Fréttablaðið - 22.10.2009, Síða 2

Fréttablaðið - 22.10.2009, Síða 2
2 22. október 2009 FIMMTUDAGUR H ÍV T A H Ú S IÐ / S ÍA 0 9 - 1 4 9 2 AÐEINS 1% FITA 20% ÁVEXTIR N Ý R J Ó G Ú R T D R Y K K U RM S . I S NÝR JÓ GÚRT DRYKK UR 3% HVÍTUR SYKUR AÐEINS ENGINSÆTUEFNI LÖGREGLUMÁL Þrír íslenskir karl- menn voru úrskurðaðir í gæslu- varðhald í Héraðsdómi Reykja- ness í gær, á grundvelli aðildar að meintu mansalsmáli á Suðurnesj- um, þjófnaðarbrota og trygginga- svika. Þá var gæsluvarðhald framlengt yfir fimm litháískum karlmönnum sem setið hafa inni vegna gruns um aðild að sama máli. Hópur- inn skal sitja í gæsluvarðhaldi til klukkan fjögur 28. október. Rannsókn lögreglu er afar viða- mikil, enda rökstuddur grunur um skipulagða glæpastarfsemi hópsins í brotum af ýmsu tagi, þar á meðal ofbeldisbrotum. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lagði í gær fram kröfu um fram- lengingu í viku yfir Litháunum og gæsluvarðhald sömuleiðis í viku yfir Íslendingunum og féllst hér- aðsdómur á hana. Íslendingarnir sem um ræðir voru handteknir í fyrradag ásamt tveimur konum sem hefur verið sleppt eftir yfirheyrslur hjá lög- reglu. Mennirnir eru, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins, allir af höfuðborgarsvæðinu. Farið var í sex húsleitir í tengsl- um við handtökur Íslendinganna. Leitað var á heimilum, í fyrir- tækjum og annars konar húsnæði. Aðgerðirnar voru viðamiklar og við þær naut Lögreglan á Suður- nesjum aðstoðar lögreglumanna frá Lögreglustjóranum á höfuð- borgarsvæðinu, Lögreglustjór- anum í Stykkishólmi og Ríkislög- reglustjóranum. Í þeim voru ýmis gögn haldlögð til frekari rannsókn- ar hjá lögreglu. Tengsl eru milli mannanna níu sem sitja inni. Litháarnir vinna hjá verktakafyrirtæki sem tveir af Íslendingunum eiga. Lögregla úti- lokar ekki að um frekari handtökur og húsleitir verði að ræða. Málið teygir sig einnig til emb- ættis sýslumannsins á Snæfells- nesi. Nokkrir úr hópnum sem nú sitja inni eru grunaðir um afbrot í umdæmi hans og er sá angi til rannsóknar hjá lögreglunni. Upphaf málsins má rekja til þess að nítján ára litháísk stúlka var stöðvuð við komuna til lands- ins fyrr í mánuðinum eftir að hún hafði látið ófriðlega í flugvél á leið hingað til lands. Stúlkan var með fölsuð skilríki og grunur leikur á að til hafi staðið að selja hana í vændi hér á landi. Ekkert hefur spurst til litháísks karlmanns sem lýst var eftir í kjöl- far þess að stúlkan kom hingað til lands. Talið er að hann hafi farið af landi brott. Stúlkan er í umsjá embættis Lögreglustjórans á Suðurnesjum sem fer með rannsókn málsins. Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra hefur unnið að athugun á bak- grunni hennar í heimalandinu. Litháarnir störfuðu hjá Íslendingunum Þrír íslenskir karlmenn voru úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í gær vegna gruns um aðild að meintu mansalsmáli á Suðurnesjum, tryggingasvikum og þjófnaðarbrotum. Varðhald fimm Litháa vegna mansalsmálsins var framlengt. LÖGREGLUSTÖÐIN Í KEFLAVÍK Stúlkan er í umsjá embættis Lögreglustjórans á Suður- nesjum sem fer með rannsókn málsins. FANGELSISMÁL „Starfsfólkið er orðið úrvinda,“ segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnun- ar ríkisins, spurður um stöðuna í fangelsismálum nú. Þessa dagana bætast sífellt fleiri í hóp gæslu- varðhaldsfanga. Vegna rann- sóknar lögreglu á einu máli sitja í gæsluvarðhaldi níu manns eftir úrskurð Héraðsdóms Reykjaness. Þrír þeirra bættust við í gær. „Þetta er hrikalegt ástand,“ segir Páll. „Nú er ekki annað í boði en að ganga eftir úrræðum í þeim vanda sem við höfum þegar gert ráðamönnum grein fyrir. Þessi þróun er hröð og ófyrirsjáan- leg, en það má allt eins búast við því að ástandið eigi enn eftir að versna.“ Páll segir ljóst að grípa þurfi í auknum mæli til þess að vista gæsluvarðhaldsfanga á lögreglu- stöðvum, ef önnur úrræði fáist ekki. Starfsfólk Fangelsismála- stofnunar standi frammi fyrir miklum vanda á degi hverjum. „Ef ekkert verður að gert í gæsluvarðhalds- og einangrunar- málum er fullkomlega ljóst að ástandið verður illviðráðanlegt. Það er hvorki starfsfólki né föng- um bjóðandi.