á áður, — eins og
maður, sem maður hefur ein-
stakt dálæti á og þó aldrei hef-
ur þekkt nema af samtali í
síma, standi allt í einu ljóslif-
andi fyrir framan mann, — eins
og það sem áður var í brotum
sé fyrirvaralaust orðið heild.
Þeir eru margir sem ganga
með þessi vanheilindi að ein-
hverju leyti, og vil ég eindregið
ráðleggja þeim að láta óhikað
skera sig. Framfarir á þessu
sviði geta ef til vill orðið svo
örar á næstu árum að aðgerðin
þurfi ekki að taka nema tvær
klukkustundir...
Þannig er að vita fyrst 44
ára gamall hvað það er að vera
heill heilsu.
S. H.
• Skemmtilegri
Framh. af bls. 13.
aðeins, að nákvæm orðatilhög-
un skipti megin máli.
2. Fálmið ekki. Ef þér mun-
ið ekki til hlítar eitthvert at-
riði, þá sleppið því. Ef það var
ekki nógu áríðandi til að haíd-
ast yður í minni þá á það ekk-
ert erindi inn í frásögn yðar.
Ef þér munið ekki nákvæm-
lega rétta orðið, þá notið það
næst bezta og segið söguna við-
stöðulaust til enda. Og hafið
þann endi ávallt í huga.
3. Ekki er alltaf nauðsynlegt
að segja frá atburðum í réttri
röð. Venjulega er áhrifameira
að kynna aðalatriðin strax
en bæta aukaatriðunum við
seinna. Ef áhugi hlustenda
yðar er vakinn, munu þeir
biðja um meira.
4. Reynið að halda grunn-
hyggnislegum athugasemdum
og margtuggnum málvenjum
við lágmark. Ef þér hafið ekk-
ert að segja, þá segið ekkert.
Þess er ekki vænzt af yður að
þér séuð alltaf frumlegur og
spakvitur, en þér yrðuð undr-
andi ef þér vissuð, hve vinirn-
ir tækju þögn yðar langt fram-
yfir einskisvert mas.
5. Notið ekki þrjú eða fjögur
löng orð, þar sem eitt stutt
myndi nægja. Það eru meiri
líkur fyrir því, að fólk líti á
yður sem raupara og vindbelg
en gáfað glæsimenni, ef þér
sláið um yður eins! og yfirgangs-
maður á þingi. Það er ekki
víst, að aðrir finní til sömu
aðdáunar og þér á drynjandi
hljómfegurð raddar yðar.
6. Hafið hugfast, að áheyr-
endur yðar eru ekki eintóm
fífl. Það er ekki einasta hvim-
leitt heldur hrein og bein móðg-
un, að spyrja á fárra sekúndna
fresti, hvort hlustandinn skilji,
hvað þér eruð að segja. Ef tals-
máti yðar er svo ruglingsleg-
ur, að þér þurfið stöðugt að
vera að segja, „Skilurðu?“ —
þá eruð það þér, sem þurfið
útskýringa við en ekki vinir
yðar.
7. Umræðuefni, sem ei>u
yður ákaflega hugleikin, vekja
ekki undantekningarlaust sam-
svarandi hrifningu hjá öðrum.
Ef yður finnst þér hljóta stutt-
orðar og hálfvelgjulegar undir-
tektir þegar þér ræðið áhuga-
mál yðar, er ef til vill kominn
tími til að skipta um umræðu-
efni. Eða halda sér saman. ★ ★
££>A
th/a/
- Stillið á lit og saumið -
Það er þessi einfalda nýjung, sem
kölluð er „Colormatic", sem á skömm-
um tíma hefur aukið vinsældir
HUSQVARNA 2000 til stórra muna.
•Belnn saumur, hnappagöt, blindfaldur og úrval
mynztursauma er hægt að ’velja með einu hand-
taki. Þar sem það er sýnt á greinilegan' hátt,
i litum, á „saumveljara";
HUSQVARNA heimilistæki, saumavélár o. fl.
eru þekkt hér á landi í yfir 60 ár. Hafa nafninu
hér sem annarstaðar stöðugt vaxið vinsældir.
íslcnzkur leiðarvísir
fylgir nú með vélunum.
Ef þér komizt ekki til að kynna yður vélina, send-
um vér yður sölumann heim eftir lokun. Hringið
og leitið upplýsinga.
tinticii í9$c>£eiiööön h.f
Suðurlandsbraut 16 - Reykjavik - Slmnefni: »Volver« - Sími 35200
IMÓVEIVIBER
IVIánudagur
Dagatðl
eru vinsælasta
og
öruggasta
auglýsingin
hvern einasta
dag
ársins.
Talið við okkur
sem lyrst.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN H.F.
SPÍIALASTÍG 10 - SÍiVII 11640
FALKINN
27