Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 62
50 22. október 2009 FIMMTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. skrambi, 6. frá, 8. kjökur, 9. kvk. nafn, 11. 950, 12. brotthlaup, 14. fet, 16. munni, 17. frjó, 18. drulla, 20. hreyfing, 21. traðkaði. LÓÐRÉTT 1. dans, 3. átt, 4. matgæð- ingur, 5. angan, 7. skref, 10. rölt, 13. hluti verkfæris, 15. ala, 16. tíðum, 19. kyrrð. LAUSN LÁRÉTT: 2. ansi, 6. af, 8. væl, 9. lóa, 11. lm, 12. strok, 14. skref, 16. op, 17. fræ, 18. for, 20. ið, 21. tróð. LÓÐRÉTT: 1. vals, 3. nv, 4. sælkeri, 5. ilm, 7. fótspor, 10. ark, 13. orf, 15. fæða, 16. oft, 19. ró. „Ég hugsaði að það væri lítill möguleiki, en ég er á topp 20 list- anum í dag. Þeir sem eru á honum hljóta að hafa fengið alveg ógeðs- lega mörg atkvæði,“ segir tónlistar- maðurinn og leikkonan Halla Vil- hjálmsdóttir. Halla býr nú í Svíþjóð þar sem hún vinnur að því að koma sér á framfæri sem tónlistarmaður. Á dögunum sendi hún lagið How í vefkeppni Melodifestivalen, sem er undankeppni Eurovision í Sví- þjóð. Lagið er komið í gegnum fyrsta niðurskurð, er þar á meðal tuttugu vinsælustu laganna, og í næstu viku komast fimmtíu lög áfram. Því næst komast tíu lög áfram og loks falla lögin úr keppni koll af kolli þangað til eitt stendur uppi sem sigurvegari. Melodifestivalen er vinsælasta sjónvarpsefni Svíþjóðar, en milljón- ir fylgjast með keppninni á hverju ári. Halla segir að keppnin opni keppendum ýmsar dyr. „Það er nóg að komast á Melodi festivalen til að fá gigg og plötusamning,“ segir hún. „Það er ekki séns að fá ekki plötusamning ef maður tekur þátt í Melodifestivalen – það er besta for- skot sem hægt er að fá.“ Halla hefur ekki áður reynt fyrir sér í Svíþjóð. Hún vinnur nú að því að koma sér á framfæri og held- ur úti Twitter- og Facebook-síðum sem hún uppfærir á reiprennandi sænsku. „Hérna í Svíþjóð hef ég ekkert forskot, engin sambönd – ekki neitt,“ segir hún. „Þannig að ég er á byrjunarreit að reyna að búa mér til vinnu sem tónlistarmaður.“ Íslendingum í Svíþjóð er bent á vefsíðuna www.hejahalla.se, en þar er hægt að hlusta á lag Höllu og fá allar upplýsingar um hvern- ig á að kjósa lagið. Aðeins þeir sem eru með sænsk símanúmer geta kosið, en Halla hefur fundið fyrir miklum stuðningi frá Íslendingum í Svíþjóð og þeim sem búa heima en eiga ættingja ytra. „Það er hjartnæmt hvað fólk getur hjálp- að manni,“ segir hún. „Mér finnst Íslendingar vera ótrúlega góðir í að styðja sína þegar kemur að svona. Ég er að fá skilaboð frá alls konar fólki, sem ég þekki jafnvel ekki mikið, sem er búið hafa sam- band við fjölskyldur sínar í Svíþjóð og fá þær til að kjósa.“ atlifannar@frettabladid.is HALLA VILHJÁLMSDÓTTIR: Á TOPP 20 Í LAGAKEPPNI Í SVÍÞJÓÐ Freistar þess að komast í úrslit Eurovision í Svíþjóð VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1. Kerfið heitir Windows 7. 2. Vonast er eftir 200 Kínverjum. 3. Leikarinn heitir Christopher Lloyd. Auðunn Blöndal, sjónvarps- maðurinn góðkunni, hefur samið við eina stærstu pókersíðu heims, PokerStars.com. Og mun fram- vegis keppa á nokkrum mótum á vegum hennar, bæði hér heima og erlendis. Það fyrsta í röðinni verð- ur í Tallinn í Eistlandi en þang- að hefur verið stefnt nokkrum af þekktustu og sterkustu pókerspil- urum Norður landa og Eystrasalts- landanna. „Ég flýg þangað á þriðjudaginn og mótið sjálft byrjar á fimmtu- daginn,“ segir Auðunn Blöndal en pókeráhugi sjónvarpsmanns- ins varð fyrst opinber þegar hann fór út til Portúgals fyrir nokkru á vegum Betsson ásamt félaga sínum Agli „þykka“ Einarssyni. Þeir kepptu jafnframt á nokkrum mótum hér heima undir formerkj- um fyrirtækisins og andlit þeirra voru notuð í auglýsingaherferðum Betsson. En nú er komið að leiðar- lokum í því samstarfi og sjálfskip- aður fyrirliði íslenska pókerlands- liðsins verður skilinn eftir heima. Auðunn er hins vegar kominn á mála hjá sama fyrirtæki og margir af snjöllustu pókerspilarar heims sem mun styrkja hann til þátttöku á nokkrum sterkum pókermótum. Sjónvarpsmanninum hefur jafn- framt verið boðið að taka þátt í Evrópumeistaramótinu, EPT, á vegum Pokerstars.com og ætlar að sækja það ásamt stórvini sínum, Sveppa. Í framhaldinu fá sjón- varpsáhorfendur að sjá Auðun við pókerborðið í fyrsta skipti en eftir því sem Fréttablaðið kemst næst hefur stjarna sjónvarpsmannsins risið þó nokkuð á meðal póker- áhugamanna hér á landi. Hann þykir víst nokkuð lunkinn. Auð- unn segist hins vegar ekki vera farinn að hugleiða neitt í þá veru að segja upp starfinu og hefja feril sem atvinnumaður í póker. „Nei, ég held ekki, þetta er bara áhuga- mál og skemmtilegt sem slíkt.