Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 12
12 22. október 2009 FIMMTUDAGUR MINNAST UPPREISNAR Joe Biden, vara- forseti Bandaríkjanna, og yfirmaður í pólska hernum lögðu í gær blómsveig við minnisvarða um uppreisnina í Varsjárgettóinu 1943. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga úthlutar sjónhjálpartækjum og veitir ráð um notkun þeirra. Nánari upplýsingar og fróðleikur í síma 54 55 800 og á www.midstod.is ÞARF AÐ STÆKKA LETRIÐ? Lestur er lífsgæði. Stækkunar- gler, sterk lesgleraugu og margs konar tækni gagnast þeim sem vilja njóta þess áfram að lesa þó að sjónin hafi versnað. ÍS L E N S K A S IA .I S S JO 4 76 31 1 0/ 09 SAMGÖNGUR Flugfélög á Norður- löndunum þurfa 404 nýjar farþega- flugvélar með yfir 100 sæti næstu tuttugu árin, frá 2009 til 2028, samkvæmt nýjustu markaðsspá flugvélaframleiðandans Airbus. Fulltrúar félagsins kynntu spána í fyrsta sinn hér á landi í gær. Þörf fyrir nýjar vélar er að stærstum hluta til komin vegna endurnýjunar á eldri vélum sem verður skipt út fyrir vistvænni flugvélar. Þá spáir Airbus áfram- haldandi vexti í flugiðnaði, en flug- umferð hefur til þessa tvöfaldast á hverju fimmtán ára tímabili. „Og sú þróun heldur áfram,“ segir Andrew Gordon, yfirmaður mark- aðsrannsókna hjá Airbus. Hann bendir jafnframt á að töluverður uppgangur hafi verið í flugiðnaði á Norðurlöndum síðustu ár, en á þessu ári sé flugumferð til og frá Norðurlöndum 35 prósentum meiri en árið 2000. Spá Airbus nær til heimsins alls, en samkvæmt henni mun uppgang- ur í Asíu, þar sem hvað mestum hagvexti er spáð, verða til þess að breyta nokkuð goggunarröð þeirra svæða þar sem mest er flogið. Núna eru Bandaríkin í fyrsta sæti með 31 prósent flugumferðar, Evrópa í öðru sæti með 28 prósent og Asía í þriðja með 26 prósent. Árið 2028 telur Airbus hins vegar að Asía verði komin í fyrsta sætið með 33 prósent, Evrópa haldi öðru sætinu með 26 prósent og Bandaríkin falli í þriðja með tuttugu prósenta hlut. „Þótt tímar séu erfiðir um þessar mundir störfum við í vaxtargeira,“ áréttar Thomas Schmidt-Mumm, aðstoðarforstjóri Airbus í Norður- og Mið-Evrópu. Hann notar tæki- færið til funda með fulltrúum flugfélaga hér og kveður Airbus í reglulegu sambandi við þau, þótt Boeing sé ráðandi í markaðshlut- deild hér á landi. Airbus ætlar sér væna sneið spáðrar aukningar, en Andrew Gordon segir stefnt á helmings- hlutdeild. Núna er félagið með 24 prósenta markaðshlutdeild á Norður löndum. Árið 1990 var hlutur félagsins tvö prósent. Í markaðsspá Airbus kemur fram að á spátímabilinu fjölgi farþega- flugvélum fyrir fleiri en hundrað farþega á Norðurlöndum um meira en fimmtíu prósent, fari úr 319 upp í 488 vélar. Af þeim sem þegar eru í notkun verði 235 teknar úr umferð, 75 verði nýttar annars staðar og níu verði áfram í notkun. Heildarmarkaðsvirði endurnýj- unar og breytinga yfir í vistvænni vélar sem taka yfir 100 farþega er áætlað 38,7 milljarðar Bandaríkja- dala, eða rúmlega 4.720 milljarðar króna. olikr@frettabladid.is Töluverð þörf á endurnýjun Næstu tuttugu ár spáir Airbus því að Norðurlönd þurfi yfir 400 nýjar flugvélar og ætlar sér helmings- hlut í aukningunni. Hún er vegna endurnýjunar. SEGJA FRAMTÍÐ BJARTA Thomas Schmidt-Mumm, aðstoðarforstjóri yfir Norður- og Mið-Evrópu, og Andrew Gordon, yfirmaður markaðsrannsókna hjá Airbus, kynntu tuttugu ára spá Airbus um þróun í flugiðnaði, auk stöðu og horfa hjá félaginu sjálfu, á blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR } 30.000 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 Flotastærð + 3,5 % á ári Ársbyrjun 2009 2028 Vöxtur Endurnýjun Endurvinnsla Notaðar áfram 24.097 nýjar flugvélar -> 354 billjónir króna* Farþegavélar >100 sæti (flutningavélar ekki meðtaldar) *2,9 billjónir (trillion) Bandaríkjadala 14,095 10,002 3,134 880 28,111 ALÞINGI Enn er óvíst hvort frumvarp um persónukjör verður að lögum í tæka tíð fyrir sveitarstjórnarkosn- ingarnar næsta vor. Frumvarpið var lagt fram í sumar en dagaði uppi. Það hefur ekki verið lagt fram að nýju en er á þingmálaskrá dómsmálaráðherra. Siv Friðleifsdóttir Framsóknar- flokki spurðist fyrir um málið á þingi í gær. Vakti hún athygli á að fram undan væru tvö prófkjör sem væru í raun óþörf ef persónukjör yrði leitt í lög. Steinunn Valdís Óskarsdóttir Samfylkingunni sagði koma til greina að veita þeim sveitarfélög- um sem það kjósa sjálfdæmi um að efna til persónukjörs. Þeirri leið mótmælti Vigdís Hauks dóttir Framsóknarflokki; sömu lög og reglur þyrftu að gilda alls staðar. Valgerður Bjarnadóttir Samfylk- ingunni sagði nauðsynlegt að málið kæmi fyrir þingið. „Það er fyrir kjósendur en ekki flokka,“ sagði hún og bætti við að í góðu lagi væri þótt það yrði afgreitt seint, jafnvel bara rétt fyrir jól, og allt í lagi þó að flokkar héldu prófkjör áður því einhvern veginn verði þeir að fá fólk til framboðs. Gunnar Bragi Sveinsson Fram- sóknarflokki sagði það sína skoð- un að best væri að fresta málinu. Of stutt væri til kosninga og kvaðst hann vita af áhyggjum sveitar- stjórnarmanna af framkvæmd- inni ef stutt væri milli samþykktar málsins og kosninga. - bþs Margvíslegar skoðanir uppi um möguleg afdrif frumvarps um persónukjör: Fyrir kjósendur en ekki flokka VALGERÐUR BJARNADÓTTIR Vill að persónukjör verði innleitt í kosningalög- gjöfina fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. ÓSLÓ, AP Fertugur Norðmaður fæddur í Sómalíu er fyrsti Norður- landabúinn ákærður fyrir brot á norskum lögum um bann við fjár- mögnun hryðjuverka frá 2002. Maðurinn er sakaður um að hafa látið sem nemur 4,4 millj- ónum íslenskra króna renna til sómölsku öfgasamtakanna al- Shabaab. Saksóknari segir brot mannsins hafa átt sér stað á árun- um 2007 og 2008. Nafn mannsins hefur ekki verið gefið upp og gengur hann laus fram að réttarhöldum. Verði hann fundinn sekur gæti beðið hans tuttugu ára fangelsi. Málið verður tekið fyrir á næsta ári. - óká Norðmaður fyrir rétt í Ósló: Fjármagnaði hryðjuverk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.