Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 54
42 22. október 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Sequences-sjónlistahátíðin
fer fram í fjórða sinn þann
30. október næstkomandi.
Hátíðin tekur mið af
breyttu ástandi í þjóðfélag-
inu.
Sequences-hátíðin var fyrst sett
á laggirnar árið 2006 og var sam-
starfsverkefni Nýlistasafnsins,
Kling og Bang, Gallerí Dvergs,
CIA og Gallerí Bananananas sem
var lokað árið 2007. Kristín Dag-
mar Jóhannesdóttir og Klara Þór-
hallsdóttir skipuleggja hátíðina í
ár og segja þær samstarfið hafa
gengið vel.
„Ég er listfræðimenntuð og er
nýútskrifuð úr því námi. Klara er
myndlistarkennari auk þess sem
hún hefur verið að vinna innan
fræðsludeildar Listasafnsins. Þetta
er í fyrsta sinn sem við tökum að
okkur svona stórt verkefni en hing-
að til hefur þetta gengið vonum
framar og við höfum náð að vinna
mjög vel saman,“ segir Kristín Dag-
mar um samstarf þeirra Klöru.
„Í dag er annað landslag en hefur
verið fyrri ár og við þurftum því
að hugsa þetta svolítið upp á nýtt.
Það fór mikill tími í að sækja um
styrki bæði hér heima og erlendis
frá og fáum við því nokkuð mikið
af erlendum listamönnum til okkar
í ár.“ Meðal þeirra listamanna sem
taka þátt í hátíðinni núna má nefna
bresku listakonuna Spartacus Chet-
wynd og finnska gjörningahópinn
Oblivia auk þess sem listamaður-
inn Magnús Pálsson verður sér-
stakur heiðursgestur hátíðarinnar
í ár. Gjörningaformið verður áber-
andi á hátíðinni í ár mikið verður
um lifandi viðburði í stað stand-
andi sýninga. „Við ákváðum að hafa
gjörningaformið í forgrunni vegna
Magnúsar Pálssonar, sem hefur
unnið mikið með það form,“ segir
Kristín Dagmar.
Hægt verður að nálgast allar
upplýsingar um hátíðina á heima-
síðunni www.sequences.is.
sara@frettabladid.is
Hugsa hátíðina upp á nýtt
„Ég hefði getað orðið tannlæknir og
þá stæði aldrei neitt ljótt um mig í
blöðunum. Ég vissi vel að því fræg-
ari sem maður er, þeim mun meira
er maður undir smásjá almennings.“
JULIA ROBERTS
um frægðina og slúðrið.
„Ég vil veita fólki innblást-
ur, en ekki vera fyrirmynd,
því ég geri mistök eins og
allir aðrir. Ég er bara eins
og fólk er
flest.“
BRITNEY
SPEARS
um hlut-
verk sitt
sem fyrir-
mynd.
„Stundum hugsa ég með
mér: „Til fjandans með
leiklistina“ en svo átta
ég mig á því að ég gæti
verið að vinna í skóbúð.
Leiklistin er mun skárri
en það.“
ROBERT PATTINSON
um leiklistina sem starf.
SKIPULEGGJA SEQUENCES Kristín Dagmar
Jóhannesdóttir og Klara Þórhallsdóttir skipu-
leggja Sequences-sjónlistarhátíðina í ár.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
Íslenski dansflokkurinn
Þessi skemmtilega bók er hugsuð til mál-
örvunar og hljóðanáms fyrir 2 til 7 ára börn.
Sérhvert málhljóð er kynnt með stuttri sögu,
fjörugri vísu og glæsilegum myndum.
Frábær grunnur að lestrarnámi.
Geisladiskur fylgir bókinni
þar sem Skólakór Kársness
syngur vísur eftir
Þórarin Eldjárn
Glæsilegar og þægilegar
í erli dagsins
ACTIVE LEGS sokkabuxurnar veita ökklunum góðan
stuðning og eru liprar um lærin. Þær viðhalda góðri
blóðrás, eru einstaklega þægilegar og hefta ekki
hreyfingar.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki