Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 10
10 22. október 2009 FIMMTUDAGUR ÞUNGAR BYRÐAR Ungur drengur með þunga byrði og heimatilbúinn gaslampa var meðal íbúa borgarinnar Marikina á Filippseyjum sem gert hefur verið að yfirgefa heimili sín vegna flóðahættu meðan fellibylurinn Lupit gengur yfir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SKIPULAGSMÁL Aðalskipulag Reykja- víkur verður unnið í nánu samráði við borgarbúa og áhersla lögð á þverpólitíska sátt. Þetta er meðal þess sem fram kom á kynningar- fundi um endurskoðun á aðalskipu- lagi Reykjavíkur í gær. Júlíus Vífill Ingvarsson, for- maður skipulagsráðs Reykjavíkur, leggur áherslu á að aðalskipulag sé sá grunnur sem skipulag borgar- innar byggi á og ekki eigi að breyta nema nauðsyn krefji. Því hafi verið lögð áhersla á að aðalskipulagið sé unnið í nánu samráði við borgarbúa og um það ríki þverpólitísk sátt, en fulltrúar úr öllum flokkum sátu í stýrihópnum. Júlíus boðar fundaröð í öllum hverfum Reykjavíkur, þar sem íbúar geta reifað sín sjónarmið um skipulagsmál í hverfinu. Spurður um afdrif Reykjavíkur- flugvallar segir Júlíus ekki vilja leggja af stað með fastmótaðar hugmyndir í þeim efnum, en ljóst sé að létt hafi á þrýstingi í þeim efnum þar sem hægt hafi á upp- byggingu í borginni. Þá verði þau nýmæli í endurskoðuðu aðalskipu- lagi að skýr viðmið verði sett um hæð húsa í borginni. Að sögn Júlíusar mun undirbún- ingsvinnan standa fram í febrú- ar og tillaga um nýtt aðalskipulag líta dagsins ljós í framhaldi af því. Hann á þó ekki von á að tillagan verði samþykkt á þessu kjörtíma- bili en vonandi ekki síðar en næsta sumar eða haust. Nánari upplýsing- ar um endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur má finna á nýopnuðum vef, adalskipulag.is. - bs Endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur fram undan: Náið samráð við borgarbúa DÓMSMÁL Tæplega tvítugur karlmaður hefur verið ákærð- ur fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot á Fáskrúðs- firði. Honum er gefið að sök að hafa aðfaranótt laugardagsins 16. maí síðastliðinn ekið bifreið undir áhrifum áfengis, án öku- réttinda og of hratt miðað við aðstæður. Hann missti stjórn á bifreiðinni í krappri beygju þannig að hún fór út af veginum og síðan margar veltur. Farþegi sem sat í aftursæti hennar hlaut það mikla áverka að hann lést nær samstundis. Sá sem ók hefur játað sök. - jss Tæplega tvítugur ákærður: Manndráp af gá- leysi fyrir dóm FÉLAGSMÁL Fjögur gefa kost á sér til embættis formanns BSRB en kjörið fer fram á þingi bandalags- ins í dag. Snorri Magnús son, formaður Landssam- bands lögreglu- manna, bættist í hóp frambjóð- enda á þriðju- dagskvöldið en áður höfðu Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar, Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, og Elín Björg Jónsdóttir, formaður FOSS, lýst yfir framboði. Nýr formaður tekur við af Ögmundi Jónassyni sem gegnt hefur embættinu frá 1988. - bþs Þriðji dagur þings BSRB: Nýr formaður kjörinn í dag SNORRI MAGNÚSSON FISKVEIÐAR Stóraukin eftirspurn er eftir leigukvóta, einkum ufsa- og ýsukvóta en útgefnar aflaheimild- ir beggja tegundanna voru skertar mikið við upphaf þessa fiskveiði- árs. Sú eftirspurn kemur fram í stór- hækkuðu verði á leigukvóta, sem hefur meira en þrefaldast frá sama tíma á síðasta ári. Þann 21. október á síðasta ári var meðalverð á ýsukvóta um 40 krónur en í gær var verðið 150 krónur á hvert kíló. Í fyrradag seldist aflamark á ufsa fyrir um 70 krónur hvert kíló en var um 17 krónur á sama tíma á síðasta ári. Leyfilegur heildarafli ufsa er nú 50.000 tonn. 17.888 tonn hafa verið flutt milli skipa óskyldra aðila, eða rúmur þriðjungur aflaheimilda. Á síðasta ári mátti veiða 65.000 tonn af ufsa. Viðskipti hafa átt sér stað með 13.680 tonn af ýsukvóta. Þar er útgefinn kvóti 63.000 tonn.