Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FIMMTUDAGUR
22. október 2009 — 250. tölublað — 9. árgangur
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
BRESKA TÍSKUVERÐLAUNAHÁTÍÐIN verður haldin 9. desem-
ber næstkomandi. Galakvöldið markar lok viðburðaríks afmælisárs tísku-
vikunnar í London sem haldin var í 25. sinn. Verðlaun verða veitt þeim
sem mest áhrif hafa í tískubransanum en eftirsóttastur er titillinn um
tískuhönnuð ársins. Í fyrra var það Luella Bartley sem hreppti hann.
Heba Pétursdóttir er 22 ára nemi í Hönnunar- og handverksskól-anum. Þar er hún líka formaður
nemendafélagsins og í hópi þeirra nemenda sem fá hæstu einkunnir skólans. Þetta gerir hún samhliða því að vera einstæð móðir þriggja ára tvíburasystkina. Einhver gæti haldið að manneskja með jafnmörg járn eldinumh f
börnin. „Amma mín og mamma gáfu mér saumavél á sínum tíma og það kom mér á sporið,“ segir Heba og kímir. Hún segir föður-ömmu sína, sem búsett er í Chi-cago, duglega við að leita uppi föt sem hún telji líkleg til að heilla ömmubarnið á Íslandi Súamma h fi
miðbænum sé oft nægilegur til að kveikja ótal hugmyndir í huga sér. „Ég hef alltaf viljað skara fram úr og setja mér markmið og hlakkað til næsta dags,“ segir hún og þver-tekur fyrir að hafa nokkurn tímann litið á móð
Gleymdar gersemar, ömmur og stríðsárinEinhverjir gætu haldið að rúmlega tvítugri stúlku með þriggja ára tvíbura gæfist lítill tími til að sinna
útlitinu og námi. Hebu Pétursdóttur tekst þó að sameina þessa þætti með prýði.
Heba segist alltaf hlakka til framtíðarinnar þótt hugurinn reiki til fortíðarinnar þegar kemur að klæðnaði.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Auglýsingasími
VEÐRIÐ Í DAG
HEBA PÉTURSDÓTTIR
Finnur gersemar í fata-
skáp ömmu sinnar
• tíska
Í MIÐJU BLAÐSINS
VetrardekkSérblað um dekk • 22. september 2009
Öll ljóðin á
einum stað
Ingibjörg Haralds-
dóttir gaf út
ljóða safn í tilefni af
afmælinu sínu.
TÍMAMÓT 30
Músík og mannasiðir
„Gróskan í starfi tónlistarskól-
anna myndi trúlega lyfta öðru
skólastarfi,“ skrifar Þorvaldur
Gylfason.
Í DAG 24
VETRARDEKK
Gróf, gripmikil, mjúk,
hljóðlát og endingargóð
Sérblað um vetrardekk
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG verndar viðkvæma húð
Leynist
þvottavél frá
í þínum
pakka?
Bæklingur
frá
Húsasmiðjunni
fylgir Fréttablaðinu
í dag!
Vætusamt Í dag verður frekar
hæg norðlæg átt en 10-15 m/s
norðvestanlands. Rigning eða súld
víða um land en styttir upp
sunnan lands er líður á daginn.
Hlýjast sunnantil.
VEÐUR 4
7
2
4
7
8
Skemmtilegt par
Jónína Leósdóttir
og Hallgrímur
Helgason ræða
um kynlífslýsingar
í bókum við
unglinga.
FÓLK 50
FÓLK Halla Vilhjálmsdóttir býr nú
í Svíþjóð þar sem hún vinnur að
því að koma sér á framfæri sem
tónlistarmaður.
Á dögunum
sendi hún lagið
How í vefkeppni
Melodi festival-
en, sem er undan-
keppni Euro-
vision í Svíþjóð.
Lagið er komið
í gegnum fyrsta
niðurskurð, er
þar á meðal
tuttugu vinsælustu laganna.
Melodifestivalen er vinsælasta
sjónvarpsefni Svíþjóðar, en millj-
ónir fylgjast með keppninni á
hverju ári. Halla segir keppnina
opna ýmsar dyr. „Það er nóg að
komast á Melodi festivalen til að fá
gigg og plötusamning,“ segir hún.
- afb / sjá síðu 50
Halla Vilhjálmsdóttir:
Freistar þess að
komast í Euro-
vision í Svíþjóð
HALLA
VILHJÁLMSDÓTTIR
STJÓRNMÁL Dagur B. Eggerts-
son, oddviti Samfylkingarinnar í
Reykjavík, segir offjárfestingu á
fasteignamarkaði á höfuðborgar-
svæðinu nema yfir 100 milljörð-
um króna.
„Það voru stjórnmálamenn í
aðdraganda síðustu sveitarstjórnar-
kosninga, sjálfstæðismenn í öllum
sveitarfélögum, sem löðuðu til sín
atkvæði með loforðum um ódýrar
lóðir fyrir alla. Því var haldið
fram að hækkun fasteignaverðs
væri vegna þess að Reykjavíkur-
listinn hefði ekki tekið þátt í þessu
ofsakapphlaupi sumra nágranna-
sveitarfélaganna í lóðaúthlutunum.
