Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2009 1. 2. 4. 1. Tegund: AT 405 Stærð: 38 x 15,5R 15 Gott alhliða jeppadekk sem hentar mjög vel fyrir snjóakstur, mjög hljóðlátt á vegum og sérhannað fyrir hálku. Dekkið er míkróskorið og neglanlegt. 2. Tegund: Dick Cepek FC Stærð: 44 x 18,5 15 Frábært snjóakstursdekk sem jeppamenn þekkja af reynslunni. Hentar vel fyrir míkróskurð og neglingu. 3. Tegund: Dick Cepek FCII Stærðir: Fáanlegt í 30–35“ stærðum og fyrir 15, 16, 17 og 18 tommu felgur. Sterkt og gott alhliða jeppadekk með heilsársmynstri. Hentar vel fyrir míkróskurð og neglingu. 4. Tegund: ProComp AT (All terrain) Stærð: Fáanlegt í 30–35“ stærðum og fyrir 15, 16, 17 og 18 tommu felgur. Sterkt og endingargott jeppdekk með heilsársmynstri. Mjög hljóðlátt. Hentar fyrir míkróskurð. 3. Sérhannað og -smíðað jeppa- dekk er helsta sérstaða Arctic Trucks á dekkjamarkaðnum, segir Gunnar Haraldsson, verk- efnastjóri fyrirtækisins. „Arctic Trucks var og er í rauninni enn fyrst og fremst fyrirtæki sem sérhæfir sig í jeppum og jepplingum og öllu sem viðkemur þeim, þar með talið ferðamennsku. En við bjóðum líka upp á dekk fyrir allar stærðir og gerðir bíla, nema auðvitað vöru- bíla og slíkt, og í bígerð er að bjóða upp á dekk undir vélhjól, fjórhjól og fleiri ökutæki,“ segir Gunnar Haralds son, verslunar stjóri hjá Arctic Trucks, sem hefur aðsetur við Klettháls 3 í Reykjavík. Gunnar segir helstu sérstöðu fyrirtækisins varðandi dekk felast í dekki sem er hannað af fyrirtæk- inu og smíðað sérstaklega í Kína. „AT 405 38-tommu dekkið hefur fengið vægast sagt mjög góðar við- tökur. Það er alhliða jeppadekk sem er hannað sérstaklega fyrir íslensk- ar aðstæður, til notkunar í snjó og er einnig gott í hálku. Það er mikil hugsun á bak við þetta dekk og það er sennilega mest selda dekkið á landinu í þessari stærð. Það kom á markað árið 2005 og nú þegar hafa selst nokkrar þúsundir af því.“ Þrátt fyrir að Arctic Trucks sér- hæfi sig í jeppum segir Gunnar að fyrirtækið sé að víkka sjóndeildar- hring sinn töluvert. „Við tókum nýlega við umboði fyrir Yamaha á Íslandi og erum að flytja inn ýmsar vörur frá þeim. Fyrir utan bílana erum við því einnig með vélhjól, vélsleða, báta og utanborðsmótora til sýnis í verslunum okkar. Það eru mörg Yamaha-tæki í notk- un á Íslandi og við bjóðum eig- endum þeirra upp á varahluta- og viðgerðar þjónustu.“ Fyrir um hálfu ári hóf Arctic Trucks að bjóða upp á svokallaðar „self-drive“-ferðir, sem helst eru hugsaðar fyrir ferðamenn. „Það eru miklar ævintýraferðir þar sem ferðamönnum gefst færi á að aka sjálfir bílunum, en þannig læra þeir að umgangast breytta jeppa um leið og þeir upplifa íslenska náttúru. Í öllum ferðum er einn bíll með leið- sögumanni með í för, en hann vísar veginn og leiðbeinir við aksturinn. Þessar ferðir hafa vakið gríðarlega athygli, en bílarnir sem við notum í þessum ferðum eru meðal annars sömu bílarnir og notaðir voru í leið- angri á segulpólinn í samstarfi við breska sjónvarpsþáttinn Top Gear,“ segir Gunnar. Dekkjaverkstæði Arctic Trucks er búið nýjum og fullkomnum tækjum. „Við bjóðum upp á alla þjónustu í kringum ökutækin. Reynsla okkar sýnir að heppileg- ast er að viðskiptavinir hringi og panti sér tíma í umfelgun og slíkt. Þannig forðumst við biðraðir upp um allar götur,“ segir Gunnar. Þá eru Arctic Trucks nú að taka inn mikið af vönduðum fatnaði fyrir vélhjóla- og vélsleðafólk sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Sérhæfa sig í stærri bílum Bílar hafa löngum talist fagurt myndefni, ekki síst ef lagleg kona prýðir einnig myndina. Það fer svo eftir samhenginu hvort bíllinn sýni konuna sem hamingjusama húsmóður í anda amerískra auglýsinga sjötta áratugarins, sem dásamlega þokkadís og kynveru nú eða bylt- ingarsinna, sem lætur hefðbundin gildi feðraveldisins lönd og leið. AKANDI KONUR Akandi konur þóttu tímanna tákn. Á þriðja áratug síðustu aldar óx kvenna- baráttunni fiskur um hrygg og konur þóttu ögrandi og sjálfstæðar undir stýri og sönnun þess að konur gætu haldið þangað sem hugur þeirra stefndi rétt eins og karlar. Fallegar konur og bílar tengjast órjúfan- legum böndum. Eins og sjá má á þessu gamla póstkorti hafa fallegar konur og bílar löngum þótt eftirsóknarvert myndefni, jafnvel um aldamótin 1900. NORDIC PHOTOS/GETTY Kynþokkinn eykst í pels og bíl. Marilyn Monroe geislaði af kynþokka alla sína tíð og ekki dró úr honum þegar hún klæddist pels og var nálægt lögulegum bíl. Fararskjótar framtíðarinnar. Iðulega er gert er ráð fyrir því að með tímanum verði bílar minni og liprari og geti flogið. Í rauninni virðast þeir samt bara stækka og verða eyðslufrekari. Þrátt fyrir að Arctic Trucks sérhæfi sig í jeppum segir Gunnar Haraldsson verslunar- stjóri að fyrirtækið sé að víkka sjóndeildarhring sinn töluvert. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.