Á síðasta ári mátti veiða 93.000 tonn af ýsu. Fyrstu sjö vikur fiskveiðiárs- ins, það er frá 1. september til 20. október, voru alls 69.395 tonn af aflaheimildum í bolfiski, humri og úthafsrækju flutt á milli skipa, samkvæmt upplýsingum frá Fiski- stofu. Það er nokkru minni kvóta- leiga en á síðasta ári þegar rúm 81.000 tonn voru leigð milli skipa fyrstu sjö vikur fiskveiðiársins. Heimilt var að veiða 162.500 tonn af þorski á síðasta ári en í ár er leyfður heildarafli 150.000 tonn. Verð á leigukvóta í þorski hefur hækkað talsvert milli ára, miðað við stikkprufur Fréttablaðs- ins, teknar af vef Fiskistofu. Hinn 21. október 2008 var meðalverð 238 krónur á kíló af þorskafla- marki. Verðið var um 260 krónur að meðal tali í gær og hefur verið á bilinu 250 til 270 krónur flesta daga undan farnar sjö vikur. Meðal- verð var yfirleitt 200-240 krónur í upphafi fiskveiðiársins í fyrra. Alls hafa 15.262 tonn af þorskkvóta verið leigð milli skipa óskyldra aðila það sem af er fiskveiðiárinu, sem er rúmlega tíu prósent afla- heimildanna. Af öðrum tegundum hefur hlut- fallslega mikið verið leigt milli skipa af keilu, skötusel, steinbít og löngu. Skötuselskvótinn er nú 2.500 tonn en viðskipti hafa átt sér stað með 1.043 tonn. Að auki skiptu 24 tonn af skötuselskvóta um hendur í viðskiptum í gær og var meðalverðið þar 272 krónur á kíló. Á sama tíma á síðasta ári var leigu- verð á skötusel um 110 krónur. Þá hafa 3.017 tonn af 5.500 tonna keilu kvóta skipt um hendur. Verðið er nú um 40 krónur en var um 25 krónur á kíló á síðasta ári. peturg@frettabladid.is Þrefalt dýrara að leigja ýsu- og ufsakvóta Alls hafa meira en 65.000 tonn af aflaheimildum á bolfisk skipt um hendur það sem af er fiskveiðiárinu. Búið að leigja meira en þriðjung af ufsakvótanum. KVÓTALEIGA Aflaheimildir í ýsu og ufsa voru mikið skertar frá síðasta ári. Eftirspurn eftir leigukvóta í þessum tegundum hefur stóraukist í kjölfarið og verðið þrefaldast. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STJÓRNMÁL Prófkjör sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningar næsta vor verður haldið 23. janúar á næsta ári. Að því er segir í tilkynningu frá Sjálfstæðis- flokknum verður nokkur nýbreytni í framkvæmd prófkjörsins. Frambjóðend- ur séu beðnir að láta ekki kostnað fara yfir 1,5 milljónir króna og að nýta sam- eiginlega kynningu. Prófkjörið verði á einum degi en ekki tveimur eins og síð- ustu skipti. „Sameiginleg kynning frambjóðenda felur í sér að þeir hafa aðgang að sérstök- um prófkjörsvef þar sem þeir geta kynnt sig og sínar áherslur. Þá munu þeir geta haft vinnuaðstöðu í Valhöll og boðið til sín áhugasömum kjósendum til skrafs og ráðagerða,“ segir í tilkynningu. - gar Sjálfstæðismenn í Reykjavík: Prófkjör fyrir kosningar til borgarstjórnar í janúar HANNA BIRNA KRISTJÁNS- DÓTTIR Búast má við að borgarstjóri verði meðal frambjóðanda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON Hann vill að aðalskipulag borgarinnar verði unnið í nánu samstarfi við borgarbúa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.