Þessi málflutningur hefur ekki
aðeins reynst rangar heldur er
reikningurinn á við heila Kára-
hnjúkavirkjun,“ segir Dagur.
Að sögn Dags varaði hann sjálfur
og margir aðrir við þenslu á fast-
eignamarkaðinum. Nú séu um þrjú
þúsund óseldar eða langt komn-
ar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu.
Verðmæti þessa sé um 73,5 millj-
arðar króna. Þess utan standi yfir
4.300 lóðir tómar. Sveitarfélögin
hafi lagt í um 35 milljarða fjárfest-
ingar sem ekki séu nýttar. Samtals
liggi vel yfir 100 milljarðar í ónýtt-
um eignum.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir
málið mjög alvarlegt og varða í
mörgum tilfellum fjárhag einstakl-
inga, fjölskyldna og fyrirtækja.
„Þetta er miklu viðkvæmara og
að sumu leyti sorglegra en svo að
menn geti rokið fram í umræðuna
með einhverjum ódýrum pólitísk-
um frösum,“ segir Júlíus.
Að sögn Júlíusar er orsaka meðal
annars að leita hjá lánastofnunum.
„Ég hef líka bent á það að upphaf
þessarar verðlagsþróunar má að
nokkru leyti rekja til lóðaskorts og
uppboðsstefnu R-listans á sínum
tíma. En við eigum ekki að festa
okkur í slíku heldur hugsa fram
á veginn og leita lausna,“ segir
Júlíus Vífill Ingvarsson.
- gar / sjá síðu 6
Yfir 100 milljarðar í
ónýttri fjárfestingu
Óseldar íbúðir og fjárfestingar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu eru yfir 100
milljarða króna virði þrátt fyrir viðvaranir um þenslu segir oddviti Samfylkingar
í borgarstjórn. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks varar við pólitískum frösum.
MÓTMÆLI Á MIKLUBRAUT Íbúar í Hlíðunum segjast vilja draga að sér andann rólegir og hlífa börnum við svifryksmengun, sem
þeir segja ítrekað fara yfir heilsufarsmörk í hverfinu. Um þrjátíu manns vöktu athygli á þessu með aðgerðum í gær.
ÍTALÍA Silvio Berlusconi, forsætis-
ráðherra Ítalíu, segist stýra
landinu af skyldurækni og fórn-
fýsi en ekki af því að hann hafi
gaman af því.
Hann segist
raunar alls ekki
hafa gaman af
landsstjórn-
inni, en þráist
þó við vegna
þess að hann sé
„eini leiðtoginn
sem geti haldið
saman miðju-
og hægriflokkunum“.
Í viðtali við CNN sagði hann
margt andstyggilegt fylgja því að
vera í hans stöðu, einkum rætna
fjölmiðlaumfjöllun. Hann sagðist
enn fremur aldrei hafa talað af
sér, ekki heldur þegar hann kall-
aði Barack Obama sólbrúnan.
Allt sem hann segði, brandarar
sem annað, væri þaulhugsað. - sh
Silvio Berlusconi:
Líkar ekki vel
við starf sitt
SILVIO BERLUSCONI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Hasar í Meistara-
deildinni
Það var að vanda
mikið fjör í leikjum
Meistaradeildarinnar
og dramatíkin
mikil.
ÍÞRÓTTIR 46
EFNAHAGSMÁL Stefnt er að því að taka endurskoðun
efnahagsáætlunar Íslands fyrir á fundi framkvæmda-
stjórnar Alþjóðagjaldeyris sjóðsins (AGS) á miðviku-
dag. Uppfærð efnahagsáætlun var send framkvæmda-
stjóra sjóðsins í gær.
Samþykki stjórnin áætlunina fær Ísland aðgang að
öðrum hluta lánafyrirgreiðslu sjóðsins, eða 168 millj-
örðum Bandaríkjadala. Þá opnast aðgangur að fyrsta
fjórðungi 2,7 milljarða lánafyrirgreiðslu Norður land-
anna og Póllands. Mark Flanagan, yfirmaður AGS í
málefnum Íslands, segir, í viðtali á heimasíðu sjóðsins,
að erlendar skuldir Íslendinga séu hærri en reiknað
var með þegar sjóðurinn kom að málum hér. Hann telji
landið hins vegar standa undir þeim skuldum.
„Gert er ráð fyrir að erlendar skuldir þjóðarbúsins
minnki hratt eftir því sem eignir eru seldar úr þrota-
búum bankanna og skuldir þeirra afskrifaðar að stór-
um hluta,“ segir Flanagan. Hann segir tvennt hafa
tafið endurskoðun efnahagsáætlunarinnar. Stjórnmála-
órói og kosningarnar í vor hafi tafið stefnumótun. Þá
hafi tafist að semja við erlenda lánardrottna sem hafi
gert fjármögnun lána flóknari. - kóp
Fulltrúi AGS segir skuldir Íslendinga hærri en búist var við en viðráðanlegar:
Ísland á dagskrá hjá stjórn AGS