“ - fgg Auddi semur við PokerStars EKKI ATVINNUMAÐUR Auðunn Blöndal hyggst ekki gerast atvinnumaður í póker, þetta sé fyrst og fremst skemmtilegt áhugamál. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR „Hvað þarf góð kynlífslýsing að hafa til brunns að bera svo hún teljist sómasamleg? Kynlífslýs- ingar mega ekki vera tepruleg- ar og óskáldlegar og alls ekki of klámfengnar,“ segir Hallgrímur Helgason rithöfundur. Hann mun ásamt Jónínu Leósdóttur heim- sækja Vatnsendaskóla á þriðju- dagsmorgun og ræða þar við ungl- inga um kynlífslýsingar í bókum. Heimsóknin er hluti af átaki Rit- höfundasambands Íslands sem nefnist skáld í skólum. Aðspurður viðurkennir Hall- grímur að þau Jónína séu nokkuð ólíklegt par. Og það má til sanns vegar færa. Bæði eiga þau auð- vitað farsælan feril að baki í rit- störfum en þess utan er Jónína auðvitað forsætisráðherrafrú Íslendinga og Hallgrímur var í fremstu víglínu búsáhaldabylt- ingarinnar fyrr á þessu ári. Sem steypti ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokks og Samfylkingar af stóli og varð þess valdandi að Jóhanna Sigurðardóttir settist í stól for- sætisráðherra. En nóg um það. Hallgrímur segist ekki búast við því að umræða um kynlífs- lýsingar eigi eftir að hneyksla unglingana, þeir séu öllu vanir. Það séu kannski frekar kennar- ararnir sem verði í áhættuhópi. Kynlífslýsingar reynast stund- um skáldum óþægur ljár í þúfu og það þarf að gæta sín vel á því að fara ekki yfir strikið. Maður þarf að vera kynþokkafullur án þess að fara yfir klámlínuna og hún þarf að vera sönn,“ útskýrir Hallgrímur. Að hans mati má því kynlífslýsingin ekki vera of ýkt. „Það hefur oft gefið góða raun að vera fyndinn í kynlífslýsingum því þetta er svo viðkvæmt efni og það þarf mjög lítið til svo að fólk fari að hlæja.“ - fgg Hallgrímur og Jónína ræða um kynlífslýsingar ÓLÍKLEGT PAR Jónína Leósdóttir og Hall- grímur Helgason ræða um kynlífs- lýsingar í bókum við nemendur Vatnsendaskóla á þriðjudaginn. „Kaffi með g-mjólk og sígaretta í bæði forrétt og eftirrétt. Ég held að fólk sé oft að ljúga því að það lifi heilsusamlega og borði góð- an morgunmat. Ég kem bara til dyranna eins og ég er klæddur.“ Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður. SYNGUR Í SVÍÞJÓÐ Halla Vilhjálms vinnur að því að koma sér á framfæri í Svíþjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Íslenskir tónlistarmenn hafa nóg að gera eftir hrun efnahagslífsins. Tónlistaráhuga- menn skjótast ekki lengur á U2-tónleika í London eða Kaup- mannahöfn eins og áður heldur taka því sem býðst hér á landi. Það virðist hins vegar sífellt verða dýrara að sækja stórtónleika hér á landi. Stutt verðkönnun á Miði.is leiðir í ljós að á Eagles-heiðurstónleika Eyjólfs Kristjánssonar kostar 6.900 krónur, á afmælistónleika Kristjáns Jóhannssonar kostar 7.900 og dýrustu miðar á Jólagesti Björgvins Halldórssonar kosta 9.900 krónur. Guðni Ágústsson er heldur betur ekki dauður úr öllum æðum þó að minna beri á honum en áður. Guðni var meðal þeirra sem tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri reiðhöll hestafélagsins Sleipni. Guðni mun sjá um fjármál þeirrar byggingar. Þar að auki verður ráðherrann fyrr- verandi kynnir á veglegum jólatónleikum sem haldnir verða á Selfossi og má reikna með að fyrr- verandi formaður Framsóknarflokks- ins eigi eftir að kitla hláturtaugarnar. Tíu ára afmælisdagskrá Skjás eins í beinni útsendingu á þriðjudags- kvöldið minnti mjög á fyrstu ár stöðvarinnar. Í lok dagskrárinnar voru úrslit áhorfendakönnunar gerð kunn. Af öllum gömlu þáttunum vildu þeir helst að Djúpa laugin sneri aftur. Á áskriftarstöðinni væntanlegu hlýtur nú allt að vera komið á fullt við að redda þáttarstjórnendum fyrir þennan klassíska stefnumótaþátt sem Mariko Margrét Ragnarsdóttir stýrði eitt sinn. - hdm, fgg, drg FRÉTTIR AF FÓLKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.