Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2009
Dekkjalagerinn kom á ís-
lenskan hjólbarðamarkað
með nokkrum hvelli rétt fyrir
hausttörnina 2002. Þremur
árum síðar keypti hann tvö
verkstæði og nafnið breyttist í
Pitstop, sem þýðir örstutt pása
í heimi akstursíþrótta.
„Þegar ég var strákur voru sex
til sjö stærðir af dekkjum alls-
ráðandi en nú skipta þær tugum,“
segir Sigurður Ísleifsson, inn-
kaupa- og sölustjóri hjá Pitstop.
Fyrirtækið rekur þrjú hjólbarða-
verkstæði á höfuðborgarsvæðinu
með fjölbreytta þjónustu. Þau eru
í Rauðhellu 11 og Hjallahrauni 4
í Hafnarfirði og Dugguvogi 10 í
Reykjavík.
Pitstop selur allar helstu gerðir
hjólbarða enda mottóið að eiga rétt
dekk á réttum tíma á réttu verði
að sögn Sigurðar. „Við höfum ný-
lega hafið innflutning á nýrri teg-
und vinnuvéladekkja frá BKT sem
er stór aðili í Indlandi með mjög
mikið úrval, eða allt frá smæstu
hjólbörudekkjum upp í stærstu
hjólaskófludekk, sem kemur til
með að gefa okkur sérstöðu í þeim
geira“ lýsir hann.
Starfsaðstaða Sigurðar er í
Rauðhellu 11 í Hafnarfirði þar
sem höfuðstöðvar Pitstop eru.
Þar er hjólbarðalager, sem þjónar
verkstæðum um allt land, einnig
smurstöð í samvinnu við Skeljung
og stórt dekkjaverkstæði með full-
komnum vélum fyrir allar gerðir
dekkja og bíla. „Við getum tekið
stærstu vörubíla og vinnuvélar
inn og erum að útbúa sérstaka
jeppalínu þar sem stærstu jepp-
um landsins verður sinnt,“ segir
Sigurður. Getur þess jafnframt að
nafni hans Siggi Ævars ráði ríkj-
um á þessu verkstæði og hann sé
reynslubolti í bransanum. Sömu
sögu sé að segja um verkstjór-
ana í Dugguvoginum og Hjalla-
hrauni, Halldór Hafsteinsson og
Guðberg Björnsson. „Í Hjalla-
hrauni er aðstaða til ýmissa smá-
viðgerða, smurstöð og hjólastill-
ingar ásamt góðum dekkjalager
og í Dugguvoginum stór lager af
dekkjum í öllum verðflokkum.
Framtíðaráform fyrirtækisins
er að setja þar upp smurstöð og
þjónustu verkstæði.“
En skyldi vera langt síðan vinna
hans sjálfs fór að snúast um hjól-
barða? „Já, ég er eiginlega fædd-
ur inn í þennan bransa og kemst
ekki út úr honum,“ svarar hann
glaðlega. „Faðir minn rak dekkja-
verkstæði suður í Keflavík og
ég byrjaði sem pjakkur að rúlla
dekkjum þar.“ Hann rifjar upp að
meðan malarvegirnir voru hvar-
vetna við lýði hafi smáviðgerðir
vegna punkteringa verið algengar.
„Á verkstæðinu hjá pabba röð-
uðust upp tugir fólksbíladekkja
sem þurfti að gera við á örfáum
dögum,“ segir hann. „Það hefur
allt batnað síðan þá, vegirnir,
dekkin og bílarnir.“
Pitstop þýðir örstutt pása
„Við leggjum áherslu á öryggi
vegfarenda en höfum lítið bland-
að okkur inn í þessa viðkvæmu
umræðu um hvort nota eigi
nagladekk eða ekki.“ segir Einar
Magnússon, upplýsingafulltrúi
Umferðarstofu, inntur eftir skoð-
unum sínum á nagladekkjum og
þætti þeirra í svifryksmengun í
borginni. „Við erum þó á móti því
að fólk noti nagladekk nema það
sé að fara einhverjar þær leiðir
sem virkileg þörf er á þeim og
það er ekki ofan úr Breiðholti
niður í miðbæ. Að minnsta kosti
er alger undantekning að þær að-
stæður skapist á þeirri leið. Öðru
máli gegnir ef fólk þarf að fara
yfir fjallvegi og heiðar þar sem
minna er um hálkuvarnir, þá á
það að nota þann búnað sem veitir
því mest öryggi.“
Einar vill einnig benda á að
vegna þess að nagladekk eru
bönnuð mjög víða um heim
sé búið að þróa góð naglalaus
vetrardekk.
Naglarnir hafa bæði kosti og galla.
Naglar eða ekki naglar ● STÆRSTA DEKKIÐ Í
Allen Park í Michigan í Banda-
ríkjunum er stærsti hjólbarði í
heimi. Hjólbarðinn var upphaf-
lega notaður sem Parísar hjól
á heimssýningunni í New York
árið 1964.
Eftir sýninguna var Tiger
Paw-hjólbarði settur á hjólið
og varð þar með stærsti hjól-
barði heims. Hann er um 25
metrar á hæð og tólf tonn að
þyngd. - ve
„Við höfum nýlega hafið innflutning
á nýrri tegund vinnuvéladekkja frá
BKT sem er stór aðili á Indlandi með
mjög mikið úrval,“ segir Sigurður
Ísleifsson, innkaupastjóri Pitstop.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
1. Fólksbíladekk.
Mikið skorin, negld eða ónegld.
Fást í öllum algengustu fólksbílastærðum.
Fást í öllum verðflokkum.
2. Jeppadekk.
Hægt að míkróskera og negla.
Fást í öllum algengustu jeppastærðum.
Allir verðflokkar, mismunandi munstur.
3. Sóluð vörubíladekk.
Hægt að negla flest munstur.
Fáanleg í fjölmörgum stærðum.
Góð verð í boði.
4. Vörubíladekk.
Hægt að bora og negla.
Fáanleg í mörgum stærðum.
Allir verðflokkar, mismunandi munstur.
1.
2.
3.
4.