“ - jss Forstjóri Fangelsismálastofnunar uggandi vegna fjölgunar gæsluvarðhaldsfanga: Starfsfólkið er orðið úrvinda FJÖLDI GÆSLUVARÐ- HALDSFANGA 21. október 2009* Íslenskir 13 Erlendir 16 Samtals 29 Í einangrun 9 Vistunarstaðir Litla-Hraun 20 Hegningarhúsið 3 Lögreglustöðin á Hverfisgötu 3 Lögreglustöðin í Keflavík 2 Fangelsið í Kópavogi 1 Upplýsingar: Fangelsismálastofnun PÁLL E. WINKEL Segir ástandið hrikalegt. Hjálmar, er flug á ykkur? „Já, við fljúgum okkur út úr kreppunni.“ Flugakademía Keilis ætlar að flytja inn flugnema frá Kína. Hjálmar Árnason er framkvæmdastjóri Keilis. SHARJAH, AP Sex í áhöfn súdanskr- ar fraktþotu létu lífið þegar hún hrapaði skömmu eftir flugtak frá Sharjah flugvellinum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í gær. Vélin, sem var af gerðinni Boe- ing 707 í eigu Sudan Airways, hrapaði niður á óbyggt svæði um þrjá kílómetra norðan við flug- völlinn, hefur fréttastofa AP eftir sjeik Khalid al-Qassimi, forstjóra flugmálastjórnar á svæðinu. Hann segir engan þeirra sex sem voru í áhöfn vélarinnar hafa lifað slys- ið af. Enn er ekki vitað hvað fór aflaga í fluginu, en vitni sá vélina sveigja skarpt til hægri í flugtak- inu, um leið og reynt var að hækka flugið. - óká Flutningavél hrapaði: Sex starfsmenn létust í flugslysi Á VETTVANGI Rannsókn á hinum „svarta kassa“ flutningavélar sem hrapaði í gær ætti að leiða í ljós orsök slyssins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP TOLLGÆSLA Tollgæslan hefur lagt hald á 7.104 millilítra, eða rúm- lega sjö lítra, af sterum í fljótandi formi og 79.913 steratöflur það sem af er þessu ári. Til samanburðar má nefna að fyrstu tíu mánuði ársins 2008 fundust um 10.000 steratöflur og 1,2 lítrar af fljótandi sterum. Inn- flytjendur efnanna leggja mikið á sig til að dylja innihald sending- anna og koma sterunum fyrir í umbúðum af ólíklegasta tagi. - jss Nóg að gera hjá Tollgæslu: Tók áttatíu þús- und steratöflur HALLGRÍMSKIRKJA Þingholtin kúra undir Hallgrímskirkju. Fjær stendur umdeilt háhýsi við Höfðatorg og í fjarska fjöllin sem eru að taka á sig vetrarbúning við borgarmörkin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA UMHVERFI Síðustu daga hefur verið unnið að því að taka niður vinnupalla sem reistir voru við Hallgrímskirkju vegna steypu- viðgerða á turni kirkjunnar. Skemmdir á kirkjunni reynd- ust umtalsvert meiri en ráð var fyrir gert í upphafi og lengdist verkið því í annan endann en nú virðist loks hilla undir lok þess. Kirkjuturninn sem verið hefur sveipaður grænu hlífðar- efni vinnupallanna síðustu misserin birtist nú borgar búum aftur í sinni eðlilegu mynd og lit. - gar Vinnupallarnir sem umlukt hafa Hallgrímskirkju síðustu misseri að hverfa: Kirkjuturninn birtist að nýju Í MÚLALANDI Borgarstjórinn heimsótti starfsfólk Múlalundar í gær. ATVINNUMÁL Öryrkjavinnustofan Múlalundur hefur gert ramma- samninga við Ríkiskaup og Reykjavíkurborg um sölu á skrif- stofuvörum til ríkis og borgar. Samningarnir eru gerðir í kjöl- far útboðs. Í tilkynningu segir að vörurnar frá Múlalundi séu vel samkeppnishæfar í verði við inn- fluttar vörur. „Hafa ber í huga að hér fer fram starf sem er þjóðfélaginu nauðsynlegt. Það að til dæmis einn einstaklingur sem kemur til starfa í Múlalundi sem hefur verið óvinnufær í mörg ár skuli í framhaldi vinnu sinnar hér fara út á hinn almenna vinnumarkað er ómetanlegt,“ segir í frétt frá Múlalundi. - gar Tímamót hjá Múlalundi: Fær samning við ríki og borg STJÓRNMÁL Fimmtán frambjóðend- ur, fimm konur og tíu karlar, munu taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins á Seltjarnarnesi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor. Meðal frambjóðendanna er Ásgerður Halldórsdóttir, núver- andi bæjarstjóri. Prófkjörið fer fram lauugardaginn 7. nóvember en utankjörstaðakosning hefst hins vegar mánudaginn 26. október. - gar Sjálfstæðismenn á Nesinu: Fimmtán taka þátt í prófkjöri VIÐSKIPTI Atorka hefur ákveðið að leggja fram beiðni til Héraðs- dóms Reykjavíkur um heimild til að leita nauðasamninga við lánar- drottna sína. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fjölmiðlum barst frá félaginu í gær. Fjárhagur Atorku breyttist til hins verra við bankahrunið síð- asta haust, að því er segir í til- kynningunni, og er nú ljóst að fjárhagslega endurskipulagningu þarf til að Atorka lifi af. „Stjórn Atorku leggur áherslu á að með samþykkt nauðasamn- ings muni félagið geta stutt við dóttur- og hlutdeildarfélög sín og hámarkað þannig virði eigna.“ - sh Beiðni til Héraðsdóms: Atorka vill leita nauðasamninga SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.