Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 22
22 22. október 2009 FIMMTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: 16 Velta: 140,3 milljónir OMX ÍSLAND 6 809 -0,15% MESTA HÆKKUN BAKKAVÖR 15,38% ÖSSUR 0,81% MESTA LÆKKUN MAREL FOOD SYS. 0,88% FØROYA BANKI 0,35% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atlantic Petroleum 200,00 +0,00% ... Bakkavör 1,50 +15,38% ... Føroya Banki 141,00 -0,35% ... Icelandair Group 2,20 +0,00% ... Marel Food Systems 67,60 -0,88% ... Össur 124,50 +0,81% Gengi hlutabréfa í bandaríska hátæknifyrirtæk- inu Apple hefur verið á mikilli siglingu síðustu mánuði og rauf tvö hundruð dala múrinn í annað sinn á jafnmörgum dögum í gær. Bandaríska dagblaðið Wall Street Journal segir jákvæðar afkomutölur fyrirtækisins í skugga fjár- málakreppunnar ýta verði hlutabréfanna upp. Markaðsverðmæti Apple nam við opnun mark- aða vestanhafs í gær 180 milljörðum dala, jafn- virði 22 þúsund milljarða íslenskra króna. Það er tæpum fjórum milljörðum dala meira en heildar- verðmæti netleitarrisans Google. Þetta er jafn- framt í fyrsta sinn sem Apple tekur fram úr Google. Gengi hlutabréfa Google rauf tvö hundruð dala múrinn skömmu fyrir áramótin 2007 áður en lækkaði hratt eftir það og fór lægst í rúma 78 dali á hlut í byrjun þessa árs. Við opnun markaða í gær hafði það hækkað um 133 prósent. - jab STEVE JOBS Forstjóri Apple getur ekki verið annað en ánægður með fyrirtækið sem hann stofnaði ásamt öðrum árið 1976. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Apple tekur fram úr Google „Skuldatryggingarálagið hefur verið að lækka víða síðustu mán- uði. Það er í samræmi við minni áhættufælni á mörkuðum. Álagið á Ísland endurspeglar þróunina á erlendum mörkuðum auk þeirra aðgerða sem gripið var til eftir efnahagshrunið hér í fyrra,“ segir Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka. Skuldatryggingarálag ríkissjóðs hefur lækkað hratt síðustu daga, fór úr 410 punktum á föstudag í síðustu viku í 358 punkta í gær, samkvæmt gögnum CMA Data- vision yfir þau tíu lönd sem talin eru í mestri hættu á þjóðargjald- þroti. Álagið fór hæst í 1.473 stig í hruninu 10. október í fyrra. Ingólfur bætir við að alþjóðleg matsfyrirtæki líti það jákvæðu augum að ná fram sátt í Icesave- málinu og að AGS ljúki við endur- skoðun á efnahagsáætlun Íslands. Ísland er í fimmta sæti hjá CMA yfir þær tíu þjóðir sem taldar eru líklegar til að lenda í greiðsluerf- iðleikum. CMA telur 22 prósenta líkur á þjóðargjaldþroti hér sam- anborið við 24 prósent fyrir viku. - jab Álag á ríkið lækkar TÍU EFSTU LÖNDIN Lönd Skuldatryggingarálagið Venesúela 1.023 Úkraína 1.120 Argentína 1.002 Lettland 563 Ísland 358 Litháen 312 Dúbaí 291 Líbanon 279 Kasakstan 240 Rúmenía 237 Heimild: CMA Datavision PRÚTT SALA Timbursala BYKO Breid d Fimmtudag , föstudag o g laugardag fjö rtökum Aumingja útlendingarnir Engilsaxneska og tvítyngi voru lykilorð þegar Ísland tók af fullum krafti þátt í alþjóðavæðing- unni fyrir hrun. Þankagangurinn virðist annar í Nýja Íslandi, því sem tók við eftir hrun. Helstu einkenni þess að margra mati er ofuráhersla á innlent. Þeir erlendu gestir sem sátu ráðstefnu iðnaðarráðuneytis, Útflutningsráðs og Fjárfest- ingarstofu á Nordica hóteli í gær fengu að finna fyrir nýjum formerkjum. Á ráðstefnunni var fjallað um mikilvægi beinnar erlendrar fjárfestingar hér, og voru öll erindi flutt á íslensku nema erindi þremenning- anna. Þeir höfðu því lítið að gera milli erinda annað en fylgjast hljóðir með og horfa þreyttum augum ofan í bringu. Ókátir kröfuhafar Kröfuhafar gamla Kaupþings voru ekki hressir eftir annars rólegan kynningarfund með skila- nefnd bankans og bankastjórn nýja bankans í fyrradag. Kröfuhafarnir munu hafa fengið upplýsingar um stöðu bankans senda viku fyrir fundinn til kynningar. Þeir munu hafa rekið upp stór augu þegar þegar Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, varpaði öðrum tölum á vegg en þeim sem fundargestir höfðu milli handanna. Ekki liggur fyrir hvort munurinn var einhverja milljarða í plús eða mínus. Peningaskápur … „Engin ákvörðun hefur verið tekin um framhaldið,“ segir Jóhannes Rúnar Jóhannsson hjá skilanefnd Kaupþings um niðurstöðu bresks dómstóls frá í fyrradag að fjár- málayfirvöld hafi mátt flytja inni- stæður af Edge-innlánsreikningum Kaupthing Singer & Friedlander (KSF) til ING. Í málinu var farið yfir aðdraganda þrots íslensku bankanna frá því Seðlabankinn tilkynnti um kaup á 75 prósentum í Glitni sem leiddi til þess að traust á íslenskum fjármálafyrirtækjum þvarr og þar til KFS fór í þrot. Jóhannes segir markmiðið hafa verið þær að draga ástæður flutn- ingsins fram í kastljósið og sé það í höfn. - jab Gögnin komin upp á borðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.